Skoðanir

Fréttamynd

Hafa félög sjálfstæðan vilja?

Enginn ágreiningur er uppi um að stjórnendur olíufélaganna höfðu með sér svo vítt samráð um verð, útboð og fleira, að það náði til alls almenns reksturs félaganna. Hér var á ferðinni harðsnúið samsæri sem gekk svo fram af þjóðinni að í skoðanakönnun Fréttablaðsins haustið 2004 kom fram að 99 prósent almennings töldu að forstjórar olíufélaganna ættu að svara til saka fyrir þátt sinn í málinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Í hita leiksins

Allt frá því að ég byrjaði að leika golf fyrir fjórum fimm árum hef ég setið uppi með þá miskunnnarlausu og ég vil segja skelfilegu niðurstöðu, að það er sama hvað ég reyni, hvað ég legg mig fram, þá kemur skorkortið upp um mig. En af því ég er nú keppnismaður af Guðs náð ákvað ég í sumar, ykkur að segja, að taka þetta föstum tökum, taka heila viku í golfið. Ef ekki tvær.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eignarrétturinn er mikilvægur

Það er sjávarútvegsfyrirtækjunum í hag að eftir­lit með fiskimiðunum sé skilvirkt og hafrannsóknir árangurs­ríkar. Það myndi miða að því að hámarka arð af fiskveiðiauðlindinni með sjálfbærri nýtingu. Afkoma sjávarútvegsins er undir því komin að rannsóknir séu fullnægjandi og rányrkja ekki stunduð. Með því að hafa þessa hagsmuni á sömu hendi telur Ragnar Árnason og fleiri fræðimenn að betri árangur náist. Útgjöld ríkisins minnki og tekjur sjávarútvegsins aukist.

Fastir pennar
Fréttamynd

Það er stórt orð háskóli

Í ört vaxandi þekkingarsamfélagi leita fjölmiðlar í ríkum mæli til sérfræðinga til þess að segja álit á einstökum viðburðum. Þetta er gert í þeim tilgangi að gefa lesendum blaða eða áheyrendum ljósvakamiðla sem gleggsta mynd af því sem til umfjöllunar er hverju sinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjálfstýring á miðunum?

Rökin eru einkum tvenn. Í fyrsta lagi er einka­rekstur jafnan hagkvæmari en ríkisrekstur, eins og reynslan sýnir. Menn fara betur með eigið fé en annarra. Milton Friedman sagði eitt sinn við mig í gamni, en líka alvöru, að sér hefði virst, að þjónusta ríkisins væri jafnan tvöfalt dýrari en sú, sem einka­aðilar veittu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Írland í góðum gír

Írland logar af lífi og fjöri sem aldrei fyrr og er nú eitt ríkasta land heims og hefur safnað eignum í útlöndum, ekki skuldum. Það sér ekki enn fyrir endann á uppsveiflunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óeining Evrópu

Síðastliðinn föstudag lýstu utanríkisráðherrar Evrópusambandsins því sem mikilvægum árangri, að samkomulag skyldi hafa náðst um framlag Evrópuríkjanna til að fylla raðir hins alþjóðlega friðargæsluliðs sem samkvæmt vopnahlésáætlun Sameinuðu þjóðanna á að gæta friðarins í Suður-Líbanon.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ábyrgð einstaklinganna

Það er engu líkara en fulltrúi Ríkissaksóknara sé með þessum orðum að undirbúa að í haust, eftir jóðsótt fjallsins, muni fæðast lítil mús. Það er að segja að möguleiki sé á því að þeir menn sem af óvenju einbeittum og ósvífnum brotavilja stýrðu olíusvindlinu geti sloppið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óskynsamlegar tafir

Þessar stundir er deilt um birtingu tvenns konar opinberra skjala. Annars vegar er um að ræða skýrslu sérfræðings um virkjun við Kárahnjúka. Hins vegar er um að ræða skjöl er lúta að rannsókn mála hjá lögreglu á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar í tengslum við símahleranir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Útkoma ríkisreiknings

Nú er fólkið sem sér um heimilisbókhaldið okkar, þjóðarinnar, að skila af sér. Þá á ég við ríkisreikning. Fyrr í mánuðnum birti Ríkisendurskoðun skýrslu sína um ársreikninginn og gerði ýmsar athugasemdir. Kannski kom einhverjum spánskt fyrir sjónir að ríkisendurskoðun vill ekki hafa það að stofnanir noti ekki fjárheimildir sínar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Íslenska byltingin

Hásætið er laust og baráttan stendur sem hæst. Keisari okkar hefur enn ekki verið krýndur við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju að viðstöddum páfa og kardínálum kapítalismans. Árangurinn erlendis telur en ágangurinn innanlands tefur: Síðustu fulltrúar Búrbónanna sitja enn í háum heimastólum og kalla suma keisarakandídata í yfirheyrslur með reglulegu millibili á meðan aðrir eru í náðinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Opin pólitísk taflstaða

Könnunin leiðir í ljós að þriðjungur kjósenda á sér þann kost helstan að núverandi stjórn sitji áfram. Það bendir til nokkurrar þreytu í kjósendahópnum með samstarfið. Enginn einn annar kostur kemst þó í hálfkvist við þennan í augum kjósenda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Betri grunnskóla

Þeirri skoðun hefur verið haldið á lofti að stjórnvöld á Íslandi hafi einungis áhuga á álbræðsluiðnaði en láti sig litlu varða menntun og hátækni. Þegar að er gáð stenst sú fullyrðing enga skoðun. Við Íslendingar erum í hópi þeirra þjóða sem verja hvað stærstum hluta þjóðarframleiðslu okkar í rannsóknir og þróun. Það sem meira er, útgjöld til menntamála sem hlutfall af þjóðarframleiðslu eru hvað hæst á Íslandi af ríkjum OECD.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kókaín flæðir yfir

Varla líður sú vika að ekki berist fréttir af því að tollverðir og lögregla hafi komið upp um smygl á fíkniefnum og eiturlyfjum til landsins. Á föstudaginn var hér í Fréttablaðinu frétt um að tveir karlmenn og kona hefðu verið handtekin á Keflavíkurflugvelli á mánudag með hálft kíló af örvandi efnum, og er talið að um kókaín sé að ræða. Þá var í síðustu viku framlengt gæsluvarðhald yfir tveimur konum og einum karli sem reyndu að smygla hingað til lands nærri tveimur kílóum af kókaíni í byrjun ágúst.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vannýtt tækifæri í landbúnaði

Líklega er lífrænn landbúnaður eitthvert mesta tækifæri til nýsköpunar sem finnst í sveitum landsins. Þessa sköpun þarf að ýta undir. Það er raunveruleg byggðastefna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvenær er maður reikistjarna?

Ákvörðun stjörnufræðinganna verður að teljast rökrétt að því leyti að annars hefði reikistjörnum í sólkerfinu líklega fjölgað allverulega á næstu árum og þær orðið allt að tuttugu. Slíkt er ekki leggjandi á skólabörn nú á dögum þannig að Plútó var fórnað.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stjórnarsamstarfið

Það gekk miklu betur að auka atvinnufrelsi og opna hagkerfið í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá 1995. Ástæðan er sú, að framsóknarmenn skilja betur en jafnaðarmenn kosti einkaeignarréttar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tækifæri í stöðunni

Ef í alvöru á að freista þess að skapa sæmilega sátt um að ríkið sé að vasast í rekstri fjölmiðla í samkeppni við einkafyrirtæki er grundvallaratriði að fá á hreint hver tilgangurinn er að baki Ríkisútvarpinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vort líf, vort líf!

Það þykir mörgum í meira lagi spaugilegt að fylgjast með viðbrögðum stjórnarandstöðunnar þegar hún fjallar um nýja forystu Framsóknarflokksins. Formaður Samfylkingarinnar gefur sér það strax að hér sé ekki um neina breytingu að ræða. Enginn spyr hana um hver hafi verið breyting á Samfylkingunni frá því að hún velti Össuri Skarphéðinssyni, sem virtist verða að takast að líma þessa fjölskrúðugu fylkingu og afar ólíkra afla saman.

Skoðun
Fréttamynd

Brot gegn börnum

Það er mikilvægt að þessi þjónusta við borgarana þróist í rétta átt, því mál af þessu tagi geta verið mjög vandmeðfarin, og mikilvægt að hæft starfsfólk veljist til að sinna þessum málum. Neyðarlínunni er því vandi á höndum, en ekki er annað vitað en þessi starfsemi hafi gengið vel, og hún á greinilega eftir að vaxa, þegar tímar líða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Jöfnuður, saga og stjórnmál

George Bush, núverandi forseti og flokksbróðir Reagans, hefur gengið enn lengra á þessari braut með fulltingi þingsins, sem hefur lotið stjórn repúblikana síðan 1994. Fjórða hvert bandarískt barn býr við fátækt samkvæmt viðteknum skilgreiningum á móti tuttugasta hverju barni í Svíþjóð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Utanflokkaumræða

Alkunna er að síðustu viku lauk með því að framsóknarmenn kusu viðskipta- og iðnaðarráðherrann til flokksforystu. Hans fyrsta verk var að blása út af flokksfundarborðinu allar umræður um Evrópusambandið og evruna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þétt og bætt?

„Geir H. Haarde telur niðurstöðu landsfundar framsóknarmanna til þess fallna að þétta og bæta ríkisstjórnarsamstarfið." Þegar Geir mælti þessi orð í samtali við Fréttablaðið á föstudaginn var stóð hann báðum fótum yfir þeim sprungusveimi sem liggur undir öllum stíflustæðum við Kárahnjúka og reynt hefur verið að undanförnu að þétta með ýmsum ráðum, svo sem að troða í þær hefilspónum, steypuglundri og steinull og guð má vita hverju öðru en litháískum hrossaskít.

Fastir pennar
Fréttamynd

Við viljum engin ofurlaun á Íslandi

Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið um svokölluð ofurlaun. Frétt um, að forstjóri KB banka hefði 22 milljónir á mánuði hratt þessari umræðu af stað. Mönnum hefur lengi verið ljóst, að launamunur væri orðinn mjög mikill, einkum í fjármálageiranum. Áður hafa verið nefndar háar tölur, nokkrar milljónir á mánuði í laun. En 22 milljónir á mánuði var dropinn sem fyllti mælinn.

Skoðun
Fréttamynd

Nýtt skólaár er hafið

Í dag og næstu daga tínast grunnskólanemendur inn í skólana sína með bros á vör og eftirvæntingu í huga. Sumarfríinu er lokið og tími til kominn að bretta upp ermar og takast á við verkefni vetrarins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að læra af reynslunni

Eins og þeir þekkja, sem leggja leið sína um miðbæinn að næturlagi um helgar, er aftur á móti afar fátítt að rekast þar á laganna verði á gangi. Svo virðist reyndar sem þeim hafi fækkað töluvert eftir að eftirlitsmyndavélar voru settar upp á fjölförnustu hornum miðbæjarins. Ekki skal lögreglunni í Reykjavík ætlað að gera sér ekki grein fyrir mikilvægi þess að vera sýnileg. Hitt er miklu líklegra að hér sé á ferðinni spurning um forgangsröðun og fjármagn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Spurningar vakna um stefnumótun

Í tveimur fjarlægum Asíulöndum, hinu landlukta Afganistan og eyríkinu Srí Lanka, eru að störfum Íslendingar í vandasömum verkefnum. Þeir taka þar þátt í viðleitni alþjóðasamfélagsins til að stuðla að því að græða þau djúpu sár sem langvinn borgarastríð hafa skilið eftir í báðum löndum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skáldaskagi

Tröllaskagi heitir skaginn á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Ég var á róli þar í kring þegar það rann upp fyrir mér að þessi tígulegi landshluti hefur fóstrað ótrúlega mörg skáld. Og það engin smáskáld.

Fastir pennar
Fréttamynd

Góður skóli – jöfn tækifæri

Það samfélag sem hefur þróast hér á landi undanfarinn áratug og hálfan er samfélag tækifæranna. Aukið frelsi á öllum sviðum mannlífsins hefur breytt svo þjóðlífinu að fá dæmi eru um svo snögg umskipti í sögu þjóðarinnar. Ein afleiðingin er sú að nú sjást launatölur sem hingað til hafa verið óþekktar hér á landi. Menntun skilar, á ákveðnum sviðum, mjög miklum afrakstri. Þar með eykst bilið á milli þeirra sem hafa há laun og þeirra sem hafa lág laun, undan því verður vart komist.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hefur eitthvað breyst?

Að öllu virtu má segja að Framsóknarflokkurinn hafi valið að vísu lítt þekktan en trúverðugan og traustan formann án þess að svara spurningum kjósenda um það á hvaða vegferð flokkurinn er. Til hvers var Halldór Ásgrímsson að hætta á þessu sumri?

Fastir pennar