Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Stjarnan burstaði KA/Þór

Stjarnan úr Garðabæ burstaði lið KA/Þórs 34-17 í opnunarleik DHL deildar kvenna í handbolta nú rétt áðan, eftir að hafa verið yfir 15-6 í hálfleik. Sólveig Lára Kjærnested var markahæst Stjörnustúlkna með sjö mörk, Elizabet Kowal skoraði sex mörk og Jóna Margrét Ragnarsdóttir.

Sport
Fréttamynd

Þýski handboltinn í dag

Nokkrum leikjum er lokið í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson varð markahæstur í liði sínu Gummersbach sem sigraði Melsungen örugglega 38-21 á útivelli, en Guðjón skoraði 7 mörk í leiknum og Róbert Gunnarsson skoraði tvö.

Sport
Fréttamynd

Jafntefli í Mosfellsbæ

Afturelding og Selfoss gerðu jafntefli 30-30 í síðasta leik dagsins í DHL deild karla í handbolta í dag, eftir að gestirnir höfðu yfir 15-14 í hálfleik. Hrafn Ingvarsson var markahæstur í liði heimamanna með 6 mörk og Daníel Jónsson skoraði 4.

Sport
Fréttamynd

Þór vann góðan sigur á Stjörnunni

Þór frá Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði Stjörnuna úr Garðabæ fyrir norðan nú áðan, lokatölur 25-24, eftir að gestirnir höfðu verið yfir í hálfleik 14-12.

Sport
Fréttamynd

Handboltinn í dag

Það má reikna með hörkuleikjum í DHL-deildinni í handbolta í dag, þrír leikir fara fram í karlaflokki og einn í kvennaflokki. Fréttablaðið fékk Jóhannes Bjarnason, yfirþjálfara hjá yngri flokkum KA, til þess að spá í leikina.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur byrjar vel með Fram

Fyrsta umferðin í DHL-deild karla fór fram í gær. Nokkrir athyglisverðir leikir fóru fram eins og viðureign ÍBV og ÍR í Eyjum þar sem ÍR kjöldró heimamenn. KA vann Akureyrarslaginn og Fylkir byrjaði vel gegn Víking/Fjölni. Stórleikur kvöldsins var þó viðureign Fram og Íslandsmeistara Hauka.

Sport
Fréttamynd

Haukar töpuðu fyrsta leiknum

Íslandsmeistarar Hauka töpuðu fyrsta leik sínum í DHL deild karla í handknattleik í kvöld, þegar þeir sóttu Framara heim. Lokatölur urðu 28-25 fyrir Fram, sem hafði þriggja marka forystu í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Knattspyrnudeild Vals sektuð

Valur braut gegn reglugerð um samninga og stöðu félaga og leikmanna þegar liðið ræddi án leyfis við Atla Jóhannesson, samningsbundinn leikmann ÍBV. Samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ hefur nú kveðið upp úrskurð í málinu en ÍBV taldi Val hafa brotið gegn reglugerð um samninga og stöðu félaga og leikmanna.

Sport
Fréttamynd

Fram yfir gegn Haukum

Framarar hafa yfir í hálfleik gegn Haukum í DHL deildinni, en þar er fjöldi leikja á dagskrá í kvöld. Framarar hafa ráðið ferðinni í hálfleiknum, en Haukar skoruðu síðustu fjögur mörk hálfleiksins og náðu að minnka muninn í þrjú mörk. Staðan 16-13 fyrir Fram.

Sport
Fréttamynd

Fram með besta þjálfarann

"Ég tel að það verði fjögur eða fimm lið í baráttunni um titilinn í vetur; Haukar, KA, Valur, HK og Stjarnan," sagði Ágúst Jóhansson, þjálfari kvennaliðs Vals, aðspurður um hvaða lið muni keppa um Íslandsmeistaratitilinn í vetur.

Sport
Fréttamynd

Góður sigur Vals á HK

Valsmenn bitu svo sannarlega í skjaldarrendur í síðari hálfleiknum í leiknum við HK í kvöld, því eftir að hafa verið undir 17-13 í hálfleik, náðu þeir að vinna sigur í leiknum 36-25 með ótrúlegum endaspretti í leiknum. Ekki er því hægt að segja annað en að handboltinn fari vel af stað í vetur.

Sport
Fréttamynd

HK leiðir gegn Val í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í viðureign Vals og HK í opnunarleik vetrarins í DHL deild karla í handbolta, en leikurinn fer fram í Laugardalshöll. Það eru HK-menn sem leiða 17-13 í hálfleik og Valdimar Þórsson hefur skorað mest gestanna eða sjö mörk.

Sport
Fréttamynd

Guðjón í ham gegn Düsseldorf

Íslenskir handknattleiksmenn gerðu það gott í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 13 mörk fyrir Gummersbach sem kjöldró Düsseldorf 35-25. Markús Máni Michaelsson 6 fyrir Düsseldorf. Einar Hólmgeirsson skoraði 10 mörk fyrir Grosswallstadt þegar liðið lagði Flensburg 28-24.

Sport
Fréttamynd

Ólafur með tvö mörk gegn Bidasoa

Ólafur Stefánson skoraði tvö mörk fyrir Ciudad Real í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta þegar liðið burstaði Bidasoa 30-21 í gærkvöld. Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Torrevieja sem vann Granollers með eins marks mun, 26-25.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur yfir gegn Stjörnunni

Haukastúlkur leiða gegn Stjörnunni í hálfleik, 15-7 í Meistarakeppni HSÍ í handbolta sem fram fer að Ásvöllum í dag en leikurinn hófst kl. 14.15. Ramûnë Pekarskytë og Hanna Guðrún Stefánsdóttir eru markahæstar hjá Haukum með 4 mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Haukar yfir í hálfleik gegn ÍR

Haukar eru yfir í hálfleik, 21-19 gegn ÍR að Ásvöllum þar sem viðureign liðanna í Meistarakeppni HSÍ fer fram. Árni Sigtryggsson er markahæstur Hauka með 5 mörk en Kári Kristjánsson og Samúel Ívar koma næstir með 4 mörk. Hjá ÍR eru Hafsteinn Ingvason og Tryggvi Haraldsson markahæstir með 5 mörk hvor. Leikurinn hófst kl. 16:15.

Sport
Fréttamynd

Handboltinn farinn að rúlla á ný

Handboltavertíðin hefst formlega í dag en þá verða leikirnir í Meistarakeppni HSÍ. Leikirnir fara báðir fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar og Stjarnan mætast í kvennaflokki kl.14:15 og leikur Hauka og ÍR í karlaflokki kl.16:15.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur meistarar

Haukastúlkur eru meistarar meistaranna í kvennaflokki í handbolta eftir 29-24 sigur á Stjörnunni að Ásvöllum í Hafnarfirði en leiknum er nýlokið. Ramûnë Pekarskytë varð markahæst Hauka með 10 mörk, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 8 mörk og Harpa Melsted 4. Hjá Stjörnunni skoraði Jóna Margrét Ragnarsdóttir mest eða 10 mörk og Rakel Dögg Bragadóttir 4.

Sport
Fréttamynd

Meistarakeppnin í dag

"Það er mikil tilhlökkun í mannskapnum," sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, en lið hans mætir Haukum í Meistarakeppni HSÍ í dag.

Sport
Fréttamynd

Haukum spáð tvöföldum sigri

Nú rétt í þessu var tilkynnt spá forráðamanna félaganna í DHL deild karla og kvenna fyrir veturinn, um uppröðun liða í deildunum tveimur. Það kemur kannski ekki á óvart að Íslandsmeisturum Hauka er spáð velgengni í bæði karla- og kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Haukum spáð tvöföldum meisturum

Haukum er enn eitt árið spáð mikilli velgengni á Íslandsmótinu í handknattleik en spá forráðamanna félaganna í kvenna- og karlaflokki var birt í gær og eru Haukar í efsta sæti á báðum vígstöðum.

Sport
Fréttamynd

36 reglubreytingar í handboltanum

Handboltaáhugamenn mega búast við að íþróttin breytist örlítið ásýndum þegar nýtt tímabil hefst nú um helgina. Alls er búið að boða 39 reglubreytingar en þær koma frá Alþjóðahandknattleikssambandinu og miða að því að bæta íþróttina á heimsvísu.

Sport
Fréttamynd

Snorri Steinn skoraði 5 í tapleik

Arnór Atlason skoraði eitt mark þegar Magdeburg vann nýliða Concordia Delitzscha, 36-24, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi. Kíl sigraði Minden, 38-27. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk fyrir Minden.

Sport
Fréttamynd

Logi frá í a.m.k. 6 vikur

Logi Geirsson, sem leikur með Lemgo, verður frá í að minnsta sex vikur í viðbót vegna meiðsla í baki en hann er með sprungu í hryggjarlið og óvíst hvort hann verði búinn að ná sér að sex vikum liðnum. Logi hefur ekkert leikið með Lemgo það sem af er leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Guðjón með 5 mörk í sigurleik

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk og Róbert Gunnarsson tvö þegar Gummersbach vann Göppingen, 27-26 , í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi. Það var rífandi stemmning á heimavelli Göppingen en Jaliesky Garcia tókst ekki að skora í leiknum, enda í strangri gæslu Guðjóns Vals allan leikinn.

Sport
Fréttamynd

Gummersbach í efsta sætinu

Gummersbach, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar og Róberts Gunnarssonar í þýska handboltanum, vann góðan sigur á Göppingen í kvöld 26-27 á útivelli, eftir að hafa verið undir í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Ásgeir með tvö í stórsigri Lemgo

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo þegar liðið kjöldró Nordhorn með 40 mörkum gegn 28 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Düsseldorf og Magdeburg skildu jöfn, 30-30, Markús Máni Michaelsson skoraði þrjú mörk fyrir Düsseldorf og sama gerði Sigfús Sigurðsson fyrir Magdeburg.

Sport
Fréttamynd

Tvöfaldur sigur Hauka

Karla- og kvennalið Hauka gerðu það gott í Evrópukeppninni í handknattleik í gær, en karlaliðið er komið í Meistaradeild Evrópu eftir öruggan sigur á austurríska liðinu Berchem. Kvennaliðið tapaði síðari leik sínum við ítalska liðið Pelplast með sex marka mun ytra, en er samt komið áfram eftir stórsigur í fyrri leiknum.

Sport
Fréttamynd

Annar stórsigur Vals á Tbilisi

Handknattleikslið Vals var ekki í teljandi vandræðum í síðari leik sínum gegn HC Tbilisi frá Georgíu í EHF bikarnum í dag og rótburstuðu andstæðinga sína aftur, nú með 47 mörkum gegn aðeins 13.

Sport