Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Aron P.: Erfitt að leika gegn þessu tekníska liði

"Þeir eru mjög erfiðir viðureignar, það verður að segjast og þeir spila skemmtilegan bolta. Þeir eru ekki stærstir og sterkastir en eru gríðarlega teknískir en við náðum að halda haus í 60 mínútur og það þarf gegn svona liði. Við náðum að keyra hraðann upp í seinni hálfleik og það gerði gæfu muninn,“ sagði Aron Pálmarsson sem skoraði 9 mörk fyrir Ísland gegn Slóveníu í dag.

Handbolti
Fréttamynd

Guðjón Valur: Tapaður bolti var eins og sjálfsmark

"Þetta var mjög sætur sigur og gríðarlega erfiður. Við vorum að spila við ótrúlega gott lið sem skiptir mjög mikið og spilar mismunandi kerfi eftir því hvaða leikmaður er inni á og þeir fengu hörku skyttu inn í hópinn í dag sem við áttum í erfiðleikum með,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson sem skoraði 13 mörk fyrir Ísland gegn Slóveníu í dag.

Handbolti
Fréttamynd

Alexander: Gleymi verkjunum fyrir framan fulla höll

"Það skiptir ekki máli þó sigurmarkið hafi ekki verið mitt fallegasta. Ég náði ekki að nota kraftinn en mark er mark . Tvö stig og sigur það skiptir öllu,“ sagði Alexander Petersson sem skoraði sigurmark Íslands gegn Slóveníu í kvöld.

Handbolti
Fréttamynd

Sverre: Unnum á góðri sókn

"Þetta var hrikalega erfiður leikur eins og úti líka. Þetta spilaðist mjög svipað og úti. Við áttum í erfiðleikum gegn þeim en klárum þetta á síðustu metrunum. Það sýnir ákveðinn styrk okkar megin. Þetta var hrikalega sætt gegn sterku liði. Ég er mjög glaður með að ná fjórum stigum á móti þeim,“ sagði Sverre Jakobsson sem stóð í ströngu í vörn Íslands í dag.

Handbolti
Fréttamynd

Datt næstum því úr sófanum þegar ég sá Kára spila

Wetzlar hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við íslenska landsliðslínumanninn Kára Kristjánsson eftir að Kári lék með íslenska landsliðinu í Slóveníu í gær. Félagið vissi ekki betur en að Kári væri í veikindaleyfi heima á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu HSG Wetzlar.

Handbolti
Fréttamynd

Alexander enn í miklu basli með öxlina

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari segir að það hafi verið talsvert púsluspil að velja íslenska landsliðshópinn fyrir tvo mikilvæga leiki gegn Slóveníu í undankeppni EM 2014.

Handbolti
Fréttamynd

ÍBV harmar mistök

Aðalstjórn ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mistök eru hörmuð vegna komu erlendra leikmanna til félagsins.

Handbolti
Fréttamynd

Tókum okkur í gegn

Ísland vann tvo frábæra sigra á sterku liði Svía í æfingaleikjum í Austurbergi um helgina. Rakel Dögg Bragadóttir segir að það hafi verið mikið afrek að vinna báða leikina. "Liðið endurheimti neista sem vantaði á EM í Serbíu,“ sagði hún.

Handbolti
Fréttamynd

Bikarúrslitaleikjaárið mikla í Garðabæ

Stjörnumenn fóru í bikarúrslitaleik karla í blaki um helgina og náði félagið því þar með einstakri fernu. Á síðustu sjö mánuðum hefur Stjarnan átt karlalið í bikarúrslitum í fótbolta, körfubolta, handbolta og blaki.

Sport
Fréttamynd

Vilji til að breyta reglunum

HSÍ og KSÍ vilja fara að fordæmi KKÍ og breyta reglugerð um félagaskipti. Erlendir knattspyrnumenn og handboltamenn geta í dag spilað með liðum hér á landi án þess að vera með atvinnu- og dvalarleyfi.

Sport
Fréttamynd

Hefðin með Fram þó Valur eigi titil að verja

Fjórða árið í röð verður það Fram eða Valur sem verður bikarmeistari kvenna í handbolta því liðin mætast í úrslitum Síma bikarsins í dag klukkan 16:00. Þetta er jafnframt í þriðja skiptið á fjórum árum sem liðin mætast í úrslitum.

Handbolti
Fréttamynd

Stjarnan í undanúrslit bikarsins

Stjarnan varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Símabikars karla í handbolta. Liðið vann fimm marka sigur á Þrótti í 8-liða úrslitum, 27-22.

Handbolti
Fréttamynd

Strákarnir unnu Norðmenn aftur

Íslenska 16 ára landsliðið í handbolta vann 32-31 sigur á Norðmönnum í æfingaleik í Austurbergi í dag en íslensku strákarnir hafa þar með unnið tvo leiki af þremur á móti norska liðinu.

Handbolti
Fréttamynd

HM 2013: Spilum alltaf með bensínið í botni

Þorsteinn J. spjallar við Dag Sigurðsson þjálfara Fücshe Berlin í Max-Schmeling höllinni í Berlín. Dagur segir karakter íslenska landsliðsins sé á heimsmælikvarða. "Þetta er það sem talað er um hér í Þýskalandi, þessi seigla og óbilandi trú í leikmönnum íslenska landsliðsins.Við spilum alltaf með bensínið í botni.“

Handbolti
Fréttamynd

Landsliðsfólkið eyðir klukkutíma með krökkunum á morgun

Íslensku handboltalandsliðin hafa verið í sviðsljósinu á árinu 2012 og tóku saman þátt í þremur stórmótum. Karlarnir eru á leið á HM á Spáni í upphafi næsta árs en voru á Ólympíuleikunum í London í ágúst og á EM í Serbíu í janúar. Konurnar eru nýkomnar heim frá EM í Serbíu.

Handbolti
Fréttamynd

Stelpurnar höfðu heppnina með sér og mæta Tékklandi í umspilinu

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta lenti á móti Tékklandi í umspilinu um laus sæti á Heimsmeistaramótinu í Serbíu sem fer fram í desember á næsta ári en dregið var í Belgrad í hádeginu. Ísland var í neðri styrkleikaflokknum þar sem að liðið komst ekki upp úr sínum riðli á EM í Serbíu og því var alltaf ljóst að liðið myndi fá sterka mótherja í umspilinu.

Handbolti