Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Madsen tryggði Dönum sigur á Íslendingum

Íslendingar töpuðu þriðja og síðasta leik sínum á æfingamótinu í Danmörku þegar þeir lágu á grátlegan hátt fyrir heimamönnum 37-36. Það var Lars Madsen sem skoraði sigurmark Dana beint úr aukakasti þegar leiktíminn var runninn út.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland yfir í hálfleik

Íslenska landsliðið í handbolta hefur yfir 19-18 gegn Dönum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðanna á æfingamótinu í Danmörku. Íslenska liðið hefur verið einu til þremur mörkum yfir lengst af í hálfleiknum.

Handbolti
Fréttamynd

Danmörk - Ísland að hefjast

Æfingaleikur Dana og Íslendinga á LK Cup í Danmörku er nú að hefjast og er hann sýndur í beinni útsendingu á Rúv. Þetta er lokaleikur liðanna á æfingamótinu en Norðmenn eru í efsta sæti með 3 stig, Danir og Pólverjar hafa 2 og Íslendingar 1 stig.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland og Noregur skildu jöfn

Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Norðmenn í öðrum leik sínum á æfingamótinu í Danmörku í dag 28-28 eftir að hafa verið með tveggja marka forystu í hálfleik 14-12.

Handbolti
Fréttamynd

Einar Örn til Hauka í sumar

Handknattleikskappinn Einar Örn Jónsson mun snúa heim í sumar og ganga til liðs við Hauka á ný. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið sem tekur gildi í sumar.

Handbolti
Fréttamynd

Elías Már til Hauka

Elías Már Halldórsson er genginn til liðs við Hauka í N1-deildinni. Elías kemur frá þýska liðinu Empor Rostock en áður lék hann með Stjörnunni og HK.

Handbolti
Fréttamynd

Aron: Munum kæra ef rétt reynist

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, sagði í samtali við Vísi að þeir munu kæra leikinn við Fram í ljós ef í ljós kemur að mark Fram var tvískráð í leiknum.

Handbolti
Fréttamynd

Valur og Fram drógust ekki saman

Nú í hádeginu var dregið í undanúrslit Eimskipsbikarkeppni karla og kvenna í handbolta. Fram og Valur, sterkustu liðin í karlaflokki, mætast ekki í undanúrslitunum.

Handbolti
Fréttamynd

Valur og Akureyri áfram í bikarnum

Topplið Hauka í N1-deild karla datt í dag úr bikarkeppni karla eftir að hafa tapað fyrir Val í Vodafone-höllinni, 23-22. Staðan í hálfleik var 12-11, Val í vil.

Handbolti
Fréttamynd

Júlíus: Þvílíkt stoltur af liðinu

Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari var í skýjunum með árangur Íslands í undankeppni EM 2008 í handbolta. Ísland vann í dag sigur á sterku liði Hvíta Rússlands.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland burstaði Ísrael

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann í dag stórsigur á Ísrael 34-17 í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Litháen. Sigur íslenska liðsins var aldrei í hættu í dag eftir að liðið náði 21-7 forystu í hálfleik.

Handbolti
Fréttamynd

Stjarnan sló út HK

Fimm leikjum er lokið í dag í 16-liða úrslitum SS-bikarkeppni karla í handbolta. Stjarnan sló út HK í spennandi leik.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland vann nauman sigur á Ungverjum

Íslenska landsliðið í handknattleik lagði Ungverja í síðari æfingaleik liðanna í handbolta á Ásvöllum í dag. Sigurinn var naumur en það var Róbert Gunnarsson sem skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland tapaði fyrir Ungverjum

Ungverjaland vann Ísland, 23-17, í vináttulandsleik í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn var ekki upp á marga fiska eins og tölurnar gefa til kynna.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland tapaði fyrir Spáni

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði sínum þriðja leik í röð á æfingamóti í Hollandi. Í þetta sinn fyrir Spáni, 30-19.

Handbolti