Ástin á götunni
293 294 295 296 297 298 299 300 301 … 334 ›
Uefa-bikarinn í kvöld Fjölmargir leikir fara fram í Evrópukeppni félagsliða í dag og í kvöld, en tveimur þeirra er þegar lokið. Stuttgart tryggði sig áfram í riðlakeppnina nú áðan, þrátt fyrir tapi gegn NK Domzale 1-0, en þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0. Landar þeirra í Leverkusen voru ekki jafn heppnir og féllu úr keppni fyrir CSKA Sofia, samanlagt 2-0. Sport 23.10.2005 15:00
Bolton áfram á elleftu stundu Úrvalsdeildarlið Bolton tryggði sér dramatískan sigur á búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdov í Evrópukeppni félagsliða nú rétt áðan. Bolton vann fyrri leik liðanna á heimavelli á dögunum 2-1, en lenti undir á 52. mínútu í dag og um tíma leit út fyrir að liðið væri að falla úr keppni fyrir minni spámönnum. Sport 23.10.2005 15:00
KS og ÍA fá 2,5 milljónir Uppeldisfélög knattspyrnumannsins Grétars Rafn Steinssonar munu skipta á milli sín fimm prósenta hlut af þeim tæplega fimmtíu milljónum sem svissneska félagið Young Boys fékk fyrir hann þegar hann gekk til liðs við hollenska félagið AZ Alkmaar. Sport 23.10.2005 15:00
Hetjuleg barátta Brann dugði ekki Kristján Örn Sigurðsson og félagar í Brann háðu hetjulega baráttu við rússnenska liðið Lokomotiv frá Moskvu í Evrópukeppni félagsliða nú síðdegis. Rússarnir unnu fyrri leikinn í Noregi 2-1, en Brann stríddi þeim vel í Moskvu í kvöld. Sport 23.10.2005 15:00
Greta fór á kostum Markahrókurinn Greta Mjöl Samúelsdóttir fór á kostum í dag þegar íslenska U-19 ára landslið kvenna vann stórsigur á liði Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM. Sport 23.10.2005 15:00
Gaui fúll yfir agaleysi leikmanna Leikmenn Notts County hafa nælt sér í þrjú rauð spjöld í síðustu fjórum leikjum og stjóri liðsins, Guðjón Þórðarson, hefur ákveðið að grípa til ráða svo þetta agaleysi leikmanna endurtaki sig ekki í næstu leikjum. Sport 23.10.2005 15:00
Everton úr leik Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð. Sport 23.10.2005 15:00
Tromsö sló út Galatasaray Norska liðið Tromsö gerði sér lítið fyrir og sló tyrkneska liðið Galatasaray út í Evrópukeppni félagsliða nú í kvöld. Norska liðið vann fyrri leikinn í Tromsö 1-0, og náði svo jafntefli í Tyrklandi í kvöld 1-1. Sport 23.10.2005 15:00
Fer Keane frá United? Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfirgefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út. Sport 23.10.2005 15:00
Íslenska landsliðið sektað Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fengið sekt frá Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir fjölda gulra spjalda sem liðið fékk í leikjunum tveimur gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni HM í byrjun mánaðarins. Sport 23.10.2005 15:00
Liverpool - Chelsea að byrja á Sýn Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu er nú að hefjast og verður hann sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári er á varamannabekknum hjá Chelsea, sem vilja eflaust hefna ófaranna frá í fyrra, þegar þeir duttu út úr meistaradeildinni á Anfield. Sport 23.10.2005 15:00
Mourinho hugsar enn um "markið" Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur nú enn vakið athygli á þeirri ósk sinni að tekinn verði upp búnaður til að ákvarða hvort boltinn fer inn fyrir línuna í leikjum á Englandi og í Meistaradeildinni, eftir að lið hans féll úr Meistaradeildinni í fyrra á vafasömu marki á Anfield. Sport 23.10.2005 15:00
Óvíst með Árna Gaut Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Svíum 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingardeildina daginn eftir Svíaleikinn. Sport 23.10.2005 15:00
LuaLua með malaríu Kongómaðurinn Lomana LuaLua hjá Portsmouth hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna veikinda, sem talið er að sé malaría, og gæti orðið frá keppni í allt að sex vikur. Sport 23.10.2005 15:00
Við erum betri núna Rafael Benitez telur að Liverpool sé með betra lið nú en í fyrra og segir að það muni ráða úrslitum í annars jafnri viðureign liðsins við Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld, rétt eins og í slag liðanna í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Sport 23.10.2005 15:00
Jafnt hjá Liverpool og Chelsea Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Enn er markalaust á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Chelsea í stórleik kvöldsins. Sport 23.10.2005 15:00
Messi vakti athygli Argentínska ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona átti stórleik fyrir lið sitt í gærkvöldi, þegar spænska liðið vann auðveldan 4-1 sigur á Udinese frá Ítalíu. Þó svo að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi skoraði þrennu í leiknum og verið í fyrirsögnum blaða á Spáni, var það frammistaða unglingsins sem var á allra vörum í gær. Sport 23.10.2005 15:00
Logi lenti í hörðum árekstri Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, lenti í gær í alvarlegum árekstri við 17 tonna malarflutningabíl fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Bíll Loga er líklega ónýtur en betur fór en á horfðist því hann slapp með minniháttar meiðsli. Sport 23.10.2005 15:00
Ásgeir og Logi völdu einn nýliða Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa valið íslenska landsliðshópinn sem mætir Pólverjum og Svíum í byrjun næsta mánaðar. Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson eru ekki í hópnum vegna leikbanns, en Sölvi Geir Ottesen hjá Djurgarden er eini nýliðinn í hópnum.> Sport 23.10.2005 17:31
Kewell að ná sér Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool, er nú byrjaður að æfa með liðinu í fyrsta sinn síðan í úrslitaleiknum gegn AC Milan í Meistaradeildinni í vor, en hann hefur þurft að gangast undir tvær aðgerðir tengdar kviðsliti. Sport 23.10.2005 15:00
Íslendingar undir smásjánni Það verður vel fylgst með leikmönnum ungmennalandsliðs Íslands í knattspyrnu þegar það mætir Svíum, en leikurinn fer fram hinn 11. október í Svíþjóð. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns nokkurra leikmanna liðsins, má búast við því að forráðamenn flestra félaganna í Svíþjóð muni fylgjast með leiknum. Sport 23.10.2005 15:00
Leikjum lokið í Meistaradeid Leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu í kvöld er nú lokið. Liverpool og Chelsea gerðu markalaust jafntefli á Anfield eins raunar margir reiknuðu með. Leikurinn var mjög harður, en hvorugt lið gaf nokkurt færi á sér eða tók áhættu í sóknarleiknum. Sport 23.10.2005 15:00
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Bayern Munchen hefur yfir 1-0 gegn Club Brugge frá Belgíu, Juventus leiðir 1-0 gegn Rapid Vín, þar sem David Trezeguet skoraði mark ítalska liðsins. Sport 23.10.2005 15:00
Gautaborg sækir á Djurgården IFK Gautaborg sigraði Malmö 2-1 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi og saxaði þar með á forystu Djurgården. Þegar þrjár umferðir eru eftir hefur Djurgarden 46 stig, IFK Gautaborg 43 og Malmö 38 í þriðja sæti. Sport 23.10.2005 14:59
Queiroz ver Ferguson Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, kom sínum manni til varnar í dag í ljósi gagnrýni sem hann hefur fengið að heyra eftir tapið fyrir Blackburn um helgina. Sport 23.10.2005 15:00
Þjálfari Lecce rekinn Ítalska fótboltaliðið Lecce rak í morgun knattspyrnustjórann sinn, Angelo Grugucci. Gregucci var ráðinn til félagsins í sumar þegar hann tók við af Tékkanum Zdenek Zeman. Undir stjórn Gregucci lék Lecce fimm leiki og tapaði fjórum þeirra. Sport 23.10.2005 15:00
Góður sigur hjá íslensku stelpunum Íslenska U19 ára stúlknalandsliðið burstaði Georgíu 7-0 í undankeppni HM sem fram fer í Bosníu-Hersegóvínu. Katrín Ómarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir skoruðu tvö mörk hvor og María Kristjánsdóttir, Elísa Pálsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir sitt markið hver. Ísland mætir gestgjöfunum, Bosníu-Hersegóvínu, á morgun sem töpuðu fyrir Rússum í fyrsta leik, 6-0. Sport 23.10.2005 15:00
Enska fyrsta deildin í kvöld Íslendingarnir í enska boltanum riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í enska boltanum í kvöld, en leikið nokkrir leikir voru á dagskrá í fyrstu deildinni og þá töpuðu Guðjón Þórðarson og félagar í Notts County nokkuð illa í kvöld. Sport 23.10.2005 15:00
Hlynur leggur skóna á hilluna Hlynur Birgisson, sem leikið hefur knattspyrnu með Þór á Akureyri undanfarin ár, er hættur að leika knattspyrnu eftir langan feril. Hlynur var um tíma atvinnumaður hjá Örebro í Svíþjóð og spilaði tólf landsleiki fyrir Íslands hönd, auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin. Sport 23.10.2005 15:00
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Það verður mikið um dýrðir í Meistaradeild Evrópu í kvöld og áskrifendur Sýnar fá að sjá leiki Ajax og Arsenal í beinni útsendingu klukkan 18:30, og síðar í kvöld verður sýndur leikur Manchester United og Benfica, en sá leikur er raunar í beinni útsendingu á Sýn Extra. Sport 23.10.2005 15:00