Sport

Woodgate skoraði aftur sjálfsmark

Varnarmaðurin Jonathan Woodgate varð aftur fyrir því óláni að skora sjálfsmark fyrir lið sitt Real Madrid í gærkvöldi, þegar það tapaði vináttuleik við Real Zaragoza í vítaspyrnukeppni í gær. Þetta var annað sjálfsmark Woodgate í þremur leikjum fyrir liðið. Þrátt fyrir sjálfsmörkin tvö og eitt rautt spjald, getur Woodgate þó huggað sig við þá staðreynd að skrokkur hans virðist loksins vera að komast í lag eftir kappinn hafði verið frá keppni í næstum eitt og hálft ár vegna meiðsla. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×