Ástin á götunni

Fréttamynd

Essien barði í borðið

Miðjumaðurinn Michael Essien hjá Lyon virðist loks vera á leið til Chelsea eftir að hafa átt fund með forseta félagsins og neitað öllum samningstilboðum hans. Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea er nú á leið til Frakklands með það fyrir augum að ganga frá málinu í eitt skipti fyrir öll og væntir þess að klára það frá á næstu tveimur sólarhringum.

Sport
Fréttamynd

Normaður dæmir í 1.deild

Norskur dómari, Ken Henry Johnsen, dæmir leik HK og Víkings R. í 1. deild karla sem fram fer á Kópavogsvellinum á föstudagskvöldið kemur, 12. ágúst. Samkvæmt tilkynningu sem KSÍ sendi frá sér í morgun er þetta liður í norrænum dómaraskiptum sem knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum eru að hrinda í framkvæmd.

Sport
Fréttamynd

Hermann og Brynjar ekki með

Þeir Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Suður-Afríku á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag. Brynjar Björn er meiddur og Hermann fær hvíld í landsleiknum, þar sem hann hefur verið að vinna sig út úr erfiðum meiðslum.

Sport
Fréttamynd

Segir Owen að fara til Newcastle

Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Sport
Fréttamynd

Breiðablik færist nær titlinum

Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ.

Sport
Fréttamynd

Gautaborg er á toppnum

Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2.

Sport
Fréttamynd

United yfir í hálfleik

Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni.

Sport
Fréttamynd

Forlan verður okkur erfiður

Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Árna Gauti og félögum

Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi....

Sport
Fréttamynd

Enski boltinn á Sýn í kvöld

Í kvöld verður leikið í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Manchester United mætir Debrecen frá Ungverjalandi á Old Trafforf í fyrri leik liðanna, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18.55.

Sport
Fréttamynd

Glæsilegur sigur Vals

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu.

Sport
Fréttamynd

Norska úrvalsdeildin

Einn leikur var á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Viking og Start gerðu jafntefli, 1 - 1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Vikings í síðari hálfleik rétt eins og Jóhannes Harðarson sem leikur með Start.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Guðjóni

Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli.

Sport
Fréttamynd

Úrslitin úr ensku 1.deildinni.

Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir..

Sport
Fréttamynd

Buryak látinn fara

Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks

Sport
Fréttamynd

Shearer og Parker meiddir

Alan Shearer, fyrirliði Newcasstle og Scott Parker miðjumaðurinn sem Newcastle fékk frá Chelsea verða ekki með liðinu gegn Arsenal á Highbury í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni sem verður á sunnudag. Þá á Shay Given, markvörður liðsins við nárameiðsli að stríða og alls óvíst hvort hann leiki með gegn Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Jóhann til reynslu hjá AGF

Á heimasíðu AGF í dag er greint frá því að Jóhann B. Guðmundsson knattspyrnumaður í Örgyte í Gautaborg er þessa dagana til reynslu hjá danska félaginu AGF í Árósum og það ræðst um næstu helgi, hvort honum verði boðinn samningur.

Sport
Fréttamynd

Ferdinand segist ekki gráðugur

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United, segir að það hafi ekki verið græðgi sem tafði undirritun nýja samnings hans í gær og blæs á sögusagnir um að hann hafi verið að bíða eftir að United samþykkti að borga honum 120.000 pund í vikulaun.

Sport
Fréttamynd

Ferguson viðurkennir rifrildi

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United hefur viðurkennt að hafa lennt í rifrildi við Roy Keane fyrirliða liðsins í æfingabúðum í Portúgal fyrr í sumar. Ferguson, sem er skoskur, segir að rifrildið hafi ekki verið alvarlegt en óskar sér samt að hann hefði fengið pund fyrir hvert skipti sem hann hafi rifist við Keane, en þá væri hann ríkur maður í dag.

Sport
Fréttamynd

Nisterlrooy mun snúa aftur

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný.

Sport
Fréttamynd

Fylkir - ÍA

Hjörtur Hjartarson tryggði Akurnesingum öll stigin gegn Fylki með marki úr vítaspyrnu sem Skagamenn fengu gefins sex mínútum fyrir leikslok í 3 - 2 sigri Skagamanna í Árbænum.

Sport
Fréttamynd

Myhre til Charlton

Norski landsliðsmarkvörðurinn, Thomas Myhre er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Charlton frá Fredrikstad í Noregi. Aðalmarkvörður Charlton Dean Kiely er meiddur. Myhre hefur leikið áður með Everton og Sunderland.

Sport
Fréttamynd

Geir eftirlitsmaður á Spáni

Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á viðureign Real Betis og Mónakó í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu.  Liðin mætast á Manuel Ruíz de Lopera leikvanginum í Sevilla á Spáni á þriðjudagskvöld.

Sport
Fréttamynd

Owen byrjar tímabilið með Real

Enski sóknarmaðurinn Michael Owen, sem nú er orðaður við annað hvert félag í Englandi, býst fastlega við því að hefja komandi leiktíð á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Cahill með nýjan samning

Tim Cahill, leikmaður Everton gerði í dag nýjan og bættan fimm ára samning við félagið. Cahill var af öðrum ólöstuðum besti leikmaður Everton í fyrra og var markahæsti leikmaður liðsins þrátt fyrir að leika á miðjunni.

Sport
Fréttamynd

Klukkutími í leik Fram og Vals

Nú er klukkutími í leik Fram og Vals í Landsbankadeild Karla. Leikurinn verður í beinni á Sýn og einnig er hægt að fylgjast með honum á Boltavaktinni hér á Vísi. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið, Fram í botnbaráttunni en Val í toppslagnum.

Sport
Fréttamynd

Abramovich á leiðinni til Lyon

Kóngurinn sjálfur hjá Chelsea, Roman Abramovich, er á leið til Lyon á morgun til að borga fyrir Mickael Essien, miðjumanns liðsins.

Sport
Fréttamynd

Jafntefli hjá Keflavík - Þrótti

Keflavík og Þróttur skildu jöfn 3 - 3 í Keflavík. Hörður Sveinsson skoraði tvö mörk heimamanna og nýliðinn ungi frá Færeyjum Simun Samuelsen skoraði eitt mark í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni. Þórarinn Kristjánsson, Josef Maruniak og Haukur Páll Sigurðsson skoruðu mörk Þróttar.

Sport