Spænski boltinn

Fréttamynd

Fullkomin byrjun fyrir Cassano

Ítalski framherjinn Antonio Cassano átti sannkallaða draumabyrjun með liði sínu Real Madrid í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmark liðsins á útivelli í 1-0 sigri á Real Betis í spænska bikarnum.

Sport
Fréttamynd

Gabri líklega til Middlesbrough

Allt útlit er fyrir að Middlesbrough sé að vinna kapphlaupið um spænska miðjumanninn Gabri, sem hefur hug á því að komast burt frá Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Við getum betur

Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að liðið geti gert enn betur en það hefur sýnt á fyrri helmingi keppnistímabilsins á Spáni og fagnar því að liðið þurfi ekki að treysta á neitt annað en sjálft sig til að vinna spænsku deildina.

Sport
Fréttamynd

Real er að rétta úr kútnum

Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane segir að Real Madrid sé nú óðum að sýna sitt rétta andlit eftir góðan 4-2 sigur liðsins á Sevilla í gær, þar sem hann skoraði sjálfur þrennu.

Sport
Fréttamynd

Beckham er sannur atvinnumaður

Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir að David Beckham hafi tekið fréttunum af Sven-Göran Eriksson í bresku pressunni um helgina með stakri ró, en í blaðamenn News of the World lokkuðu Svíann í gildru þar sem hann talaði af sér, meðal annars um Beckham.

Sport
Fréttamynd

Zidane með þrennu fyrir Real Madrid

Real Madrid lyfti sér upp í 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld þegar liðið sigraði Sevilla 4-2. Zinedine Zidane var sjóðheitur og skoraði þrennu fyrir Madridarliðið sem var mun betri aðilinn í leiknum.

Sport
Fréttamynd

17. sigur Barcelona í röð

Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar botnlið Alaves vann 2-0 útisigur á Deportivo Coruna. Þetta var fyrsti leikur Alaves undir stjórn nýja knattspyrnustjórans Juan Carlos Oliva. Barcelona vann 17. leik sinn í röð í öllum keppnum talið þegar Katalóníurisinn vann 2-1 sigur á Athletic Bilbao á Nou Camp í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Real Madrid mætir Betis

Í dag var dregið í fjórðungsúrslit spænska bikarsins í knattspyrnu, en leikirnir verða spilaðir 18. og 25. janúar. Real Betis mætir Real Madrid, Cadiz mætir Espanyol, Deportivo mætir Valencia og Barcelona mætir annað hvort Zaragoza eða Atletico Madrid,

Sport
Fréttamynd

Real Madrid burstaði Atletico Bilbao

Einn leikur fór fram í spænska bikarnum í kvöld. Real Madrid bar sigurorð af Atletico Bilbao 4-0. Brasilíska undrabarnið Robinho skoraði tvö mörk fyrir Real í leiknum og þeir Ramos og Soldado sitt markið hvor. Þá endaði báðum leikjum kvöldsins í ítalska bikarnum með markalausu jafntefli, en það voru viðureignir Cittadella og Lazio annarsvegar og leikur Inter og Parma hinsvegar.

Sport
Fréttamynd

Vill losna frá Real Madrid

Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen hefur gefið það út í samtali við breska fjölmiðla að hann vilji losna frá spænska félaginu, því hann fái allt of lítið að spila. Gravesen hefur því verið mikið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni, ekki síst sitt gamla félag Everton, sem virðist hafa saknað hans mikið síðan hann flutti í sólina á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Markalaust hjá Villareal og Real Madrid

Villareal og Real Madrid gerðu markalaust jafntefli í spænska boltanum í kvöld. Villareal situr í fimmta sæti deildarinnar með 31 stig, en Real er í því sjötta með einu stigi minna. Leikurinn var sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Sport
Fréttamynd

Fimmtándi sigur Barcelona í röð

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Barcelona verji titil sinn í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, því í gær vann liðið fimmtánda sigur sinn í röð í öllum keppnum þegar það lagði erkifjendur sína í Espanyol 2-1. Það voru Samuel Eto´o og Deco sem skoruðu mörk Katalóníuliðsins.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo meiddur

Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid meiddist á kálfa á æfingu í gær og talið er víst að hann missi því af bikarleiknum gegn Atletico Bilbao þann 3. janúar, en framherjinn Raul er enn frá vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í nóvember. Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate er þó byrjaður að æfa á ný eftir að hafa verið meiddur á læri.

Sport
Fréttamynd

Er í hjartaaðgerð

Knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano sem fékk hjartaslag á jólunum, er nú í aðgerð sem ætlað er að bjarga lífi hans á sjúkrahúsi í Valencia á Spáni. Aðgerðin tekur sjö klukkustundir, en ekki var hægt að framkvæma hana fyrr en í dag því beðið var eftir að ástand hans yrði nógu stöðugt. Di Stefano er 79 ára gamall og er heiðursforseti Real Madrid.

Sport
Fréttamynd

Fer frá Barcelona í sumar

Sænski markaskorarinn Henrik Larsson hefur gefið það út að hann muni fara frá Barcelona í sumar eftir að hafa snúist hugur í samningaviðræðum við félagið. Larsson segir að hugur hans stefni heim á leið.

Sport
Fréttamynd

Real Madrid kaupir Cicinho

Spænska stórveldið Real Madrid hefur gengið frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Cicinho frá nýkrýndum heimsmeisturum félagsliða, Sao Paulo. Kaupverðið er sagt vera í kring um fjórar milljónir evra og þó Cicinho sé brasilíumaður, er hann með ítalskt vegabréf og telst því ekki vera útlendingur í spænsku deildinni.

Sport
Fréttamynd

Di Stefano þungt haldinn á sjúkrahúsi

Knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano, heiðursforseti Real Madrid, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Valencia eftir að hafa fengið hjartaáfall yfir hátíðarnar. Di Stefano var á sínum tíma tvisvar kjörinn knattspyrnumaður Evrópu og var mikill markaskorari. Hann skipar stóran sess í sögu Real Madrid og voru flestir stjórnarmenn félagsins mættir til að veita honum stuðning á sjúkrahúsinu í gær.

Sport
Fréttamynd

Floro ráðinn til Real Madrid

Benito Floro, fyrrum þjálfari hjá Real Madrid, var í dag ráðinn sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Hinn 53 ára gamli Spánverji starfaði sem þjálfari hjá félaginu á árunum 1992-94 og mun í dag starfa með núverandi þjálfara liðsins Juan Ramon Lopez Caro, sem tók við þjálfun eftir að Wanderlei Luxemburgo hætti á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Osasuna saxaði á forskot Barcelona

Spútniklið Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni minnkaði forskot Barcelona niður í tvö stig í gærkvöldi, þegar liðið vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í lokaleik ársins í úrvalsdeildinni. Osasuna vann þar með níunda heimasigur sinn í röð, sem er met, og minnkaði forskot meistaranna niður í tvö stig á toppnum.

Sport
Fréttamynd

Ég yfirgef ekki sökkvandi skip

Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo hjá Real Madrid, segir að leikmenn liðsins verði að sýna samstöðu eftir að þeir töpuðu enn einum heimaleiknum í spænsku deildinni í gærkvöldi. Hann segir jafnframt að hann sé alls ekki á förum frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Enn tapar Real Madrid

Real Madrid tapaði enn einum leiknum í spænsku úrvalsdeildinni í gær og þeim fjórða á heimavelli í vetur, þegar liðið lá 2-1 fyrir Racing Santander. Leikmenn Real gengu af velli undir blístri og bauli áhorfenda eins og svo oft áður í vetur, en liðið á litla von um að veita erkifjendum sínum í Barcelona samkeppni um meistaratitlinn ef svo fer sem horfir.

Sport
Fréttamynd

Sendir Real Madrid tóninn

Brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderlei Luxemburgo sem látinn var taka pokann sinn hjá Real Madrir á dögunum, segir að hann hefði náð frábærum árangri með liðið ef hann hefði aðeins fengið tíma til að sinna starfi sínu.

Sport
Fréttamynd

Eto´o skoraði tvö í sigri Barcelona

Barcelona er lið ársins 2005 á Spáni og í kvöld festi liðið sig í sessi á toppnum með 2-0 sigri á Celta Vigo, en liðið hefur verið á ótrúlegri siglingu undanfarið. Það var Samuel Eto´o sem skoraði bæði mörk liðsins í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Við ætlum að fá Henry

Forseti Barcelona, Joan Laporta, er ekki að skafa af því þegar kemur að áhuga hans á franska landsliðsmanninum Thierry Henry hjá Arsenal og í gærkvöldi gaf hann það út við breska blaðið The Sun að spænska félagið ætlaði að tjalda öllu til að fá hann til sín fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Carlos hló að meiðslum mínum

Miðjumaðurinn Valdo hjá Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og fyrrum leikmaður Real Madrid, var ekki sáttur við fyrrum félaga sinn Roberto Carlos eftir leik liðanna um helgina. Carlos meiddi Valdo illa og hló svo að honum þegar hann þurfti að fara meiddur af velli.

Sport
Fréttamynd

Tólf sigrar í röð hjá Barca

Spænsku meistararnir í Barcelona unnu sinn tólfta sigur í röð í deildinni um helgina, sem er besti árangur félagsins í hálfa öld. Portúgalski landsliðsmaðurinn Deco segir hinsvegar að það hjálpi þeim ekkert í lokaleik sínum á árinu þegar liðið tekur á móti Celta Vigo annað kvöld.

Sport
Fréttamynd

Brassarnir óhressir með stuðningsmennina

Brasilísku leikmennirnir Ronaldo, Julio Baptista og Roberto Carlos hjá Real Madrid eru allir á einu máli um að óþolinmóðir áhorfendur á Bernabeu, heimavelli liðsins, séu ein helsta ástæða þess að liðið hefur átt erfitt uppdráttar þar í vetur.

Sport
Fréttamynd

Vill Lampard og Henry til Katalóníu

Framherjinn Ronaldinho hjá Barcelona segist óska þess heitt að fá Thierry Henry og Frank Lampard til liðs við sig hjá Barcelona, en báðir leikmenn hafa verið orðaðir nokkuð við spænska stórliðið.

Sport
Fréttamynd

Schuster framlengir hjá Getafe

Þýski knattspyrnustjórinn Bernd Schuster hefur framlengt samning sinn við spútniklið Getafe til ársins 2008, en þetta var tilkynnt í dag. Schuster hefur náð undraverðum árangri með liðið síðan hann tók við í júní í sumar.

Sport
Fréttamynd

Viðurkenna áhuga sinn á Keane

Forráðamenn Real Madrid á Spáni hafa nú viðurkennt að hafa mikinn áhuga á að fá Roy Keane í sínar raðir, en spænskir fjölmiðlar voru í gær uppfullir af fregnum um að hann væri að undirgangast læknisskoðun hjá Real. Talsmenn félagsins hafa nú slegið þónokkuð á þær vangaveltur.

Sport