Hernaður
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 54 ›
Sagðir ætla að þrefalda fjölda kjarnorkuvopna á næstu árum Kínverjar eru að smíða fleiri kjarnorkusprengjur og gera fleiri tilraunir með langdrægar eldflaugar en öll önnur ríki heimsins samanlagt. Á næstu árum gæti kjarnorkuvopnabúr Kínverja meira en þrefaldast í umfangi. Erlent 30.11.2022 15:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hart barist í hakkavélinni við Bakhmut Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins hétu því í gær að Úkraína fengi á endanum inngöngu í bandalagið og að frekari hernaðaraðstoð yrði send til Úkraínumanna. Því var einnig lofað að bandalagið myndi aðstoða Úkraínumenn við uppbyggingu að stríðinu loknu. Erlent 30.11.2022 11:01
Japanir ætla í hernaðaruppbyggingu Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, hefur skipað varnarmála- og fjármálaráðherrum sínum um að auka fjárútlát til varnarmála í tvö prósent af vergri landsframleiðslu. Þetta á að gera fyrir 2027 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem upphæðin verður svo há. Erlent 29.11.2022 10:56
Bandaríkin og Rússland hafi leiðir til að höndla kjarnorkuógnina Það eru til staðar úrræði fyrir Bandaríkin og Rússland að draga úr áhættunni á kjarnorkustríði, hefur ríkisfréttastofan Ria Novosti eftir fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Engir fundir um ógnina eru á dagskrá, segir hún. Erlent 28.11.2022 06:52
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Yfirmenn sagðir hafa hvatt til nauðgana Ekkert lát virðist ætla að vera á árásum Rússa á orkuinnviði í Úkraínu en þessum árásum hefur verið lýst sem stríðsglæpum. Veturinn er að ganga í garð í Úkraínu og er þegar byrjaður að hafa áhrif á víglínunum og heimilum óbreyttra borgara. Erlent 24.11.2022 13:01
Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf. Erlent 23.11.2022 10:28
Óvíst að gervihnattasamband myndi anna öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra innviða Gervihnattasamband hefur takmarkaða flutningsgetu og óvíst að fjarskiptasamband um gervihnetti geti annað öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra inniviða eða ríkisins við útlönd. Innlent 23.11.2022 09:04
Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því hve mikið vestrænir herir hafa þurft að ganga á skotfærabirgðir sínar vegna vopnasendinga til Úkraínu. Vopnaframleiðendur hafa verið beðnir um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslu á vopnum og skotfærum og sérstaklega með tilliti til þess að stríðinu í Úkraínu mun líklega ekki ljúka á næstunni. Erlent 22.11.2022 11:27
Milljónir í hættu á að deyja sökum kulda Milljónir Úkraínumanna eru í hættu á að deyja í vetur sökum kulda, segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Helmingur orkuinnviða landsins er skemmdur eða ónýtur og um 10 milljón manns án rafmagns. Erlent 22.11.2022 08:19
Surovikin undir þrýstingi eftir undanhald frá Kherson Sergei Surovikin, sem stýrir innrás Rússa í Úkraínu, er undir þrýstingi um að ná árangri eftir að hafa hvatt til þess að rússneski herinn hörfaði frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg. Herforinginn þarf að geta sýnt fram á að ákvörðunin hafi verið rétt og geti skilað Rússum árangri annarsstaðar í Úkraínu. Erlent 21.11.2022 17:05
Uppgjöf varð að blóðbaði Ráðamenn í Rússlandi hafa á undanförnum dögum sakað úkraínska hermenn um stríðsglæp í austurhluta Úkraínu þar sem minnst ellefu rússneskir hermenn voru skotnir til bana. Hermennirnir voru umkringdir og að gefast upp þegar þeir voru skotnir af stuttu færi, eftir að einn þeirra skaut á úkraínsku hermennina. Erlent 21.11.2022 13:46
Selenskí segir Rússa hafa gert 400 árásir í austurhluta landsins í gær Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti sagði í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi að Rússar hefðu gert 400 loftárásir á skotmörk í austurhluta landsins frá því um morguninn. Harðast væri barist í Donetsk en Úkraínumenn væru að sækja fram í Luhansk. Erlent 21.11.2022 07:30
Benda hvor á annan eftir sprengingar við kjarnorkuverið Rússar og Úkraínumenn benda hvorir á aðra eftir að sprengingar urðu við kjarnorkuverið Zaporizhzhia í Úkraínu og svæði í kringum það í dag og í gær. Úkraínumenn segja Rússa hafa ætlað sér að koma í veg fyrir raforkuframleiðslu. Rússar segja að kjarnorkuverið hafi orðið fyrir árásum af völdum úkraínska hersins. Erlent 20.11.2022 14:46
Óvæntar fjölskyldumyndir staðfesta tilvist dóttur leiðtoga Norður-Kóreu Óvænt birting mynda af Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og dóttur hans saman hafa staðfest raunverulega tilvist hennar. Þetta er í fyrsta skipti sem myndir af henni eru birtar opinberlega. Erlent 19.11.2022 08:44
„Þessi nýja ógn er mjög sértæk og setur okkur í alveg nýja stöðu“ Fjarskiptastofa getur ekki afhent fjölmiðlum gögn er varða áhættumat vegna sæstrengjanna sem liggja til Íslands, þar sem gögnin eru bundin trúnaði vegna þjóðaröryggishagsmuna. Innlent 18.11.2022 11:46
Svíar staðfesta að skemmdarverk voru unnin á Nord Stream leiðslunum Saksóknarinn sem fer fyrir rannsókn Svía á skemmdunum á Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum í Eystrasalti hefur staðfest að um skemmdarverk sé að ræða og segir leifar sprengjuefna hafa fundist á vettvangi. Erlent 18.11.2022 09:58
Þrír sakfelldir fyrir að skjóta niður MH17 Þrír karlmenn voru í dag sakfelldir fyrir að hafa sprengt flugvél Malasyia Airlines er vélin flaug fyrir Úkraínu árið 2014. Fjórði maðurinn sem var einnig ákærður var sýknaður. Farþegar vélarinnar voru 298 talsins og létu þeir allir lífið. Erlent 17.11.2022 15:01
Enn lenda stýriflaugar í Úkraínu Fjölda rússneskra stýriflauga var skotið að Úkraínu í morgun. Margar þeirra eru sagðar hafa verið skotnar niður en sprengingar hafa heyrst víða um landið, í Kænugarði, Odessa og Dnipro-borg en minnst fjórir eru látnir og fimm særðir eftir árásirnar. Erlent 17.11.2022 09:43
Segir ekkert benda til árásar Andrzej Duda, forseti Póllands, segir engin ummerki um að vísvitandi árás hafi leitt til þess að tveir Pólverjar dóu nærri landamærum Úkraínu í gær. Hann segir að líklega hafi það verið slys sem olli því að loftvarnaflaug frá Úkraínumönnum hafi banað fólkinu. Erlent 16.11.2022 11:54
Líklega loftvarnaflaug sem villtist af leið Líkur eru á að flugskeytið sem banaði tveimur í Póllandi í gær hafi verið úkraínsk loftvarnaflaug sem villtist af leið. Rússar skutu gífurlegum fjölda stýriflauga á skotmörk víðsvegar um Úkraínu í gær. Í fyrstu var talið að ein þeirra eða fleiri hefðu misst marks og lent í Póllandi. Erlent 16.11.2022 09:33
Biden segir ólíklegt að flugskeytinu hafi verið skotið frá Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ólíklegt að flugskeyti sem varð tveimur að bana í Póllandi hafi komið frá Rússlandi og vísar til brautar flugskeytisins. Aðspurður vildi hann hins vegar ekkert fullyrða um málið og sagðist vilja bíða og sjá. Erlent 16.11.2022 06:23
Ástandið alvarlegt eftir umfangsmestu árás Rússa Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið minnst 85 eldflaugum á skotmörk víða um landið í dag. Stór hluti landsins sé rafmagnslaus og sömuleiðis netleysi víða. Árásin er sögð vera mögulega sú umfangsmesta frá því innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 15.11.2022 16:08
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn með frumkvæðið og von á frekari gagnárásum Frelsun vesturbakka Dniproár og Kherson-borgar opnar margskonar tækifæri fyrir Úkraínumenn til að herja frekar á Rússa í Úkraínu. Fregnir eru þegar byrjaðar að berast af því að úkraínski herinn sé byrjaður að gera árásir á Rússa á austurbakkanum og undirbúa mögulegar gagnárásir á öðrum stöðum. Erlent 15.11.2022 13:35
Segir tímabært að binda enda á átökin en á forsendum Úkraínumanna Það er tímabært að binda enda á átökin í Úkraínu, sagði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti þegar hann ávarpaði leiðtoga G20-ríkjanna um fjarfundabúnað, á ráðstefnu leiðtoganna í Balí. Erlent 15.11.2022 08:03
Stríðsreksturinn sagður valda stórfelldri losun Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til gríðarlegrar losunar á gróðurhúsalofttegundum, að sögn fulltrúa Úkraínu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þeir segjast safna upplýsingum um „umhverfisglæpi“ Rússa. Erlent 14.11.2022 23:20
Selenskí heimsótti Kherson Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Kherson-borg í morgun. Hersveitir Rússa hörfuðu nýverið frá borginni en eru þrátt fyrir það í nokkur hundruð metra fjarlægð, hinu megin við Dniproá. Erlent 14.11.2022 10:46
Segir Rússa seka um stríðsglæpi í Kherson Úkraínuforseti segir að rannsakendur hafi nú þegar fundið sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa í Kherson héraði. Erlent 14.11.2022 07:31
Hvetja Rússa sem eru í felum í Kherson til að gefast upp Úkraínumenn segja Kherson-borg hafa verið frelsaða úr höndum Rússa. Borgin var eina héraðshöfuðborgin sem Rússar hafa hertekið frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst í febrúar en forsvarsmenn rússneska hersins tilkynntu á dögunum að til stæði að hörfa þaðan. Erlent 11.11.2022 17:18
Pútín firrir sig ábyrgð á undanhaldinu Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir allar hersveitir Rússa hafa hörfað frá vesturbakka Dniproár í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Á undanhaldinu felldu Rússar brúnna yfir Dnipro. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, firrir sig allri ábyrgð á undanhaldinu. Erlent 11.11.2022 10:48
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. Erlent 10.11.2022 23:31