Hernaður „
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 55 ›
„Þetta er 1937 augnablikið okkar,“ segir yfirmaður breska hersins Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir leiðtoga G7-ríkjanna hafa verið sammála um að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þeir þurfa til að snúa stríðinu sér í hag. Þetta sé það sem Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hafi óskað eftir. Erlent 28.6.2022 12:31
Vaktin: NATO hafi áhyggjur yfir tengslum Kínverja og Rússa Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir bandalagið ekki líta á Kínverja sem andstæðinga sína en þau hafi áhyggjur af sterkum tengslum Rússa og Kínverja og því að Kínverjar dreifi fölskum áróðri um bæði NATO og Vesturlönd. Erlent 28.6.2022 08:58
Að minnsta kosti sautján látnir eftir árás Rússa á verslunarmiðstöð Ljóst er að sautján hið minnsta létust þegar Rússar gerðu eldflaugaárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk í miðhluta Úkraínu í gær. Erlent 28.6.2022 07:21
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ Erlent 27.6.2022 08:31
„Síðan vöknum við við sprengingar klukkan sex í morgun“ Einn lét lífið eftir að Rússar vörpuðu í morgun sprengjum á að minnsta kosti tvær íbúðablokkir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu. Íslendingur sem býr í borginni segir óþægilegt að vakna upp við sprengingar á ný. Hann er orðinn langþreyttur á stríðinu sem hann segir verða blóðugra með hverjum deginum. Erlent 26.6.2022 15:29
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. Erlent 26.6.2022 07:53
Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05
„Þær voru bara lokaðar inni í kjallaraherbergi í marga daga og neglt fyrir gluggana“ Fréttakonan Alma Ómarsdóttir gerði heimildamynd Stúlkurnar frá Kleppjárnsreykjum þar sem hún skoðaði sérstaklega upptökuheimilið Kleppjárnsreyki sem var komið á laggirnar til þess að vista ungar stúlkur sem höfðu átt í samskiptum við hermenn á „ástandsárunum“ svokölluðu hér á Íslandi. Lífið 25.6.2022 06:00
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36
Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. Erlent 22.6.2022 08:17
Draga úr notkun Bandaríkjahers á jarðsprengjum Ríkisstjórn Joes Biden Bandaríkjaforseta tilkynnti í dag að Bandaríkjaher hætti notkun á jarðsprengjum utan Kóreuskaga. Jarðsprengjur verða þúsundum manna að bana á hverju ári, aðallega börnum. Erlent 21.6.2022 15:12
Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. Erlent 21.6.2022 12:42
Vaktin: Handtaka eigin stjórnmálamann fyrir njósnir Enn hóta Rússar því undir rós að grípa til kjarnorkuvopna en Reuters hefur eftir Vladimir Pútín Rússlandsforseta að Rússar hyggist styrkja herafla sinn með tilliti til mögulegra hernaðarógna og -áhættu. Forsetinn segir nýjar Sarmat eldflaugar Rússa, sem eru bæði langdrægar og geta borið allt að tíu kjarnorkusprengjur, verða teknar í notkun fyrir árslok. Erlent 21.6.2022 08:29
Vaktin: Segir Rússa halda Afríku í gíslingu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist eiga von á því að Rússar muni auka árásir sínar á Úkraínu og jafnvel önnur Evrópulönd í vikunni, í kjölfar ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að mæla með því að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis. Erlent 20.6.2022 08:23
Ætla að beita sér fyrir inngöngu Úkraínu í ESB Fjórir evrópskir leiðtogar lofuðu stuðningi við Úkraínu þegar þeir funduðu með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta í Kænugarði í gær. Þeir hétu því að styðja umsókn Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu og að senda fleiri hergögn til Úkraínu vegna innrásar Rússa þar í landi. Erlent 17.6.2022 08:58
Vaktin: Leiðtogar Evrópuþjóðanna vilja Úkraínu í ESB Þrír valdamestu leiðtogar Evrópusambandsins, forseti Frakklands, kanslari Þýskalands og forsætisráðherra Ítalíu mættu í heimsókn til Kænugarðs í nótt til að ræða við Volodomir Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 16.6.2022 07:54
Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. Erlent 15.6.2022 07:13
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. Erlent 14.6.2022 10:55
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. Erlent 14.6.2022 07:27
Ísland gegni enn mikilvægu hlutverki fyrir NATO í Norður-Atlantshafi Herskip frá sex NATO-ríkjum taka nú þátt í kafbátarleitaræfingu sem fer fram í Norður-Atlantshafi næstu tvær vikur. Aðstoðaraðmíráll segir Ísland gegna mikilvægu hlutverki fyrir NATO. Innlent 13.6.2022 23:47
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. Erlent 13.6.2022 12:17
NATO æfir kafbátahernað við Íslandsstrendur Herskip frá sex NATO-ríkjum taka þátt í kafbátaleitaræfingu sem fram fer í Norður-Atlantshafi næstu tíu daga. Æfingin fer að mestu leyti fram á hafsvæðinu við Noreg en að hluta til innan þess loftrýmissvæðis sem Ísland annast. Innlent 13.6.2022 11:33
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. Erlent 13.6.2022 07:45
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. Erlent 13.6.2022 07:13
„Við munum ekki hika við að berjast“ Wei Fenghe, varnarmálaráðherra Kína, gagnrýndi Bandaríkin harkalega í ræðu sem hann hélt á öryggisráðstefnu Asíu- og Kyrrahafsríkja í Singapúr í morgun. Hann sakaði Bandaríkin um að reyna að halda aftur af framþróun Kína og einangra landið. Erlent 12.6.2022 15:01
„Forsmekkur af heimi óreiðu og ólgu sem ekkert okkar vill búa í“ Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ítrekaði í morgun að Bandaríkin stæðu við bakið á Taívan. Hann gagnrýndi Kínverja fyrir ógnandi hegðun í garð Taívans og þar á meðal næstum daglegar flugferðir orrustuþota um lofthelgi eyríkisins. Erlent 11.6.2022 15:00
Sagðir nota sextíu ára gamlar og ónákvæmar eldflaugar í Úkraínu Rússar hafa líklega skotið tugum áratuga gamalla eldflauga sem hannaðar voru til að bera kjarnorkuvopn og granda flugmóðurskipum á skotmörk í Úkraínu. Þær eru sagðar ónákvæmar og líklegar til að valda dauðsföllum meðal óbreyttra borgara. Erlent 11.6.2022 11:22
Segir Rússa stefna að gjöreyðingu Donbas-héraðs Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa stefna að því að eyða öllum borgum í Donbas héraði. Erlent 11.6.2022 09:20
Segir að Selenskí hafi ekki viljað hlusta í aðdraganda innrásarinnar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna segir að Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, hafi ekki viljað hlusta á aðvaranir um að Rússar væru að safna liði í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 11.6.2022 08:14