Náttúruhamfarir
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 22 ›
Sjö fundist látnir eftir aurskriðuna á Ischia Sjö hafa nú fundist látnir og fimm er enn saknað eftir að aurskriða féll á ítölsku eyjunni Ischiaum helgina. Björgunarstarf stendur enn yfir og segir talsmaður yfirvalda að börn séu í hópi þeirra sem sé saknað. Erlent 28.11.2022 07:51
Rýma hús vegna gróðurelda í Noregi Íbúum minnst þrjátíu húsa í Åfjord í Þrændalögum í Noregi hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda á svæðinu sem kviknuðu í gær. Eldarnir hafa breitt úr sér en slökkvilið á svæðinu telur sig hafa náð þokkalegum tökum á þeim. Fleiri gróðureldar brutust út í Noregi í dag. Erlent 26.11.2022 23:56
Kona fannst látin og tíu enn saknað Yfirvöld á Ítalíu hafa staðfest að kona hafi fundist látin eftir stóra aurskriðu sem féll yfir hluta bæjarins Casamicciola á eyjunni Ischia í morgun. Tíu er enn saknað. Erlent 26.11.2022 22:47
Minnst tólf saknað eftir aurskriðu á Ítalíu Stór aurskriða fór yfir hluta bæjarins Casamicciola á eyjunni Ischia á Ítalíu í morgun. Minnst tíu hús hrundu vegna skriðunnar en mikið hefur rignt á eyjunni undanfarna daga. Erlent 26.11.2022 13:34
Fjölmörg skólabörn í hópi látinna í Indónesíu Fjölmörg skólabörn eru í hópi látinna eftir að mikill jarðskjálfti varð á indónesísku eyjunni Jövu í gær. Börnin voru stödd í skólum sem hrundu til grunna þegar skjálftinn reið yfir. Erlent 22.11.2022 11:04
Fjöldi látinna orðinn 162 Fjöldi látinna eftir jarðskjálftann í Indónesíu er nú orðinn 162. Rúmlega tvö hundruð manns eru slasaðir en þrettán þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Enn er tugi manna saknað. Erlent 21.11.2022 17:41
Skriðan er 160 metrar að breidd Aurskriðan sem féll á Grenivíkurveg snemma í morgun er 160 metrar að breidd. Óljóst er enn hvenær hægt verði að byrja á vinnu við opnun vegarins. Innlent 17.11.2022 16:11
„Maður var bara hálfsmeykur“ Bóndi á Fagrabæ í Grýtubakkahreppi segir hrikalegt að sjá hversu tæpt stóð þegar aurskriða féll á veginn við bæinn í morgun um leið og tveir bílar óku þar um. Vegurinn er enn lokaður og töluverðir skruðningar heyrast frá fjallinu. Innlent 17.11.2022 11:34
Rottur þjálfaðar til þess að bjarga fólki eftir jarðskjálfta Verið er að þjálfa rottur til þess að finna fólk sem festist í rústum eftir jarðskjálfta. Rotturnar eru þá látnar bera lítinn bakpoka sem dugi meðal annars sem einskonar staðsetningartæki. Erlent 25.10.2022 18:01
Kílómetrahá flóðbylgja við áreksturinn sem grandaði risaeðlunum Ógurleg flóðbylgja, hátt í tveggja kílómetra há, fylgdi í kjölfar áreksturs loftsteins við jörðina sem grandaði risaeðlunum fyrir tugum milljóna ára. Ný hermun tölvulíkans bendir til þess að flóðbylgjan hafi náð yfir alla jörðina. Erlent 20.10.2022 21:00
Rúmlega sex hundruð látnir eftir flóð í Nígeríu Rúmlega sex hundruð hafa látið lífið vegna flóða í Nígeríu síðustu daga. Flóðunum hefur verið lýst sem þeim verstu í landinu í áratug. Erlent 17.10.2022 08:42
Einn hefur látist í gríðarlegum flóðum í Ástralíu Íbúar í þremur áströlskum fylkjum hafa þurft að flýja heimili sín vegna úrhellisrigninga og flóða. Í hluta landsins hefur rigning undanfarinn sólarhring verið fjórum sinnum meiri en að meðaltali í októbermánuði. Erlent 14.10.2022 08:22
Meiri líkur á eldgosi nú en í fyrra Búist er að fyrstu merki hlaupsins úr Grímsvötnum sjáist á vatnshæðarmælum í Gígjukvísl síðar í dag og að hlaupið nái hámarki á morgun. Meiri líkur eru á eldgosi í framhaldi af hlaupinu nú en fyrir ári. Innlent 11.10.2022 11:11
Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. Erlent 11.10.2022 08:35
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. Erlent 11.10.2022 07:49
Ian líklega mannskæðasti fellibylur Flórída frá 1935 Fellibylurinn Ian er líklega sá mannskæðasti sem gengið hefur yfir Flórída frá árinu 1935. Fjöldi dauðsfalla er enn á reiki og tala miðlar vestanhafs um að allt að 120 dauðsföll vegna fellibylsins hafi verið staðfest. Enn er verið að leita í rústum húsa. Erlent 6.10.2022 10:27
Mannskaði í snjóflóði í Himalajafjöllum Að minnsta kosti fjórir fjallgöngumenn eru látnir og fjölda er saknað eftir að gönguhópur lenti í snjóflóði í Himalajafjöllum á Indlandi. Hluti hópsins er talinn fastur í jökulsprungu. Erlent 4.10.2022 19:41
Kanna sameiningu NTÍ og Bjargráðasjóðs Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur farið þess á leit við stjórn Bjargráðasjóðs að hún kanni möguleikann á því að sameinast Náttúruhamfaratryggingum Íslands, NTÍ. Innlent 4.10.2022 09:09
Fellibylurinn gæti reynst tryggingafélögum Flórída dýr Meira en 80 manns eru sögð látin eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir Flórída og Norður- og Suður-Karólínu. Búist er við því að viðgerðir og uppbygging ásamt aðstoð vegna fellibylsins muni kosta tugi milljarða Bandaríkjadala. Þar að auki muni fellibylurinn kosta tryggingafélögin augun úr. Erlent 3.10.2022 14:32
Tugir sagðir látnir eftir að Ian gekk yfir Flórída Björgunarstörf er enn yfirstandandi í Flórída eftir að fellibylurinn Ian olli þar gífurlegu tjóni og mannskaða. Vitað er til þess að tugir hafi dáið vegna fellibylsins og þar af flestir í Flórída en enn er verið að leita í rústunum sem Ian skildi eftir sig. Erlent 1.10.2022 17:53
Hækkandi sjávarstaða og möguleiki á skyndiflóðum víða vegna Ian Fellibylurinn Ian kom til Georgetown í Suður-Karólínu um klukkan 18:00 á íslenskum tíma og hefur þegar látið til sín taka. Íbúar í Flórída eiga enn við afleiðingar veðursins sem geisaði þar þegar fellibylurinn átti leið hjá. Erlent 30.9.2022 21:45
Ian stefnir hraðbyri að Suður-Karólínu Íbúar við strendur Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hafa flúið heimili sín og leitað á hærri svæði í aðdraganda þess að fellibylurinn Ian nær þar landi. Fellibylurinn hefur þegar valdið gífurlegum skaða á Kúbu og í Flórída en hefur safnað krafti á nýjan leik og veðurfræðingar búast við miklum flóðum í Charleston og víðar. Erlent 30.9.2022 16:31
Fjöldi látinna í Flórída á reiki eftir fellibylinn Ian Fellibylurinn Ian sem gekk á land í Flórída á miðvikudag stefnir nú á Suður-Karólínu en fjölmargir íbúar flúðu úr stærstu borg ríkisins, Charleston, í gær. Ríkisstjóri Flórída segir ljóst að fellibylurinn, sem er einn sá stærsti í sögu Bandaríkjanna, hafi verið mannskæður en verið er að staðfesta fjölda látinna. Erlent 30.9.2022 07:30
Ian gæti orðið sá mannskæðasti í sögu Flórída Fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar og óttast er að hann sé mannskæðasti fellibylur í sögu Flórída. Íbúðarhús eru víða gjörónýt, þak fauk af spítala, vegir skemmdust og brýr hrundu. Erlent 29.9.2022 20:10
Verklag í kjölfar náttúruhamfara Áskoranir hafa alla tíð fylgt sambúð við náttúruöflin á Íslandi og um nýliðna helgi glímdu landsmenn sannarlega við þau. Illviðri gekk yfir, mikill vindstyrkur sem sumstaðar fylgdi mikil úrkoma og há sjávarstaða. Þetta leiddi til margs konar tjóns s.s. skriðufalla á Vestfjörðum, flóða á Akureyri, skemmda á uppskeru og gríðarlegs foktjóns. Skoðun 29.9.2022 15:30
Illviðrið mögulega ákafara vegna hlýnunar jarðar Mögulegt er að öfgafullt illviðri sem gekk yfir landið um helgina hafi verið ákafara en ella vegna þeirrar hnattrænu hlýnunar sem hefur átt sér stað, að mati veðurfræðings. Leifar af fellibyl sem hafði áhrif á lægðina voru óvenjuöflugar vegna sjávarhlýnunar sem er beintengd hlýnun loftslags. Innlent 29.9.2022 12:52
Fellibylurinn í myndskeiðum: Ian skilur eftir sig mikla eyðileggingu í Flórída Útlit er fyrir að fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hafi valdið gífurlegum skemmdum í sjávarbyggðum þar. Myndbönd frá Flórída sem tekin voru í gær og í nótt sýna að sjór gekk langt inn á land og olli mikilli eyðileggingu. Erlent 29.9.2022 11:38
Tvær milljónir án rafmagns og fólk innlyksa eftir Ian Fjöldi fólks er innlyksa í húsum sínum vegna flóða og tvær milljónir manna eru án rafmagns á suðvestanverðum Flórídaskaga í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ian gekk þar yfir í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum. Erlent 29.9.2022 09:05
Ian muni valda gríðarlegri eyðileggingu í Flórída Fellibylurinn Ian hefur hefur valdið gríðarlegum flóðum á vesturströnd Flórída síðan hann gekk á land í kvöld, klukkan sjö að íslenskum tíma. Ríkisstjóri segir viðbúið að fellibylurinn muni skilja eftir sig gríðarlegar rústir. Bylurinn hefur þegar valdið tveimur dauðsföllum á Kúbu og rafmagnsleysi um alla eyjuna. Erlent 28.9.2022 23:40
Milljónum sagt að flýja undan Ian sem nálgast fimmta stigið Fellibylurinn Ian stefnir hraðbyri á Flórída í Bandaríkjunum eftir að hafa valdið mikilli eyðileggingu og dauðsföllum á Kúbu. Heitur sjór á Mexíkóflóa hefur gefið fellibylnum aukinn kraft og er hann skilgreindur sem fjórða stigs fellibylur og sagður nálægt fimmta stiginu. Erlent 28.9.2022 12:21