
Mál Sölva Tryggvasonar

Kærasta Sölva Tryggva að rifna úr stolti
Esther Kaliassa, innanhúshönnuður og kærasta fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar, segist stolt af seiglu og hugrekki ástmannsins í kjölfar útgáfunnar á bók hans Skuggar í vikunni.

Upplifði að hann myndi aldrei aftur eiga breik í lífinu
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður lýsir stundinni þar sem hann upplifði að hann myndi aldrei eiga breik aftur í lífinu þar sem hann var staddur í Barcelona í Katalóníu árið 2021. Hann segir stundina hafa verið sína erfiðustu frá því hann lagðist inn á geðdeild á Íslandi. Þá ræðir hann þá viðurkenningu sem hann þráði hjá konum.

Sölvi varpar ljósi á sína dýpstu skugga
Sölvi Tryggvason hlaðvarpsstjórnandi og fyrirlesari hefur skrifað bók. Sögur útgáfa gefa út bókina og boða til útgáfuteitis í Pennanum Eymundsson á Skólavörðustíg á miðvikudag.

Þrjú mál á hendur Sölva felld niður
Lögregla hefur hætt rannsókn í þremur málum sem jafnmargar konur höfðuðu gegn fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni og sökuðu um ofbeldi. Tvö og hálft ár er liðið síðan hann fór í umtalað viðtal í eigin hlaðvarpsþætti eftir útbreidda slúðursögu um að hafa gengið í skrokk á vændiskonu. Sagan átti ekki við rök að styðjast.

Hvað gerði Sölvi Tryggva?
Fyrir skömmu kom út grein sem hélt því fram að Sölvi Tryggvason, sem var ásakaður um að hafa beitt vændiskonu ofbeldi, hafi verið sakaður um glæp sem annar maður framdi. Þetta segir Mannlíf hafa verið staðfest af lögreglunni. Miðað við samfélagslega spennustigið sem fylgdi ásökununum fyrir rúmu ári er vægast sagt áhugavert að fylgjast með látlausu viðbrögðunum sem fylgja þessum fréttum.

Sölvi Tryggvason snýr aftur með fjóra þætti
Fjórir nýir þættir af hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva eru komnir á áskriftarsíðu Sölva sem sett var í loftið nýlega. Sölvi hefur ekki birt nýjan þátt síðan tvær konur sökuðu hann um ofbeldi í maí á síðasta ári.

Krummi og Hermann biðja Sölva líka um að birta ekki viðtölin
Hermann Hreiðarsson knattspyrnukappi og Krummi í Mínus hafa óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við þá fyrr á árinu verði ekki birt. Fréttastofa greindi frá því fyrr í kvöld að Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður hefði óskað eftir því sama.

Bað um að viðtal Sölva við sig yrði ekki birt
Bogi Ágústsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu, hefur óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við hann fyrr á árinu verði ekki birt. Sölvi hyggst fara með hlaðvarp sitt af stað að nýju innan skamms, en hann dró sig úr sviðsljósinu fyrr á þessu ári þegar fram komu ásakanir á hendur Sölva um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur konum.

Sölvi Tryggva snýr aftur með hlaðvarp sitt
Sölvi Tryggvason, sem rak um skeið langvinsælasta hlaðvarp landsins, mun taka upp þráðinn þar sem frá var horfið á nýju ári. Þetta er samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis.

Tveir úr myndbandinu viðurkenna að hafa farið yfir mörk
Magnús Sigurbjörnsson og Pálmar Ragnarsson segjast ýmist hafa eða mjög líklega hafa farið yfir mörk kvenna í lífi sínu. Magnús og Pálmar voru á meðal þeirra sem stigu fram í myndbandinu „Ég trúi“ sem birt var í gær til stuðnings þolendum ofbeldis.

Fjarlægja „Ég trúi“ myndbandið og ráða ráðum sínum
Myndband sem ber yfirskriftina „Ég trúi“ og sett var í loftið af stjórnendum hlaðvarpsþáttarins Eigin konur hefur verið tekið tímabundið úr birtingu. Annar þáttastjórnandinn segir leiðinlegt mál hafa komið upp sem tengist einstaklingi í myndbandinu. Boðskapurinn breytist þó ekki. Trúa eigi þolendum.

Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar fjarlægð
Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar hafa verið fjarlægð af hlaðvarpsveitum og YouTube-rás hlaðvarpsstjórnandans, eftir að beiðni þess efnis barst stafrænu auglýsingastofunni KIWI.

Störf Sögu Ýrar „mjög óvanaleg hagsmunagæsla“
Lögmannafélag Íslands mun óska eftir upplýsingum um störf Sögu Ýrar Jónsdóttur lögmanns fyrir Sölva Tryggvason fjölmiðlamann. Félagið hefur eftirlitsskyldu og formaður þess telur framferði Sögu óvanalegt.

Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis
Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir, annar eigandi veitingastaðarins Vefjunnar, segir fólk búið að dauðadæma fyrirtækið vegna ummæla sem Reynir Bergmann, hinn eigandi Vefjunnar og barnsfaðir hennar, lét falla fyrir helgi um mál Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns.

Saga Ýrr segir sig frá máli Sölva Tryggvasonar
Saga Ýrr Jónsdóttir hefur sagt sig frá máli Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns, sem hefur verið kærður fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Lögmaðurinn segir sig frá málinu vegna hagsmunaárekstrar, sem hún segist hafa frétt fyrst af á fimmtudaginn.

„Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva
Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi.

Lögmaður Sölva segir málið komið í réttan farveg
„Það er auðvitað komið fram núna að það séu komnar kærur og það er auðvitað bara rétti farvegurinn. Þar getur hann tekið til varna,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns.

Tvær konur hafa tilkynnt Sölva til lögreglu vegna meints ofbeldis
Tvær konur hafa stigið fram og sagt frá meintu ofbeldi sem þær hafi verið beittar af Sölva Tryggvasyni, dagskrárgerðarmanni. Þær hafa báðar leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis.

Simmi Vill grét með Sölva: „Hvað er að okkur?“
Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður segir að mál Sölva Tryggvasonar eigi að fá fólk til að hugsa og kveðst vera hrærður eftir að hafa horft á þátt Sölva frá því í gær.

Sölvi brotnar algerlega saman í eigin hlaðvarpsþætti um sögusagnirnar
„Ég sendi frá mér þessa yfirlýsingu í gær, en mér fannst eins og ég yrði að tjá mig eitthvað meira, einfaldlega af því að mér líður bara enn þá ofboðslega illa.“

Hannes ráðleggur Sölva að gleyma þessu með Gróusögurnar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er meðal fjölmargra sem lýsir yfir stuðningi við Sölva Tryggvason fjölmiðlamann en bendir honum á að láta rætnar kjaftasögurnar sem vind um eyru þjóta.

Sölvi segir sögurnar þvætting frá upphafi til enda
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur tjáð sig á samfélagsmiðlum um sögusagnir sem gengið hafa um hann undanfarna daga. Hann segir þær enga stoð eiga í raunveruleikanum og birtir upplýsingar úr málaskrá lögreglu sem sýna að lögregla hefur engin afskipti haft af honum undanfarnar vikur.