
Ævar Harðarson

Að þétta og þróa byggð í Hlíðunum
Senn fer að ljúka kynningu á tillögum að nýju hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi (Holt og Norðurmýri), Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi. Þessi kynning hófst 16. nóvember á síðasta ári og er áætlað að henni ljúki fyrir lok janúar.

Bílastæðum breytt í grænt torg
Hvernig er hægt að gera Háteigshverfi (Holt og Norðurmýri), Hlíðarhverfi og Öskjuhlíðarhverfi enn betri með nýju hverfisskipulagi? Þín ráð, kæri lesandi, geta haft áhrif á hvernig til tekst, ef þú skoðar tillögurnar sem liggja nú frammi til kynningar og skilar inn þínum ábendingum.

Hvernig vill fullorðna fólkið hafa Laugardalinn?
Kæru íbúar í Laugardal. Viljið þið taka þátt í netkönnun um hvernig hægt er að gera borgarhlutann ykkar enn betri? Netkönnunin er hluti af hluti af hugmynda- og upplýsingaöflun vegna vinnu við hverfisskipulag í ykkar borgarhluta, sem nær til hverfanna Laugarnes, Langholt og Voga.

Bíllaus Laugardalur og fleiri hugmyndir
Á að gera Laugardalinn bíllausan? Hvernig á að nota gömlu stúkuna við Laugardalslaug og tengd mannvirki? Er til dæmis pláss fyrir bókasafn þar? Á að breyta syðsta hluta af bílastæðunum við Laugardalsvöll í grænt svæði?

Íbúar í nágrenni Laugardals, nú er komið að ykkur
Vinna við hverfisskipulag fyrir Laugarnes-, Langholts- og Vogahverfi (borgarhluta 4) er að hefjast. Fyrir utan forsendur aðalskipulags Reykjavíkur 2040 byrjum við hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar með autt blað.

Miklubrautarstokkur og nýbyggingar við götuna. Hvað finnst þér?
Reykjavíkurborg kallar nú eftir viðbrögðum og athugasemdum við stór skipulagsverkefni sem eru í gangi í borginni. Samráð skiptir okkur miklu máli og við erum sífellt að leita leiða til að fá fram sjónarmið sem flestra. Við viljum mæta þörfum íbúa, í því felst meðal annars að sjá fyrir framtíðarþarfir og hvernig þær verða leystar.

Netsamráð um vinnutillögur við Bústaðaveg og Miklubraut
Líflegar umræður hafa verið verið um vinnutillögur hverfisskipulags Háaleitis og Bústaða sem hafin var kynning á nýlega. Ekki síst um tillögur að uppbyggingu við gatnamót Miklubautar-Háaleitisbrautar og meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ.

Ný hæð borgar fyrir lyftu og viðhald
Í kynningu sem var að hefjast á hugmyndum og tillögum að hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi eru sýndar hugmyndir um að heimila húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa að bæta við íbúðarhæð samtímis því sem bætt er við lyftu.

Betri hljóðvist við Miklubraut
Með því að byggja á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar eins og vinnutillögur hverfisskipulags sýna má bæta hljóðvist verulega fyrir íbúa á svæðinu.

Ný íbúðabyggð við Bústaðaveg
Meðal vinnutillagna í hverfisskipulagi fyrir Háaleiti og Bústaði er að leyfa byggingu húsa meðfram Bústaðavegi en þar er mikið vannýtt land sem í dag fer í samsíða götur, umferðareyjur og bílastæði.