Skoðun

Fréttamynd

Loks fulltrúi fólksins í ríkisstjórn

Röðun í ráðuneyti nýju stjórnarinnar er Samfylkingunni til sóma. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki eins lýðræðislegur. Það hefði verið flokknum til framdráttar að gera Guðfinnu að ráðherra án þess að vitað sé hvers er að vænta af henni eða Guðlaugi.

Skoðun
Fréttamynd

Enn um Jesúm og heimsendi

Fyrir skemmstu birtist á þessum síðum greinin „Viðheldur fáfræði kristninni?“ þar sem ég benti m.a. á þá staðreynd að stór hluti fræðimanna í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafi frá því bók Alberts Schweitzer „Leitin að hinum sögulega Jesú“ kom út árið 1906 litið á Jesúm sem heimsendaspámann.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs

Sæll Gunnar. Hversu lengi ætlar þú að skella skollaeyrum við óánægju íbúa á Kársnesi vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á svæðinu? Mér brá þegar ég las svar þitt í Fréttablaðinu (21.júli 07) við áhyggjum íbúa hér.

Skoðun
Fréttamynd

Engin hækkun á lífeyri aldraðra enn

Stjórnmálaflokkarnir lofuðu eldri borgurum margvíslegum kjarabótum fyrir kosningar. Engin hækkun hefur enn orðið á lífeyri aldraðra frá almannatryggingum. Það eina,sem hefur gerst í málefnum aldraðra er að þeir,sem eru 70 ára og eldri, geta nú farið út á vinnumarkaðinn án þess að sæta skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna.

Skoðun
Fréttamynd

Ritstjórinn og barrtrén

Þorsteinn Pálsson ritstjóri Fréttablaðsins birti leiðara í blaðinu 16. júlí síðastliðinn undir yfirskriftinni Flórufasismi. Í greininni reiðir ritstjórinn hátt til höggs gegn þeirri stefnu Þingvallanefndar að takmarka á Þingvöllum útbreiðslu barrtrjáa sem þar var plantað á öldinni sem leið.

Skoðun
Fréttamynd

Að verja vondan málstað

Fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá könnunum ASÍ á þróun matarverðs í helstu verslanakeðjum landsins. Kannanirnar hafa sýnt að á tímabilinu frá því í desember 2006 til maí 2007 lækkaði verðið um 4,2 til 6,7% í lágvöruverðsverslunum og 1,6 til 6,4% í öðrum verslanakeðjum.

Skoðun
Fréttamynd

Brýnt er að fjölga líffæragjöfum

Talsverð umfjöllun hefur verið um líffæragjafir í fjölmiðlum upp á síðkastið og er það fagnaðarefni því þessu mikilvæga málefni hefur verið of lítill gaumur gefinn. Í umræðunni að undanförnu hefur örlað á þeim misskilningi að Íslendingar séu tregari til að gefa líffæri en flestar aðrar þjóðir.

Skoðun
Fréttamynd

Er grauturinn lygi eða fáfræði?

Ónákvæmni í umræðu um matarverð á Íslandi er orðin þjóðaríþrótt. Með jöfnu millibili skapast umræða um þá augljósu staðreynd að matvöruverð á Íslandi er hátt.

Skoðun
Fréttamynd

Framtíðarhorfur í sjávarútvegi

Miklar umræður og harðar deilur hafa staðið um stjórnkerfi fiskveiða eftir að kvótakerfið var innleitt árið 1984. Er vandséð að kerfið hafi almennt skilað þeim meginmarkmiðum sínum að fiskistofnar byggðust upp og skiluðu hámarksafrakstri, sérstaklega þorskstofninn.

Skoðun
Fréttamynd

Ráðherra stóreykur hættuna

Í tilkynningu sem Neytendastofa birti síðastliðin vetur stóð m.a.: „Neytendastofa benti utanríkisráðuneytinu á síðasta ári á að raforkukerfi, raflagnir og rafbúnaður á varnarsvæðinu væru ekki í samræmi við íslensk lög og reglur á rafmagnssviði. Í framhaldi af því var haldinn sameiginlegur fundur með Þróunarfélaginu, utanríkisráðuneytinu og Neytendastofu.

Skoðun
Fréttamynd

Rafmagnað andrúmsloft

Vissulega var hægt að segja að pólitískt andrúmsloft í landinu hafi verið rafmagnað þegar Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra kynnti ákvörðun sína og ríkisstjórnar um að þorskkvóti fyrir næsta fiskveiðiár yrði skorinn niður um þriðjung.

Skoðun
Fréttamynd

Að ákæra, dæma og lífláta í beinni útsendingu

Fjömiðlamönnunum Jóhannesi Kr. Kristjánssyni og Kristni Hrafnssyni eru það nokkur vonbrigði að undirritaður skuli hafa gagnrýnt efnistök í Kompásþætti sem sýndur var 6. maí s.l. og fréttaumfjöllun í kjölfar þáttarins í grein sem birtist í Fiskifréttum. Lýsa þeir þessu yfir í grein sem birtist 18. júní.

Skoðun
Fréttamynd

Það sem koma skal?

Ég var í Darfur fyrir 20 árum. Flóttafólk, hungursneyð, börn á vergangi og mæður sem enga hjálp sér gátu veitt, bændur þeirra á hrakningi undan vígasveitum. Hljómar kunnuglega? Reyndar eru sögurnar frá Darfur núna miklu verri. Hópnauðganir, fjöldamorð - og ennþá er hungursneyð, stríð, og vanmáttugt alþjóðasamfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Víða rata gullasnarnir

Enginn múr er svo hár að asni, klyfjaður gulli, komist ekki yfir," er haft eftir Filipposi II Makedóníukonungi enda lágu nærliggjandi borgríki marflöt fyrir honum. Ekki var herkænskan minni hjá syninum. Sá lagði fleiri lönd að fótum sér en flestir enda enginn annar en Alexander mikli.

Skoðun
Fréttamynd

Ál – ekkert mál fyrir Jón og Pál

Daglega dynja í fréttatímum ljósvakamiðlanna jafnvel margar fréttir í röð um orku- og álmál, t.d. fjórar af fyrstu fréttunum í kvöldfréttatíma útvarps 4. júlí: Tugir rafvirkja réttindalausir á Reyðarfirði, – Alcan, Norsk Hydro og netþjónabú keppa um álverslóðir á Keilisnesi og við Þorlákshöfn, – nýjar sviptingar og átök um Hitaveitu Suðurnesja, – njósnir Alcan um Hafnfirðinga. Hafi fólk haldið að Samfylkingin með Fagra Ísland hægði eitthvað á stóriðjuhraðlestinni sýnir stanslaus fréttastraumur af þeim vettvangi annað.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er til ráða?

Skoðanir á því, hvað beri að gera til að stemma stigu við ofsaakstri eru misjafnar. Það fyrsta sem kemur í hug margra er að enn þurfi að herða refsingar.

Skoðun
Fréttamynd

Að umreikna gráður í krónur

Hagfræðingarnir í HÍ eru að eigin mati gríðarlega klókir í líffræði og þá munar ekkert um að breyta mögulegu hækkuðu hitastigi andrúmsloftsins um örfáar gráður í framtíðinni í hundruða milljóna tap fyrir þjóðarbúið. Árið 2004 reiknaði Ragnar Árnason að þjóðarbúið tapaði 800 milljónum króna á gróðurhúsaáhrifum sem hækka hitastigið einhvern tímann í framtíðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Allir geta sigrað

Þann 18. ágúst verður hlaupið til góðs og landsmenn hafa möguleika á að slá tvær flugur í einu höggi- fá betri líðan með hreyfingu og samtímis rétta hjálparhönd til þeirra sem minna mega sín. Hjálparstarf kirkjunnar fagnar þessu göfuga framtaki Glitnis að heita á hlaupara og styrkja þannig starf frjálsra félagssamtaka á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Akstur er dauðans alvara

Fyrstu mánuðir þessa árs lofa ekki góðu ef skoðuð er þróun alvarlegra umferðarslysa sem hafa tvöfaldast miðað við sama tíma í fyrra. Nú er verið að leggja síðustu hönd á skýrlu Rannsóknarnefndar umferðarslysa og hef ég fyrir satt að fjölmörg dauðaslys í umferðinni á síðasta ári megi beinlínis rekja til ofsaaksturs eða of mikils hraða miðað við aðstæður.

Skoðun
Fréttamynd

Sálrænt ástand þeirra sem meiða og deyða dýr

Eðlilega fyllist fólk óhug þegar það heyrir fréttir um að ungmenni geri sér að leik að meiða og deyða dýr. Maður veltir fyrir sér hvernig andleg líðan þeirra er sem þetta gera? Hefur gerandinn e.t.v. verið meiddur sjálfur, er hann jafnvel haldinn miklum sársauka, reiði og biturleika? Hver svo sem orsökin er, virðist ljóst að eitthvað hefur farið úrskeiðis. Hvað nákvæmlega, vitum við ekki fyrr en málefni hans og fjölskylduaðstæður hafa verið skoðaðar.

Skoðun
Fréttamynd

Ósamrýmanleg markmið

Í ljósi síbreytilegra lífshátta mannsins, aukinnar tækni og getu hafa kröfur efnahagslífsins til náttúrunnar stöðugt verið að breytast. Stjórn náttúruauðlinda er flókið og umfangsmikið verkefni. Markmiðin geta verið mismunandi – allt frá friðun til hámarksnýtingar. Núverandi stjórnkerfi fiskveiða hlýtur því að koma til gagngerar endurskoðunar í ljósi niðurstaðna Hafrannsóknastofnunar um stöðu þorskstofnsins.

Skoðun
Fréttamynd

Einkavæðing í menntastefnu?

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um háskólastigið sem kom út nýlega er um margt merkileg. Ánægjulegt er að sjá hversu vel Háskóli Íslands kemur út þrátt fyrir skerta samkeppnisstöðu. Aftur á móti er áhyggjuefni hversu mikill aðstöðumunur er á einkareknum háskólum og opinberum. Að einkareknir háskólar skuli fá sama ríkisframlag og þeir opinberu hefur skapað óæskilegan aðstöðumun og veikt samkeppnisstöðu opinberu háskólanna af skýrslunni að dæma.

Skoðun
Fréttamynd

Skólagjöld draga ekki úr brottfalli

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um háskólastigið hér á landi hefur vakið töluverða athygli. Margt merkilegt kemur fram í skýrslunni, t.d. er enn og aftur staðfest að Háskóli Íslands stendur gríðarlega vel miðað við það takmarkaða fjármagn sem skólinn hefur til umráða.

Skoðun
Fréttamynd

Yfirgangur yfirvaldsins

Það er hreint með ólíkindum hversu langt kjörnir (og "næstum" því kjörnir) fulltrúar borgarinnar ganga í áróðursherferð sinni gagnvart íbúum í nágrenni og sambýli við Njálsgötu 74. Sakirnar eru að hafa lýst andstöðu sinni við því að þar, í fjölbýlishúsalengju verði rekin stofnun (sem borgin kallar heimili) fyrir heimilislausa karla í virkri áfengis- og vímuefnanotkun.

Skoðun
Fréttamynd

Gaddavírsvæðingin

Ef landgræðslan þyrfti ekki að eyða stórum hluta af því fé sem hún fær úthlutað frá ríkinu, í endalausar girðingar þá hefði hún miklu meira fé til ráðstöfunar í sjálfa uppgræðslu landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Hvert fara iðgjöldin?

„Hvar verður þú að vinna í sumar?“ heyrist óma á göngum skólanna á vorin. Laun eru mikið rædd og krónutölur bornar saman. Það er auðvitað mismunandi hvernig ráðstafa á sumarhýrunni. Sumir ætla að nota hana í sólarlandaferð en aðrir til framfærslu næsta vetrar, en það á við um alla launamenn – óháð aldri.

Skoðun
Fréttamynd

Menning og morðvopn

Á sunnudaginn var þjóðhátíðardeginum fagnað um land allt. Í Reykjavík voru hátíðarhöldin með hefðbundnum hætti. Þennan dag var þó einnig boðið upp á annars konar afþreyingu í höfnum borgarinnar. Þar lágu við festar þrjú NATO-herskip, sem þótti tilhlýðilegt að sýna almenningi á 17. júní.

Skoðun
Fréttamynd

Að byggja upp þorskstofninn

Það er alltaf hollt að velta fyrir sér grundvallarforsendum ef hlutirnir virðast ekki virka. Ef það kviknar t.d. ekki á neinni ljósaperu í húsinu þá er skynsamlegt að kanna hvort öryggið sé farið eða athuga hvort rafmagnið hafi slegið út í stað þess að hamast á öllum rofum tímunum saman.

Skoðun
Fréttamynd

Rótlaus heilsugæsla

Undanfarin ár hefur rekstrarklúður heilsugæslu og félagsþjónustu ítrekað gert almenningi ljóst hve nauðsynlegt er að vanda val stjórnenda. Verst er að ráðherrar Framsóknarflokksins stjórna ráðuneytum félags- og heilbrigðismála. Það kemur niður á starfsfólki þessara mikilvægu þjónustugreina og skjólstæðingum þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Á þjóðhátíðardegi

Ég vil byrja á því að óska lesendum Fréttablaðsins gleðilegs þjóðhátíðardags. Þennan dag gleðjumst við, borðum þessar blessuðu pylsur, blásum í blöðrur, förum í skrúðgöngur og skemmtum okkur fram á nótt.

Skoðun