Landslið karla í fótbolta
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 38 ›
Svona var fundur Íslands fyrir slaginn við stjörnur Portúgals Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi Íslands fyrir leikinn við stórlið Portúgals í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 19.6.2023 15:00
Blaðamannafundur Åge Hareide: Svekktur en ekki leiður Þjálfari Íslands, Åge Hareide, var ánægður með frammistöðuna í kvöld en vitaskuld reiður yfir því að tapa leiknum gegn Slóvakíu og þá kannski sérstaklega hvernig sigurmarkið gerðist. Leiknum lauk með 1-2 tapi en þetta var þriðji leikur Íslands í riðlinum og setur það stórt strik í reikninginn við að komast upp úr riðlinum. Fótbolti 17.6.2023 23:00
Åge um Guðlaug: Með mjög mikinn karakter Á blaðamannafundi eftir leik Íslands og Slóvakíu fyrr í kvöld var þjálfari liðsins, Åge Hareide, spurður út í frammistöðu Guðlaugs Victors Pálssonar en hann missti stjúpföður sinn á dögunum. Guðlaugur átti mjög góðan leik og mátti ekki sjá á honum að hafa orðið fyrir áfalli skömmu fyrir leikinn. Fótbolti 17.6.2023 22:23
Albert: „Hefði átt að klára færin mín betur“ Albert Guðmundsson lék í fremstu víglínu hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Slóvakíu í undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli í kvöld. Albert við iðinn við að koma sér í góðar stöður og færi en náði ekki að reka smiðshöggið á þær sóknir. Fótbolti 17.6.2023 22:07
„Áttum aldrei að tapa þessum leik“ „Menn eru bara gríðarlega svekktir. Það er erfitt að kyngja þessu tapi, það er ekki spurning,“ sagði markaskorari Íslands, Alfreð Finnbogason, eftir svekkjandi 2-1 tap liðsins gegn Slóvakíu í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 22:03
Rúnar Alex: „Seinna markið alger grís“ Rúnar Alex Rúnarsson sem stóð á milli stanganna á marki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta segir margt jákvætt hægt að taka frá leik liðsins gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli í kvöld þrátt fyrir svekkjandi 2-1 tap. Fótbolti 17.6.2023 21:45
„Að mínu viti rífur hann mig niður“ Alfons Sampsted, leikmaður íslenska landsliðsins, var að vonum svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Slóvakíu í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 21:43
Einkunnir Íslands: Guðlaugur bestur í svekkjandi tapi Ísland tapaði 2-1 fyrir Slóvakíu í fyrsta leik karlalandsliðsins undir stjórn Age Hareide í undankeppni EM 2024 í fótbolta. Leikmönnum liðsins gekk misvel að fóta sig í svekkjandi tapi. Fótbolti 17.6.2023 21:00
Twitter eftir leik Íslands gegn Slóvakíu: „Framför þrátt fyrir tap“ Ísland mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Slóvakíu í undankeppni EM í knattspyrnu í kvöld. Eins og svo oft áður höfðu netverjar ýmislegt um leikinn að segja á samfélagsmiðlinum Twitter og mátti skynja almenna jákvæðni þrátt fyrir tap. Fótbolti 17.6.2023 20:44
Umfjöllun: Ísland - Slóvakía 1-2 | Skrípamark gerði leiðina á EM torfæra Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði fyrir Slóvakíu, 1-2, í J-riðli undankeppni EM 2024 í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Íslands undir stjórn Åge Hareide. Fótbolti 17.6.2023 16:30
Aron Einar meiddist í upphitun og verður ekki með Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, spilar ekki leik dagsins við Slóvakíu í undankeppni EM 2024. Hann var upprunalega skráður í byrjunarliðið en meiðsli gerðu vart við sig í upphitun. Fótbolti 17.6.2023 18:41
Leikmenn íslenska liðsins bera sorgarbönd í kvöld Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta verða með sorgarbönd þegar liðið mætir Slóvakíu í undankeppni EM 2024 á Laugardalsvellinum í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 18:40
Fyrsta byrjunarlið Åge: Albert og Willum byrja Byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í leiknum mikilvæga við Slóvakíu í undankeppni EM 2024 liggur fyrir. Fótbolti 17.6.2023 17:33
„Ég finn fyrir því bæði á æfingum og inni á hóteli að það er einbeiting“ Bakvörðurinn Alfons Sampsted, leikmaður FC Twente og íslenska landsliðsins, var afar léttur í lundu í spjalli fyrir leikinn en sagði að leikmenn liðsins væru þó almennt mjög einbeittir og fyrirmælin frá Hareide væru skýr. Fótbolti 17.6.2023 13:59
KSÍ keyrir upp þjóðhátíðarstemmingu fyrir leikinn frá kl. 15:00 Leikdag Íslands og Slóvaíku ber uppi á sjálfan þjóðhátíðardaginn, en það verður nóg um að vera við völlinn. KSÍ opnar svokallað „fan zone“ kl. 15:00 þar sem allskonar afþreying verður í boði fyrir unga sem aldna. Fótbolti 17.6.2023 13:31
Rétt yfir tvö þúsund miðar eftir á stórleik kvöldsins Búast má við mikilli stemningu á Laugardalsvelli í kvöld þegar að íslenska karlalandsliðið í fótbolta etur kappi við Slóvakíu í afar mikilvægum leik í undankeppni EM 2024. Fótbolti 17.6.2023 12:45
„Við sjáum alveg hvað við getum gert til að brjóta þá niður, bæði með og án bolta“ Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður D.C. United og íslenska landsliðsins, segir að Åge Hareide sé búinn að undirbúa íslenska hópinn vel fyrir leikinn gegn Slóvakíu og telur að Ísland eigi góða möguleika á að sækja þrjú stig í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 12:05
Ólafur Kristjánsson fékk stjörnu Slóvaka til liðs við sig 2015 Ein stærsta stjarna Slóvaka er miðjumaðurinn Stanislav Lobotka sem varð ítalskur meistari með Napoli á dögunum. Ólafur Kristjánsson þekkir vel til Lobotka en hann fékk leikmanninn til Nordsjælland 2015, þá 21 árs gamlan. Fótbolti 17.6.2023 11:37
„Við verðum að ná í úrslit og förum auðvitað í leikinn til að vinna hann“ Framherjinn Alfreð Finnbogason, leikmaður Lyngby og íslenska landsliðsins, er vel stemmdur fyrir komandi landsliðsverkefni í undankeppni EM. Hann segir alltaf gaman að koma heim til Íslands á sumrin og segir að liðið stefni á sigur í dag. Fótbolti 17.6.2023 11:01
Vonast til að hárið á Hamsik fái fólk á völlinn Landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta vill ekki að Marek Hamsik og Milan Skrniar, tvær af skærustu stjörnum Slóvakíu, spili leikinn gegn Íslandi bara því þeir séu ekki í sínu besta standi. Hann segir þó að Hamsik geti trekkt fólk að. Fótbolti 16.6.2023 13:23
Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Slóvakíu Blaðamannafundur fyrir leik Íslands og Slóvakíu í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu fór fram klukkan 12.45 í Laugardal í dag. Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum og sjá má upptöku af fundinum hér að neðan. Fótbolti 16.6.2023 12:16
Arnór meiddur og ekki með Arnór Sigurðsson hefur þurft að draga sig út úr landsliðshópnum í fótbolta og verður ekki með í leikjunum gegn Slóvakíu og Portúgal í undankeppni EM 2024. Fótbolti 16.6.2023 13:01
Lars horfði á lokaæfinguna fyrir Slóvakíuleikinn Lars Lagerbäck var á Laugardalsvelli í hádeginu og fylgdist með síðustu æfingu íslenska karlalandsliðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2024. Fótbolti 16.6.2023 12:21
Þjálfari Slóvakíu segir Ísland með sterka liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik Francesco Calzona, þjálfari Slóvakíu, er spenntur fyrir leik Íslands og Slóvakíu þann 17. júní. Hann segir íslenska liðið spila sem eina liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik. Fótbolti 16.6.2023 09:01
Lagerbäck búinn að ræða við Gylfa Þór „Ef hann kýs að koma aftur myndi það hafa ótrúlega jákvæð áhrif á landsliðið,“ segir Lars Lagerbäck, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, um möguleikann á því að Gylfi Þór Sigurðsson snúi aftur í liðið. Fótbolti 16.6.2023 08:30
Lagerbäck: „Afar góð ákvörðun hjá KSÍ að ráða Åge til starfa“ Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, er spenntur fyrir stjórnartíð Åge Hareide með liðið. Aðstæður nú séu að mörgu leiti ansi svipaðar þeim sem voru til staðar þegar Lars tók við liðinu á sínum tíma. Fótbolti 16.6.2023 07:00
„Auðvitað er þetta gríðarlega mikilvægur leikur í riðlinum“ Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður OH Leuven í Belgíu og íslenska landsliðsins, segist fullur tilhlökkunar fyrir komandi landsliðverkefni í undankeppni EM. Ísland mætir Slóvakíu á sjálfan þjóðarhátíðardaginn, 17. júní kl. 18:45. Fótbolti 15.6.2023 20:31
„Áttum okkur á að leikurinn á laugardag er mjög mikilvægur upp á framhaldið“ Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er spenntur fyrir leik Íslands og Slóvakíu á Laugardalsvelli á laugardaginn kemur. Hann segir mikilvægt að einbeita sér fyrst að þeim leik áður en horft til leiksins gegn Portúgal þremur dögum síðar. Fótbolti 15.6.2023 14:00
„Ekkert vandamál fyrir mig, sama hvaða stöðu hann vill nota mig í“ Jóhann Berg Guðmundsson fagnar aukinni stemningu í kringum landsliðið eftir erfið undanfarin ár. Hann er hluti af landsliðshópnum sem undirbýr sig fyrir komandi leiki í undankeppni EM. Fótbolti 15.6.2023 07:00
„Þetta er menningin þeirra og maður þarf að komast hratt inn í hana“ „Það er táragas og gassprengjur frá Lögreglunni á vellinum,“ segir Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Panathinaikos í Grikklandi. Hann segir stuðningsmenn þar ansi líflega. Hann undirbýr sig nú fyrir leikina mikilvægu með íslenska landsliðinu og segir Åge Hareide, landsliðsþjálfara vera á réttri leið með liðið. Fótbolti 14.6.2023 21:58