
Anton Guðmundsson

Verður Frelsið fullveldinu að bráð?
Viðreisn hefur ítrekað talað fyrir frelsi og lýst sig sem flokkur sem berst fyrir opnu, frjálsu þjóðfélagi. Flokkurinn hefur þó jafnframt sett Evrópusambandsaðild á oddinn í sínum málflutningi og telur hana nauðsynlega fyrir framtíð Íslands. En hver er raunveruleg merking frelsis í þeirra huga? Getur Ísland verið frjálst og fullvalda innan Evrópusambandsins, eða felst í þeirri stefnu ákveðin mótsögn?

Skattahækkanir, miðstýring og ESB-þráhyggja
Eitt helsta einkenni núverandi ríkisstjórnar undir forystu Kristrúnar Frostadóttur er sterk tilhneiging til miðstýringar. Það er áhyggjuefni hvernig ríkisafskipti eru að aukast á mörgum sviðum án þess að nægur sveigjanleiki sé til staðar fyrir frumkvæði í atvinnulífinu og einkarekstri. Sósíaldemókratísk stefna leggur of oft áherslu á lausnir þar sem ríkið á að sjá um allt, frekar en að skapa skilyrði fyrir heilbrigða samkeppni og sjálfbærar lausnir.

Frelsi til sölu
Með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar hefur umræðan um inngöngu Íslands í Evrópusambandið (ESB) aftur færst í brennidepil. Viðreisn, sem hefur lengi gert ESB-aðild áberandi málstað sinn, hefur nú fengið tækifæri til áhrifa innan þessarar samsteypu.

Að bera virðingu fyrir sjálfstæðisbaráttunni
Sjálfstæðisbarátta Íslendinga er einn helsti hornsteinn íslenskrar sögu. Áratugalöng barátta fyrir sjálfsforræði á 19. og 20. öld tryggði fullveldi árið 1918 og varð hápunktur í stofnun lýðveldisins árið 1944. Þessi barátta var ekki aðeins tákn um sjálfstæði þjóðarinnar, heldur líka grundvöllur fyrir lýðræði, menningu og frelsi. Þjóðin stóð saman í þeirri trú að Íslendingar ættu að vera herrar í eigin landi, ráðstafa eigin auðlindum og ákvarða eigin framtíð.

Framsókn í 108 ár!
Í dag fögnum við 108 ára afmæli Framsóknarflokksins!

Fullveldinu er fórnað með aðild að Evrópusambandinu
Alþingiskosningar fara fram þann 30. nóvember 2024. Þá er mikilvægt að staldra við, íhuga vandlega og spyrja: Hvert ætlum við að stefna? Og hvert erum við að fara?

Áform um einkavæðingu á vatnsveitu Sandgerðis
Í nútímasamfélagi er eitt mikilvægasta verkefni okkar að tryggja jafnan aðgang að grunninnviðum eins og vatni og rafmagni. Nú liggja fyrir áform um einkavæðingu á vatnsveitu Sandgerðis í Suðurnesjabæ, áform sem geta haft víðtækar og ófyrirséðar afleiðingar fyrir íbúa.

Hvað verður um íslenska þjóðmenningu?
Íslensk þjóðmenning er einstök og hefur mótast af sögu landsins, náttúru og samfélagi í meira en eitt þúsund ár. Hún er byggð á arfleifð frá landnámsmönnum, menningararfleifð miðalda, og hinum sterku tengslum þjóðarinnar við náttúruna og sjálfstæði hennar.

Framsóknarflokkurinn tryggir heilbrigðisþjónustu í Suðurnesjabæ
Að ná markmiðum sínum er mjög stór sigurÍ sveitarstjórnarkosningunum 2022 setti B-listi Framsóknar sér skýr markmið um að þrýsta á ríkið að koma á heilbrigðisþjónustu í Suðurnesjabæ. Sveitarfélagið er það stærsta á landinu sem hefur ekki heilsugæslu. Suðurnesjabær, sem er 4.000 manna sveitarfélag sem varð til við sameiningu Sandgerðis og Garðs árið 2018, hefur séð mikla fjölgun íbúa síðustu ár.

Mikilvægi þess að taka húsnæðisliðinn úr neysluvísitölunni
Vísitala neysluverðs (VNV) er ein af mikilvægustu mælieiningum sem notuð er til að meta verðlagsbreytingar á Íslandi. Vísitalan hefur bein áhrif á fjármál heimilanna, til dæmis með því að hafa áhrif á verðtryggðar skuldir og húsnæðislán.

Tækifærin liggja á landsbyggðinni
Samkvæmt nýju tölum Hagstofu Íslands var mannfjöldi á Íslandi 383.726 þann 1. janúar 2024 og hafði íbúum fjölgað um 8.508 frá 1. janúar 2023, eða um 2,3%.

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir stórt framfaraskref í þágu barna
Grunnskóla er ætlað það hlutverk að leggja grunn að virkri þátttöku barna í lýðræðissamfélagi og veita viðeigandi undirbúning og fjölbreytt tækifæri fyrir frekara nám eða störf á vinnumarkaði.

Orkuinnviðum á Suðurnesjum ógnað
Náttúruhamfarir halda uppteknum hætti á Suðurnesjum og telja vísindamenn í raun nýtt tímabil eldsumbrota hafið á svæðinu. Eldgos hófst fimmtudaginn 8.febrúar um kl 6 að morgni.

Orkuinnviðir íslands eiga að vera sameign þjóðarinnar
Hraun hefur nú runnið yfir heitavatnslögnina, svokallaða Njarðvíkuræð fyrir vatn frá Svartsengi að Fitjum. Atburðarásinvar hraðari en nokkur sá fyrir eftir því sem fram kemur hjá Almannavörnum. Nú blasir við gríðarlega alvarlegan skort á heitu vatni, í nokkra daga.

Suðurnes sett í samband – mikilvægara nú sem aldrei fyrr
Nú liggur fyrir að Framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 sé komið í höfn áætlað er að framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 munu hefjast síðsumars, en í vor stendur til að bjóða í út jarðvinnu vegna línulagnarinnar. Þetta varð ljóst eftir úrskurð Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nú í janúar.

Gjörbreytt staða í húsnæðismálum á Suðurnesjum sem kallar á nýja nálgun
Það er erfitt fyrir alla Íslendinga að verða vitni að þeim miklu náttúruhamförum sem orðið hafa í og við Grindavík. Öflugt og samheldið samfélag í fyrirmyndar sveitarfélagi hefur orðið fyrir miklum áföllum sem setur íbúa Grindavíkur í erfiða stöðu.

Framleiðsla á dilkakjöti á Íslandi að hverfa
Árið 2022 var heildarframleiðsla á dilkakjöti um 7.408 tonn. Gert er ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í framleiðslu á þessu ári 2023 og að framleiðslan fari niður í 7.205 tonn.

Mikill kraftur og sókn í Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á Suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið í alls 4.046. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir fimm árum var íbúafjöldinn um 3.400.

Eitt sveitarfélag á Suðurnesjum skilið eftir í heilbrigðismálum
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.011 nú í byrjun þessarar viku.

Ójafn leikur í samkeppni við innflutning
Um þessar mundir eru bændur að fara að sækja fé sitt af fjalli og skila inn til slátrunar. Heilnæmari fæðu er vart að finna í heiminum en íslenskt lambakjöt. Íslenska sauðféð býr við aðstæður sem eru einstakar og þekkjast ekki víðast hvar. Villibráðin sem lifir úti í náttúrunni og drekkur íslenska lindarvatnið. Í landbúnaði hérlendis eru sýklalyf og eiturefni ekki mælanleg.

Fjögur þúsund manna samfélag án heilbrigðisþjónustu
Suðurnesjabær, sem varð til við sameiningu Sandgerðis og Garðs árið 2018, hýsir nú tæplega 4.000 íbúa. Þar er hins vegar ekki um neina heilsugæslu að ræða né hjúkrunarheimili og þurfa því íbúar að leita til annarra sveitarfélaga eftir heilbrigðisþjónustu.

Lýðheilsu fórnað fyrir innflutning
Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs voru flutt inn rúm 200 tonn af úkraínsku kjúklingakjöti til Íslands, íslenskir kjúklingabændur hafa gagnrýnt innflutninginn vegna áhrifa á sölu íslensks kjúklings. Innflutningur á samskonar kjöti frá Úkraínu var í kringum 80 tonn á síðasta ári.

Það er vegið að bændum þessa lands
Öll þekkjum við til íslenskra matarhefða sem fylgt hafa okkur í gegnum tíðina og þjóð okkar í áratugi, eitt það besta sem hægt er að bera á borð á íslenskum heimilum eru íslenskar hreinar afurðir sem aldar eru okkar einstaka landi, þar má nefna sjávarafurðir og afurðir landbúnaðarins.

Vaxtarsvæðið Suðurnes - þjónusta ríkisins þarf að fylgja með
Á Suðurnesjum er íbúafjöldinn nú 31.891 manns þann 1. maí. Þetta gerir 3,0% fjölgun á Suðurnesjum á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. maí 2023 eða 929 manns. Íbúa fjöldinn á svæðinu vex ásmegin.

Jafnræði landsbyggðar – Tryggjum öllum grunnheilbrigðisþjónustu í heimabyggð
Heilbrigðisstofnun Suðurlands rekur öfluga og blómlega starfsemi um allt Suðurland og heldur úti níu starfsstöðvum víðs vegar um Suðurlandið. aðalstarfsemi stofnunarinnar er á Selfossi þar sem sjúkrahúsið er staðsett.

Heilbrigðismál í Suðurnesjabæ
Í Suðurnesjabæ eru byggðakjarnarnir Sandgerði og Garður. Á árum áður voru heilsugæslustöðvar á báðum stöðum en þeim var lokað. Bæjaryfirvöld hafa unnið að málinu í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einnig hafa átt sér stað samtöl við heilbrigðisráðherra og þingmenn kjördæmisins.

Tekjur sveitarfélaga, ný hugsun til framtíðar
Um tekjustofna sveitarfélaga gilda ákvæði laga nr. 4/1995, tekjustofnalögin. Samkvæmt þeim eru tekjustofnar sveitarfélaga útsvar, fasteignaskattur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Tryggjum fæðuöryggi þjóðar
Nær sjaldan í seinni tíð hefur fæðuöryggi skipt okkur íslendinga meira máli eins og nú, ófriður í evrópu vegur þar þungt í umræðunni, víða eru menn farnir að finna fyrir vöruskorti og hækkandi verði á allri hrávöru.