
HM 2030 í fótbolta

FIFA gæti fjölgað liðum í 64 á HM
Möguleikar Íslands á að komast aftur á HM í fótbolta gætu aukist ef hugmyndir um enn frekari stækkun mótsins ganga eftir. Til greina kemur að fjölga þátttökuþjóðum í 64 fyrir HM 2030.

Segir Ronaldo byrja á nýjum matarkúr svo hann geti spilað á HM 2030
Cristiano Ronaldo er markahæsti leikmaður allra tíma í fótboltanum og hann er hvergi nærri hættur ef marka má fyrrum liðsfélaga hans hjá Manchester United og portúgalska landsliðinu.

HM 2034 verður í Sádi Arabíu
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í dag hvar HM karla í knattspyrnu fer fram árin 2030 og 2034.

Norðmenn mótmæla meingölluðum starfsháttum FIFA
Norska knattspyrnusambandið ætlar ekki að styðja úthlutun Alþjóða Knattspyrnusambandsins á næstu tveimur heimsmeistaramótum karla en það verður gefið út formlega á morgun hvar mótin fara fram.

Marokkó byggir stærsta knattspyrnuleikvang heims fyrir HM 2030
Marokkó hefur kynnt áform um hönnun og smíði nýs leikvangs við höfuðborgina Casablanca sem á að taka 115.000 manns í sæti og hýsa úrslitaleikinn á HM 2030.

Þýska landsliðið yfirgefur Adidas eftir 77 ára samstarf og mun klæðast Nike
Þýsku landsliðin í knattspyrnu kvenna og karla munu frá og með 2027 ekki lengur leika í fatnaði þýska íþróttavöru- og tískurisans Adidas. Samningur náðist við bandaríska fyrirtækið Nike til ársins 2034.

Gagnrýnir forseta FIFA fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð í bakherbergjum
Hin röggsama Lise Klavenes frá Noregi er vön því að láta forystumenn Alþjóða knattspyrnusambandsins heyra það og hún er mjög ósátt með fyrirkomulagið við valið á næstu gestgjöfum HM.

Blatter segir það fáránlegt að hafa HM í fótbolta í sex löndum
Fyrrum forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins er einn af þeim sem gagnrýnir harðlega fyrirkomulagið á heimsmeistaramótinu í fótbolta árið 2030.

Halda HM í fótbolta saman en rífast um að fá úrslitaleikinn
Í vikunni var tilkynnt að Spánn, Marokkó og Portúgal muni halda saman heimsmeistaramót karla í fótbolta árið 2030. Þjóðirnar þurfa því að vinna vel saman en strax má lesa fréttir um ósætti þeirra á milli.

HM 2030 verður í þremur heimsálfum
Heimsmeistaramót karla í fótbolta 2030 fer fram í samtals sex löndum í þremur heimsálfum.