Rán í Michelsen 2011

Fréttamynd

Ó­ljóst hver fær milljónina - mun borga með bros á vör

"Þetta hefði ekki bara verið mikið tap, heldur hræðilegt ef málið hefði verið óupplýst um ókomna tíð,“ segir sonur Franks Michelesen, úrsmiðs, Róbert, en lögreglan tilkynnti í dag að hún væri búin að endurheimt þýfið, alls 49 úr, sem voru rænd í bíræfnu ráni í skartgripabúðinni á Laugaveginum, fyrir níu dögum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Rolex telur ránið stórt á al­þjóða­vísu

Úraránið í verslun Michelsen úrsmiða þykir stórt á alþjóðlegan mælikvarða Rolex. Listi yfir þau úr sem var rænt á mánudag hefur verið afhentur fyrirtækinu og lögreglu, að sögn Franks Michelsen úrsmiðs. Hann gefur ekki upp hversu mörgum úrum var stolið. Frank hefur lofað milljón krónum í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta orðið til þess að ránið verði upplýst. Hann segist hafa fengið fjölda ábendinga en bendir fólki á að hafa samband við lögregluna ef það hefur upplýsingar um málið.

Innlent
Fréttamynd

Unnið úr á­bendingum varðandi ránið

Rannsóknadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er nú að vinna úr ýmsum ábendingum sem henni bárust í gær varðandi ránið í úraverslun Michelsens við Laugaveg á mánudagsmorgun, en lögregla gefur ekki upp hvort einhver hefur verið yfirheyrður.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert unnið til úr­bóta

Starfshópur á vegum dómsmálaráðherra skilaði í ársbyrjun 2010 skýrslu með tillögum um það hvernig mætti bregðast við skipulagðri glæpastarfsemi útlendinga. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, telur að tillögurnar séu nú hillufóður einhversstaðar í ráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Michelsen býður eina milljón króna í fundar­laun

Frank Michelsen, eigandi úra- og skargripaverslunarinnar sem rænd var í gær, býður fundarlaun hverjum þeim sem geta gefið upplýsingar um ránið. Komi vísbending sem leiði til þess að málið verði upplýst og ránsfengurinn endurheimtur, fær sá hinn sami milljón króna fundarlaun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá eigandanum.

Innlent
Fréttamynd

Ræningjarnir enn ófundnir

Ræningjarnir þrír, sem létu greipar sópa um úraverslum Michelsen við Laugaveg í Reykjavík í gærmorgun eru enn ófundnir, eftir því sem fréttastofan kemst næst.

Innlent
Fréttamynd

Skotum hleypt af í ráninu

Mennirnir sem réðust inn í úraverslunina Michelsen á Laugavegi í morgun hleyptu af alvöru byssu inni í versluninni þegar þeir voru að ræna hana. Þetta telur Frank Úlfar Michelsen, eigandi búðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ræningjarnir ganga enn lausir

Ræningjarnir sem frömdu rán í úraversluninni Michelsen í morgun ganga enn lausir. Þrír menn réðust inn í úraverslunina um klukkan hálf ellefu í morgun. Mennirnir voru allir með leikfangabyssur og barefli en bifreið sem þeir notuðu við verkið fannst stuttu síðar í Þingholtunum og voru þrjár leikfangabyssur í henni.

Innlent
Fréttamynd

Vopnaðir lög­reglu­menn hand­tóku þrjá menn á Hring­braut

Þrír menn voru handteknir á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar nú fyrir stundu en talið er að þeir tengist vopnuðu ráni sem var framið í Michelsen úraverslun í morgun. Varðstjóri hjá lögreglunni vildi þó ekki staðfesta að mennirnir séu þeir sem frömdu ránið - rannsókn sé í enn í fullum gangi. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðar við aðgerðir lögreglunnar.

Innlent