Stj.mál
117 118 119 120 121 122 123 124 125 … 187 ›
Samgönguráðherra skammaður Formenn stjórnarflokkanna gáfu skýrt loforð fyrir síðustu þingkosningar um að framkvæmdir við Suðurstrandarveg og Gjábakkaveg yrðu langt komnar á árinu 2004. Hvorugt stóðst og hafa báðir þessir vegir nú verið skornir niður og mátti samgönguráðherrann sitja undir skömmum í þinginu fyrir vikið. Innlent 13.10.2005 19:03
Vítum mótmælt Þingflokkur Samfylkingar hefur sent Forsætisnefnd Alþingis bréf, þar sem því er harðlega mótmælt að orð Lúðvíks Bergvinssonar hafi verið af því tagi að forseti Alþingis hefði átt að víta hann á miðvikudag. Innlent 13.10.2005 19:03
Nýtt innflytjendaráð í deiglunni Stefnt verður að því að stofna innflytjendaráð til að sinna brýnum málefnum innflytjenda og bera ábyrgð á móttöku flóttamanna. Ráðið mun heyra undir félagsmálaráðuneyti, en vera skipað fulltrúum fjögurra ráðuneyta og Sambands sveitarfélaga. Innlent 13.10.2005 19:03
Neyðarfundur á Ítalíu Ríkisstjórn Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, er í kreppu. Neyðarfundur var haldinn í dag en ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu miklu fylgi í héraðskosningum í síðustu viku. Erlent 13.10.2005 19:03
Samfylkingin mótmælir vítinu Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir því harðlega að orð Lúðvíks Bergvinssonar, sem Halldór Blöndal vítti hann fyrir í gær, hafi verið af því tagi að beita ætti vítum. Lúðvík sagði: „Forseti, ég hef orðið.“ Innlent 13.10.2005 19:03
Eina stjórnarandstaðan í Bretlandi Frjálslyndir demókratar í Bretlandi hófu kosningabaráttu sína í dag með því að lýsa því yfir að þeir væru eina raunverulega stjórnarandstaðan í landinu. Demókratarnir voru einir stóru flokkanna á móti innrásinni í Írak. Erlent 13.10.2005 19:03
Styrkja kjarnorkuvarnir sínar Norður-Kórea segist ætla að styrkja kjarnorkuvarnir sínar vegna fjandsamlegrar afstöðu Bandaríkjanna til landsins, að sögn Itar-Tass fréttastofunnar. Erlent 13.10.2005 19:03
Hyggja ekki á hernaðaraðgerðir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur tjáð bandarískum embættismönnum að Ísraelar hyggi ekki á hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeir eignist kjarnorkuvopn. Erlent 13.10.2005 19:03
Landamæraeftirlit ESB í Póllandi Höfuðstöðvar Landamæraeftirlits Evrópusambandsins verða í Póllandi. Þetta verður fyrsta Evrópusambandsstofnunin með höfuðstöðvar í einu hinna tíu nýju ríkja sambandsins. Erlent 13.10.2005 19:03
Vilja ekki hækka leikskólagjöld Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja falla frá hækkunum á leikskólagjöldum sem samþykktar voru af R-listanum fyrir fjórum mánuðum. Þetta kom fram í bókun sem lögð var fram í borgarráði í gær vegna umræðu um gjaldskrá leikskóla á fundinum. Innlent 13.10.2005 19:03
Einhliða uppsögn ólögmæt "Þetta sýnir og sannar að við höfðum enn einu sinni rétt fyrir okkur og hefur tvímælalaust fordæmisgildi fyrir aðra," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Innlent 13.10.2005 19:03
Fallvaltar sveitarstjórnir <font face="Helv"> </font>Ekki er nýtt að sveitarstjórnir falli á miðju kjörtímabili á Íslandi. Á yfirstandandi kjörtímabili sem hófst 2002 hefur slitnað upp úr meirihlutasamtarfi í þremur sveitarfélögum, í Grundarfirði, í Dalabyggð og á Blönduósi. Innlent 13.10.2005 19:03
Afsögn forsætisráðherra Líbanons Omar Karami sagði af sér forsætisráðherraembætti í Líbanon í dag eftir að honum mistókst að mynda ríkisstjórn. Forseti landsins, Emile Lahoud, hefur samþykkt afsögnina fyrir sitt leyti og leitar nú að nýjum manni í starfið. Erlent 13.10.2005 19:03
Rúmenía og Búlgaría í ESB Rúmenía og Búlgaría munu verða fullgildir meðlimir Evrópusambandsins 1. janúar árið 2007, ef allt gengur eftir. Evrópuþingið samþykkti þetta í dag. Erlent 13.10.2005 19:03
Sundabraut tefst vegna járnarusls Samgönguyfirvöld voru sökuð um að svelta Reykvíkinga eftir að R-listinn komst til valda, í umræðum um Sundabraut á Alþingi. Sjálfstæðismenn sögðu brautina tefjast vegna þess að R-listinn vildi hengja járnarusl upp á Sundin. Innlent 13.10.2005 19:03
Meirihlutinn á bláþræði Búast má við átakafundi í sveitarsjórn Skagafjarðar í dag og ekki loku fyrir það skotið að meirihlutinn falli. Bjarni Maronsson, einn fulltrúi sjálfstæðismanna í sveitarstjórn, hefur lýst yfir vantrausti á forseta sveitarstjórnar, samflokksmann sinn Gísla Gunnarsson klerk í Glaumbæ. Innlent 13.10.2005 19:03
Trúnaðargögn í röngum höndum Frá árinu 2001 hafa viðkvæmar trúnaðarupplýsingar, ætlaðar utanríkisráðuneytinu, oftlega borist í hendur óviðkomandi þar sem þær hafa verið sendar á röng netföng. Starfsmönnum ráðuneytisins hefur verið kunnugt um málið en lítið aðhafst þó að dæmi séu um að erindin hafi snert öryggi þjóðarinnar. </font /> Innlent 13.10.2005 19:03
Afhenda ráðherra undirskriftir Einar Árnason mun afhenda heilbrigðisráðherra hátt í fimm þúsund undirskriftir á Alþingi klukkan korter fyrir fjögur. Þessir fimm þúsund einstaklingar skora á heilbrigðisráðherra að sjá til þess að í framtíðinni verði sólarhringsbakvakt á skurðstofunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Innlent 13.10.2005 19:03
Tillögur fjölmiðlanefndar ekki lög Ekki er útilokað að tillögur fjölmiðlanefndarinnar um eignarhaldstakmarkanir á fjölmiðlum taki breytingum áður en samið verður frumvarp sem byggt verður á skýrslunni. Samfylkingin vill rýmri mörk og stjórnarflokkarnir skoða málið </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:03
Blair kynnti kosningaloforðin Kosningabaráttan í Bretlandi er komin á fullan skrið. Verkamannaflokkurinn kynnti kosningaloforð sín í dag við litla hrifningu íhaldsmanna. Erlent 13.10.2005 19:03
Sambærilegt falli Berlínarmúrsins Fall styttu Saddams Husseins í Bagdad fyrir tveimur árum er sambærilegt falli Berlínarmúrsins, að mati George Bush Bandaríkjaforseta. Á fundi með bandarískum hermönnum í Texas í gær sagði Bush að talað yrði um fallið á styttu Saddams í Bagdad í sömu andrá og fall Berlínarmúrsins þegar fram líða stundir. Erlent 13.10.2005 19:03
Málþing um fjölmiðlaskýrsluna Frjálshyggjufélagið stendur fyrir málþingi um lokaskýrslu fjölmiðlanefndar á morgun,</b /> fimmtudag, klukkan 12 í Iðnó við Vonarstræti 3. Á fundinum mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir halda tölu um það starf sem fjölmiðlanefnd hefur unnið, skýra út helstu álitamál og þau rök sem liggja að baki einstökum atriðum í lokaskýrslunni. Innlent 13.10.2005 19:03
Flugvöllurinn festur í sessi Með samgönguáætlun er verið að festa Reykjavíkurflugvöll enn frekar í sessi. Þetta staðhæfði Pétur Blöndal alþingismaður þegar hann hjólaði í flokksbróður sinn, Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra, vegna stefnumörkunar um nýja flugstöð. Innlent 13.10.2005 19:03
Áfengiskaupaaldur ekki lækkaður Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag samhljóða umsögn um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, sem hefur það að markmiði að lækka áfengiskaupaaldur í átján ár. Ráðið lýsir sig andsnúið lækkun áfengiskaupaaldurs. Innlent 13.10.2005 19:03
Erfið byrjun nýja formannsins Nýr formaður danska jafnaðarmannaflokksins mætir á fyrsta degi mótstöðu þingmanna flokksins vegna ummæla sinna um danska eftirlaunakerfið. Sameining er lykilorð nýja formannsins sem segir tímabært að ljúka harðri baráttu fylkinga innan flokksins. Erlent 17.10.2005 23:41
Lúðvík víttur í þinginu Halldór Blöndal, forseti Alþingis, vítti Lúðvík Bergvinsson, þingmann Samfylkingar, í umræðum um störf þingsins fyrir stundu. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem forseti vítir þingmanninn. Innlent 13.10.2005 19:03
Vilja styrkja stöðu hjóna Hið opinbera hvetur fólk til að skilja, segja fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem flytja þingsályktunartilögu um að styrkja stöðu hjóna og sambúðarfólks. Innlent 13.10.2005 19:03
Fékk um 75 þúsund fyrir álit Forsætisráðuneytið greiddi Eiríki Tómassyni, lagaprófessor við Háskóla Íslands, 74.700 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, fyrir lögfræðiálit sem hann vann fyrir ráðuneytið um lögmæti þess að styðja innrásina í Írak án samþykkis utanríkismálanefndar. Innlent 13.10.2005 19:02
Segir vinnubrögð hóps ólýðræðisleg Deilur þungavigtarmanna í Samfylkingunni vegna formannskjörsins virðast vera að kljúfa flokkinn. Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður, segist hafa sagt sig úr framtíðarhópi Samfylkingarinnar vegna ólýðræðislegra vinnubragða hópsins sem starfar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Innlent 13.10.2005 19:03
Styður hugmyndir um kaup Símans Þingflokkur Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við hugmynd Agnesar Bragadóttur blaðamanns um að almenningur á Íslandi stofni félag kjölfestufjárfestis og geri í sameiningu tilboð í 45% eignahlut Símans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Innlent 13.10.2005 19:02