
Orkumál

500 manns í sprotafyrirtækjum jarðhitavinnslu á Suðurnesjum
Um fimmhundruð manns starfa nú í ólíkum fyrirtækjum sem orðið hafa til vegna nýsköpunar í kringum jarðhitavinnslu á Suðurnesjum.

Deilt um öll stóru verkefni Landsnets
Aðstoðarforstjóri Landsnets segir deilt um öll stærri verkefni fyrirtækisins. Af þeim sökum gangi illa að efla flutningskerfi raforku hér á landi.

Ekki þversögn í orðum forsætisráðherra
Áform um að taka alfarið upp endurnýtanlega orkugjafa á Íslandi þurfa ekki endilega að stangast á við áform um olíuvinnslu á Drekasvæðinu.

Náttúruverndarsamtökin: Ræða Sigmundar markar stefnubreytingu
Forsætisráðherra sagði Ísland stefna að framtíð án jarðefnaeldsneytis í ræðu sinni á loftslagsfundi SÞ.

Boranir fyrirhugaðar á Drekanum eftir 4-8 ár
Innkoma fyrsta olíurisans á Drekasvæðið, kínversks ríkisolíufélags, sem formlega var innsigluð í dag, markar þáttaskil í olíuleitinni, að mati stjórnarformanns íslenska félagsins Eykons.

Arctic Circle og tækifærin í endurnýjanlegri orku
Um síðastliðna helgi fór fram ráðstefna um málefni norðurslóða í Reykjavík undir heitinu Arctic Circle. Ráðstefnan var eins konar samskiptatorg um norðurslóðamál í víðu samhengi þar sem saman komu um 1.000 manns

Krefjast eignarnáms á landsréttindum á Reykjanesi
Landsnet leitaði í dag eftir heimild atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra til að taka tiltekin landsréttindi á Reykjanesskaga eignarnámi til að geta hafið framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2, háspennulínu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkurbæjar. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að samningar hafa tekist við fjóra af hverjum fimm landeigendum um 62% lands á leið væntanlegrar línu en ítrekaðar samningsumleitanir við aðra landeigendur reyndust árangurslausar.

Ræðum um staðreyndir
Hluti af umræðu um jarðstrengi og loftlínur hefur snúist um hve mikið dýrara það sé að leggja jarðstreng en loftlínu. Skellt hefur verið fram fullyrðingum um að jarðstrengur sé tvisvar til þrisvar sinnum dýrari eða sex sinnum dýrari eða jafnvel níu sinnum dýrari en loftlína. Því miður hafa deilur milli sveitarfélagsins Voga og Landsnets um lagningu Suðurnesjalínu 2 ekki komist á hærra stig en þetta því ekkert mat hefur farið fram á hagkvæmni framkvæmdarinnar.

Telur Magma traustari bakhjarl en GGE
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að bæjarstjórnin muni láta meta fjárhagslega getu Magma Energy og skoða hvort áhætta bæjarsjóðs aukist við það að móðurfélagið Magma Canada taki yfir greiðslu á 6,3 milljarða króna skuldabréfi sem bærinn á og Geysir Green Energy (GGE) gaf upphaflega út.