
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Hvað viljum við?
Það er makalaust að nú rúmri viku fyrir kosningar sé enginn frambjóðandi sem nær að höfða til meirihluta þjóðarinnar.

Þegar enginn heldur utan um þig
Í réttnefndu velferðarsamfélagi þurfa stjórnmálaflokkar að sameinast um að tryggja velferð alls fólks sem í samfélaginu býr. Á undanförnum áratug hafa hagsmunir landsmanna ekki verið valdhöfum ofarlega í huga.

Um sjálfstæði þjóðar
Forsetakosningar á Íslandi eru nú pólitískari en áður hefur þekkst.

Bréf til þjóðarinnar
Ballið á Bessastöðum hófst þegar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tilkynnti þjóðinni að hann hyggðist ekki gefa kost á sér áfram. Fréttamiðlar riðu á vaðið með skoðanakannanir þar sem tilgreind voru nöfn ýmissa þekktra einstaklinga.

Við erum öll Efling
Staðreyndir í kjarabaráttu Eflingar er það eina sem við verðum að einblína á. Þá staðreynd að laun verkafólks duga ekki til framfærslu. Finnst okkur þessi staðreynd ásættanleg? Ef svarið er nei, þá styðjum við kjarabaráttu verkafólks innan Eflingar. Þetta er ekki flóknara. Það er allt í veröldinni samofið og verkfall Eflingar kemur því okkur öllum við. Við erum öll Efling.

Veldur hver á heldur
Mig langar að leggja orð í belg í þá umræðu um byrlunarfaraldur þann sem kallaður er. Nú eru uppi hugmyndir um það hvort leyfa eigi líkamsleit við skemmti-og samkomustaði til að sporna við því að fólki sé byrluð ólyfjan á skemmtistöðum.

Sælkeri í París
Ég heyrði sögu um daginn sem gengur á milli í hópi ungra kvenna. Nokkrar vinkonur frá New York fóru í helgarferð til Parísar og kvöldið fyrir heimferð fóru þær á næturklúbb til að ljúka ferðinni með trukki.

Sálin seld fyrir góð staffapartí
Það er sérkennilegt þetta fólk sem vinnur hjá Útlendingastofnun. Hvernig er hægt að vakna á morgnana, bursta tennurnar, kyssa börnin, fara í vinnuna og gerast sálarlaus djöfull?

Ein á ættarmóti
Nú er tími ættarmótanna og ég var nýlega á einu slíku, dálítið óvænt reyndar en ánægjulegt engu að síður.

Welcome to Althingi Bar
Ég hef áhyggjur af Katrínu. Mér finnst eins og hún sé ekki með sjálfri sér. Er hún í álögum?

Ég kynni hið nýja sambúðarform
Nýverið hóf ég sambúð með æskuvinkonu minni.

Kafli úr sögu eftir óþekktan ástarsöguhöfund
Sigurborg þeytti smjörið og sykurinn saman á ógnarhraða í postulínsskálinni góðu. Smjörið myndaði toppa sem minntu á þýsku Alpana. Sigurborgu fannst hún um stund vera stödd "im milden Alpenklima“ en hún hafði sem ung stúlka unnið sjö sumur á heilsuhæli í Bæjaralandi. Henni hlýnaði við tilhugsunina um liðna tíma og veitti víst ekki af eftir volkið fyrr um daginn.

5. kafli úr bók eftir óþekktan ástarsöguhöfund
Sigurborg lét gríðarstóran útsaumsjavann síga í kjöltu sér, hallaði sér aftur í purpuralitaða hægindastólinn og lagði aftur augun. Hún var þreytt enda búin að veita fjórtán eldri borgurum rúmbað fyrr um morguninn án aðstoðar.

Fjórði kafli úr bók eftir óþekktan ástarsöguhöfund
Sigurborg lygndi aftur augunum og dottaði augnablik fram á sjúrnalinn. Hún var örþreytt enda hafði vikan verið með allra erfiðasta móti. Vegna manneklu höfðu allir sjúklingar á öldrunardeild verið sendir heim yfir helgina og höfðu þó margir hverjir ekki átt í nein hús að venda.

Annar kafli úr bók eftir óþekktan ástarsöguhöfund
Sigurborg steig reiðhjólið af miklu kappi í morgunslyddunni og lét það ekkert á sig fá þótt fennti fyrir gleraugun hennar. Hún þekkti þessa leið út og inn og hefði treyst sér til að hjóla hana blindandi.

Kafli úr bók eftir óþekktan ástarsöguhöfund
Andrúmsloftið á spítalanum var þrungið spennu. Óvenjumikil þögn ríkti á göngunum og fyrir utan hrotur nokkurra sjúklinga á öldrunardeild hefði mátt heyra sondu detta.

Bjáni eignast barn
Ég gerði heiðarlega tilraun að beiðni næstelstu dóttur minnar til að taka að mér kött þegar við bjuggum í San Diego. Mig langaði sjálfa minna en ekkert að halda kött vitandi að það myndi að mestu lenda á okkur foreldrunum að sinna dýrinu.

Gerum gagn
Fyrir tæpum tuttugu og fimm árum var ég við nám í London og tók neðanjarðarlestina daglega til og frá skóla. Eitt og annað bar fyrir augu eins og gengur

Í orðastað háttprúðrar konu
Mikið sem mér líst vel á fyrrverandi formann fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, þennan Halldór Jónsson.