
Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið

Leitað verður eftir frumkvæði og þátttöku bæjarbúa
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði hafa gert með sér samkomulag um meirihlutamyndun í bæjarstjórn.

Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynda nýjan meirihluta í Hafnafirði
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði hafa náð samkomulagi um meirihlutamyndun og verkaskiptingu í nýrri bæjarstjórn en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnafjarðarbæ.

Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi mun halda fund með fulltrúaráði sjálfstæðismanna í bænum klukkan hálfellefu fyrir hádegi þar sem málefnasamningur Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar verður kynntur.

Ósátt við forystuna og hætt í Framsókn
„Svona tal sem er að birtast frá sumum flokksfélögum ofbýður mér hreinlega,“ segir Jenný Jóakimsdóttir.

Halldór fylgdist með síðasta borgarstjórnarfundinum
Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík, mætti á síðasta fund núverandi borgarstjórnar í dag, sem áhorfandi.

Breyttum kjörseðlum í Reykjavík fækkar um 5.000
Útstrikanir og breytingar á kjörseðlum í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík voru mikið færri en í síðustu kosningum.

Sakar Ármann um að ganga á bak orða sinna
Birkir Jón Jónsson, oddviti Framsóknarflokksins í Kópavogi, segir að hann og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, hafi handsalað fyrir kosningar að ræða um myndun meirihluta í bæjarstjórn.

„Fari svo, eru kosningarnar ógildar“
Björgvin E. Vídalín, formaður Dögunar, ætlar að kæra vegna framboðs Framsóknarflokksins í Reykjavík.

Píratar fara fram á endurtalningu í Hafnarfirði
Aðeins munaði sex atkvæðum á fyrsta manni Pírtara og þriðja manni Samfylkingarinnar.

Gunnar Einarsson verður áfram bæjarstjóri
„Það er greinilegt að meirihluti Garðbæinga var ánægður með störf okkar og við erum þakklát fyrir það. Við ætlum því bara að halda áfram okkar góða starfi.“

„Allt getur gerst“ í Hafnarfirði
Nýliðarnir í Bjartri framtíð virðast hafa myndun meirihluta í í Hafnarfirði í höndum sér.

Talningartómas vinsælastur á Twitter
Mikið líf var á samskiptamiðlinum Twitter í nótt og var kassamerkið #kosningar gríðarlega vinsælt.

Stefnir í fjögurra flokka meirihluta: Dagur hefur sett sig í samband við Pírata
Halldór Auðar Svansson oddviti Pírata hefur bæði rætt við Samfylkinguna og Vinstri græna um meirihlutamyndun í dag.

Fyrrverandi formaður SUF: Segir Framsókn ala á útlendingaandúð
Fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna segir flesta rótgróna Framsóknarmenn ekki geta felt sig við að tilheyra flokki sem elur á útlendingaandúð.

„Höfum alltaf verið opin fyrir flestum kostum“
„Það sem stendur uppúr eftir þessa nótt er virkilega léleg kosningaþátttaka,“ segir Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík en lengst af leit út fyrir að Píratar myndu ekki ná inn manni. Halldór komst að lokum inn þegar lokatölurnar voru birtar á áttunda tímanum í morgun.

Mögulegir meirihlutar í borginni
Nú þegar öll atkvæði hafa verið talin í Reykjavík og ljóst er að meirihlutinn er fallinn er hægt að velta fyrir sér mögulegum meirihlutum í borginni.

Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa áhuga á að koma að nýjum meirihluta í Reykjavík
Halldór Halldórsson segir það vonbrigði að hafa ekki náð að halda fimm borgarfulltrúum

Lokatölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn
Píratar ná inn manni í borgarstjórn, Framsókn fær tvo fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur fjóra.

„Ég er auðvitað mjög stressuð“
Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er inni í borgarstjórn miðað við nýjustu tölur og vonar innilega að Hildur Sverrisdóttir komist einnig inn.

Telur líklegt að Píratar hafi greitt atkvæði utankjörfundar
Halldór Auðar Svansson er bjartsýnn á að Píratar nái inn manni.

Frambjóðendur í tilfinningarússíbana: Inn og út úr borgarstjórn
"Það er allavega ekki hægt að segja annað en að þetta sé spennandi kosninganótt.“

Meirihlutinn í borginni aftur á réttum kili
Samfylkingin tekur mann af Sjálfstæðisflokki samkvæmt nýjustu tölum í borginni.

Segir íslensk stjórnmál hafa glatað sakleysi
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að Íslendingar verði að bjóða alla velkomna.

Kjörsókn hamfarir fyrir lýðræðið í landinu
Eiríkur Bergmann segir um að ræða dramatískar kosningar og allt öðruvísi en von var á.

Framsóknarkonur fagna: „Ég held að konur geti allt“
Framsóknarkonur í Reykjavík sungu lagið Fljúgum hærra hátt og snjallt á kosningavöku Framsóknar í kvöld.

„Harkalega ráðist á oddvita flokksins í borginni"
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ummæli Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar í Reykjavík, hafi ekki verið meðvitað útspil til að vekja athygli á framboðinu. "Þetta var eitthvað sem hafði verið til umræðu en ekki upp á yfirborðinu.“

Munu leggja til að lóðaúthlutun til mosku verði dregin til baka
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, önnur kona á lista Framsóknarflokksins er ánægð með að meirihlutinn sé fallinn.

„Við spyrjum að leikslokum“
Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavík, miðað við nýjustu tölur. Halldór Halldórsson, oddviti flokksins, vill ekki fagna of snemma.

„Þetta er bara að skella í andlitinu á okkur núna“
S. Björn Blöndal oddviti Bjartrar framtíðar segist ekkert hafa rætt við Dag B. Eggertsson oddvita Samfylkingarinnar um hvaða flokk þeir myndu vilja taka með í meirihlutasamstarf í Reykjavík.

Meirihlutinn í Reykjavík fallinn
Samfylkingin fær samkvæmt nýjustu tölum fimm fulltrúa en Björt framtíð tvo. Framsóknarflokkur nær tveim mönnum.