Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið
Sveinbjörg vill ekki byrja að fagna of snemma
„Nóttin er ung,“ sagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins og flugvallarvina, í viðtali í Ríkissjónvarpinu rétt í þessu.
Dagur og Björn boða áframhaldandi samstarf
Telja má líklegt að Dagur B. Eggertsson verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Hann segir þó ekkert ákveðið í þeim efnum.
„Mér brá svo mikið“
Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er inni í borgarstjórn samkvæmt nýjustu tölum og segist halda að staðan eigi eftir að breytast en vonar að svo verði ekki.
Dagur fagnar fyrstu tölum og faðmar marga
"Mér er mjög ofarlega í huga að standa undir því trausti sem Reykvíkingar sýna okkur,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar.
Meirihluti fallinn í fjórum af tíu stærstu sveitarfélögum
Þegar fyrstu tölur eru komnar úr tíu stærstu sveitarfélögum landsins lítur út fyrir að meirihlutinn haldi í sex, en falli í fjórum.
„Mín von er auðvitað sú að þetta breytist ekki mikið“
Halldór Halldórsson er varfærinn eftir gott gengi Sjálfstæðisflokksins í fyrstu tölum þar sem þær eru nokkuð langt frá fylgi flokksins í skoðanakönnunum.
"Það er ekkert að marka þetta"
Ég held að okkar fólk hafi farið í "bröns“ áður en það fór á kjörstað og því koma atkvæðin þeirra seinna,“ segir S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar. Flokkurinn mælist með talsvert minna fylgi eftir fyrstu tölur úr Reykjavík en í könnunum.
"Gott miðað við að við erum í meirihluta“
Ármann Kr. Ólafsson oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi segist vera í skýjunum eftir að fyrstu tölur voru lesnar upp.
Stemningin í Ráðhúsi Reykjavíkur
Myndasyrpa af oddvitum borgarstjórnarframboðanna skömmu áður en fyrstu tölur voru birtar.
Sjálfstæðisflokkurinn með meirihluta í Mosfellsbæ
Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm af níu bæjarfulltrúum.
Meirihlutinn heldur í Reykjavík
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins er inni í borgarstjórn miðað við nýjustu tölur og sjálfstæðismenn halda sínum fimm fulltrúum.
Meirihlutinn heldur í Kópavogi
Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokk fá sex af ellefu bæjarfulltrúum.
Stórtap Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
Lokatölur: Meirihluti Samfylkingarinnar og Vinstri grænna fallinn í Hafnarfirði.
Ætla að vera fyrst með tölur
„Við erum keppnisfólk og viljum vera fyrst og best,“ segir formaður kjörstjórnar í Hafnarfirði
Kjörsókn innan við 50 prósent í Reykjavík
Kjörsókn er mun minni en í síðustu sveitastjórnarkosningum.
Gaman hjá Vinstri grænum
Það var nóg um að vera í kosningamiðstöð Vinstri grænna við Suðurgötu í dag.
Bjart yfir Bjartri framtíð á kjördegi
Björn Blöndal og félagar í Bjartri framtíð í Reykjavík skemmtu sér vel á kjördag.
Tæplega 40 prósent kjörsókn í Reykjavík og Kópavogi
Enn hafa talsvert færri greitt atkvæði en á sama tíma í fyrra.
Stuð hjá Pírötum á kjördag
Myndir frá frambjóðendum Pírata frá því í dag.
Reykjavík síðdegis á kjörstað: „Höfum ekki eytt krónu í framboðið“
Þorvaldur Þorvaldsson segir að gera megi því skóna að Alþýðufylkingin sé eini vinstri flokkurinn í framboði.
Atkvæðið endaði á Grænlandi
"Ég fæ það örugglega innrammað til baka í ísbjarnarskinni frá Grænlandi,“ segir kjósandi sem sendi atkvæði sitt til Akureyrar en það endaði á Grænlandi.
Reykjavík síðdegis: „Þetta er eins og aðfangadagur“
S. Björn Blöndal segist vera mjög bjartsýnn fyrir kvöldið.
Allir í símanum hjá Samfylkingunni
Það er hörku vinna í gangi í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Reykjavík þrátt fyrir að langt sé liðið á kjördag.
Reykjavík síðdegis: „Er þetta það sem konur mega eiga von á?“
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir segir mjög leiðinlegt að hafa séð sig teiknaða í Fréttablaðinu.
Reykjavík Síðdegis á kjörstað: Lítið talað um öryrkja, aldraða og fátæka
Þorleifur Gunnlaugsson er sáttur með vinnu Dögunar og segir mjög góðan hóp fólks í flokknum.
Kjörsókn talsvert minni en í síðustu kosningum
Í Reykjavík höfðu 16.100 manns greitt atkvæði klukkan tvö. Á sama tíma fyrir fjórum árum höfðu 19.266 manns kosið.
Reykjavík síðdegis á kjörstað: "Ég hef grun um að mér muni líka þetta vel“
Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík, segir að fyrir almenningi hafi kosningabaráttan í raun hafist fyrir stuttu.
Af hverju ættir þú að kjósa Dögun?
Dögun er umfram allt grasrótarflokkur sem hefur að skipa hugsjónafólki úr ýmsum áttum. Sem dæmi hafa þrír af frambjóðendum Dögunar fengið tilnefningar, styrki og verðlaun fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum utangarðsfólks og gegn fordómum.
Nýtum kosningaréttinn okkar
Farið á kjörstað og sannið að stjórnmál eru ekki einungis málefni fullorðinna, stjórnmálamanna eða hagfræðinga heldur samfélagsins í heild.
Framtíðin byrjar í dag
Borgarbúar geta í dag haft mikil áhrif á hvernig næstu ár verða í borginni okkar. Björt framtíð leggur mikla áherslu á mannréttindi, líkt og Besti flokkurinn hefur gert síðustu 4 ár. Mannréttindi fyrir alla, sama hvaðan þeir koma eða hvert þeir eru að fara eða hvað þeir gerðu í millitíðinni.