Eldgos og jarðhræringar
66 67 68 69 70 71 72 73 74 … 133 ›
Engar breytingar á gosinu sem bannað er að heimsækja í dag Eldgosið í Meradölum heldur uppteknum hætti og breytist ekkert milli daga að sögn náttúruvársérfræðings. Vonskuveður er við gosstöðvarnar og ákveðið var í gær að loka svæðinu fyrir almenningi. Innlent 7.8.2022 08:12
Eldgosið kosti Grindavíkurbæ 60 milljónir Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar býst við að eldgosið í Meradölum kosti bæinn um sextíu milljónir. Hann segir að bærinn muni leggja út fyrir verkefnum en að hugað verði að uppgjöri síðar. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að gosstöðvarnar verði lokaðar frá klukkan fimm í fyrramálið vegna vonskuveðurs. Innlent 6.8.2022 20:07
Tveir sérmerktir torfærubílar teknir í notkun hjá almannavörnum Almannavarnir hafa fest kaup á tveimur buggy-bílum sem verða notaðir við störf þeirra og lögreglunnar. Fyrst um sinn munu bílarnir vera notaðir af lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 6.8.2022 17:32
Gossvæðinu lokað á morgun Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að gosstöðvarnar í Meradölum verði lokaðar á morgun. Lokunin hefst klukkan fimm um morgun og verður staðan endurmetin seinna um daginn. Innlent 6.8.2022 16:28
Allir og amma þeirra á gosstöðvunum „Það var brandari um daginn að allir og amma þeirra væri komin í bílinn en nú held ég að þau séu farin að drösla langömmunni með,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, um ágang að gosstöðvunum um þessar mundir. Innlent 6.8.2022 14:16
Tryggja þurfi nýjan varaflugvöll og Reykjavíkurflugvöllur komi ekki til greina Borgarstjóri segir óraunhæft að Reykjavíkurflugvöllur komi í stað hugmynda um flugvöll í Hvassahrauni. Byggja þurfi upp flugvöll á Suðvesturhorninu sem tekið geti við alþjóðaflugi. Reykjavíkurflugvöllur sé ekki undir það búinn. Innlent 6.8.2022 13:35
Björgunarsveitir skoða að loka gossvæðinu á morgun vegna veðurs Lögreglan á Suðurnesjum mun sekta þá sem ekki leggja í merkt bílastæði við gosstöðvarnar frá og með deginum í dag. Þá kemur til greina að svæðinu verði lokað á morgun vegna veðurs. Innlent 6.8.2022 11:52
Gasmökkur á leið yfir borgina en óþarfi að óttast Samkvæmt spálíkani Veðurstofunnar mun nokkuð magn gass frá eldgosinu í Meradölum leggja yfir höfuðborgarsvæðið á morgun. Veðurfræðingur segir þó að líkanið eigi það til að ofmeta magn gass sem kemst niður á yfirborð. Því sé engin ástæða til að örvænta. Innlent 6.8.2022 10:37
Byrja að sekta ökumenn við Suðurstrandarveg Alls lögðu 4.666 einstaklingar leið sína að gosstöðvunum í Meradölum í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að einstaka ferðamenn hafi slasast á leið sinni. Innlent 6.8.2022 10:02
Lítið skyggni við gosið sem mallar áfram Lítil sem engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum í nótt. Ekki viðrar vel til gönguferða að gosstöðvunum í dag enda er mikil þoka á svæðinu og skyggni lítið sem ekkert. Innlent 6.8.2022 07:47
Ekki allir sem hlusta Eitthvað hefur borið á minniháttar meiðslum og fótameinum hjá fólki sem leggja leið sína að eldgosinu í Meradölum og dæmi um að einstaklingar togni á ökkla og þurfi aðstoð vegna örmögnunar. Heilt yfir hefur þó gengið nokkuð vel á svæðinu að sögn björgunarsveitarfólks en mikill fjöldi hefur gert sér ferð að gosinu frá því á miðvikudag. Er allur gangur á því hversu vel fólk er búið. Innlent 5.8.2022 20:06
Gasmengun getur verið alvarlegt mál Líkur eru á töluverðri gasmengun í Vogum og í Reykjanesbæ í sunnanáttinni í kvöld og íbúar þar eru ekki ólíklegir til að finna gaslykt í bænum. Starfandi sóttvarnalæknir segir gasmengun alvarlegt mál, sem hefur áhrif á heilsu fólks. Í fréttabrotinu hér að ofan er útlistað hvernig forðast megi gasmengun við gosstöðvarnar. Innlent 5.8.2022 19:41
Eldgosið geti staðið í einhverja mánuði Engin merki eru um að nýjar sprungur séu byrjaðar að myndast við gosstöðvarnar í Meradölum. Líklegast er að slík sprunga myndi opnast til norðausturs þar sem kvikugangurinn liggur og fjarri þeirri hefðbundnu gönguleið sem fólk fari nú að svæðinu. Innlent 5.8.2022 19:02
Fjöldi á leið að gosinu þrátt fyrir veðuraðstæður Töluverður straumur fólks er að eldgosinu í Meradölum þrátt fyrir að veðuraðstæður sé ekki upp á marga fiska. Lítið skyggni hefur verið við eldgosið í dag og mengun frá gosinu liggur yfir gígunum. Innlent 5.8.2022 14:44
Bein útsending: Púlsinn tekinn á gosstöðvunum Vísir verður með beina útsendingu frá eldgosinu í Meradölum. Innlent 5.8.2022 14:18
Ráðherra innviða ekki æstur í að sjá gosið Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra virðist ekki vera á leiðinni upp að eldgosinu í Meradölum ef marka má orð hans eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hann bíður niðurstaðna vísindamanna sem kanna aðstæður í Hvassahrauni með tilliti til náttúruvár vegna nýs flugvallar. Innlent 5.8.2022 13:09
Mögnuð myndasyrpa frá Meradölum Eins og landsmönnum er eflaust kunnugt hófst eldgos í Meradölum nú á miðvikudag og hefur fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis staðið vaktina. Hér að neðan má sjá myndir teknar af ljósmyndara fréttastofunnar, Vilhelm Gunnarssyni. Innlent 5.8.2022 12:30
Svona er gönguleiðin að gosinu Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur staðið í ströngu síðan eldgos hófst í Meradölum. Björgunarsveitarmenn aðstoða ekki aðeins þá sem lenda í vanda á leiðinni að gosinu heldur hafa þeir ráðist í fyrirbyggjandi aðgerðir með því að stika gönguleið að gosinu. Innlent 5.8.2022 11:59
Gas leggur yfir Voga í kvöld og gæti náð í höfuðborgina á morgun Vindátt snýst í Suðaustanátt síðdegis í dag og gasdreifingarspá Veðurstofu Íslands spáir því að gas frá eldgosinu í Meradölum muni berast í nokkru magni yfir Voga á Vatnsleysuströnd. Innlent 5.8.2022 11:17
Þrír fluttir slasaðir frá gosstöðvunum í nótt Þrír voru fluttir slasaðir frá gosstöðvunum í Meradölum í nótt en Lögreglan á Suðurnesjum áætlar að þar hafi verið á bilinu sjötíu til áttatíu manns á fjórða tímanum. Innlent 5.8.2022 08:55
Hraunflæði virðist stöðugt Engar breytingar hafa orðið á hraunflæði í gosinu í Meradölum síðan í gær að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Þegar hraunflæði var mælt í gær hafði það minnkað um nær helming frá fyrstu mælingu í fyrradag. Til stendur að fljúga yfir gosstöðvarnar á ný í dag og mæla flæði. Innlent 5.8.2022 06:42
„Klikkað að gera“ eftir að gosið hófst Ferðaþjónustufyrirtæki eru þegar farin að finna fyrir auknum þunga í bókunartölum vegna eldgossins í Meradölum. Framkvæmdastjóri þyrlufyrirtækis segir erlenda ferðamenn treysta á að gosið endist inn í haustið. Bókanir teygi sig inn í nóvember. Viðskipti innlent 4.8.2022 23:00
Ferðamenn létu sér ekki segjast: „Þú ert hérna líka!“ Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Meradali frá því að eldgosið hófst í gær og margir heillast að krafti náttúruaflanna. Fréttamaður tók nokkra ferðalanga tali og fékk að heyra hvað þeim finnst um sjónarspilið. Innlent 4.8.2022 21:59
Ekki þægilegt að vera fluttur slasaður niður grófa vegina Stríður straumur hefur verið að gosstöðvunum í dag og gær þrátt fyrir að viðbragðsaðilar hafi varað fólk við því að gera sér ferð á staðinn. Björgunarsveitarfólk hefur líkt og í síðasta gosi reynt að huga að öryggi ferðalanga en eitthvað hefur verið um slys á fólki frá því í gær. Innlent 4.8.2022 20:08
Þróun eldgossins komi ekki á óvart Töluvert hefur dregið úr hraunflæðinu úr eldstöðvunum í Meradölum frá því í gær og mældist meðalrennsli frá klukkan 17 í gær fram til 11 í morgun 18 rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar var meðalrennsli 32 rúmmetrar á sekúndu fyrstu þrjá tímana eftir að gosið hófst í gær. Á sama tíma hefur sprungan styst úr 300 metrum í um það bil 100 metra. Innlent 4.8.2022 18:33
Bein útsending: Eldgosið við Fagradalsfjall í nærmynd fram á kvöld Vísir verður með beina útsendingu frá eldgosinu við Fagradalsfjall þar sem nokkur fjöldi fólks hefur safnast saman til að njóta sjónarspilsins. Innlent 4.8.2022 17:19
Drónamyndband sýnir gosið í allri sinni dýrð Óhætt er að segja að sjónarspilið hafi verið mikið við eldgosið í Merardölum í gærkvöldi og í nótt. Innlent 4.8.2022 14:29
„Fávitavarpið“ endurvakið í Meradölum Íslenskur Facebook-hópur sem gekk út á að birta myndir af fólki sem tróð sér inn í beinar vefútsendingar frá eldgosinu í Fagradalsfjalli á síðasta ári hefur verið endurvakinn, nú þegar gos er hafið á Reykjanesskaga að nýju, nánar til tekið í Meradölum. Lífið 4.8.2022 13:31
Mikil ásókn í þyrluferðir: „Þetta er sko enginn ræfill núna“ Gríðarleg ásókn er í þyrluflug yfir gosstöðvarnar og flugfélögin finna fyrir auknum áhuga á landinu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir erfiðara en síðast að taka á móti miklum fjölda með skömmum fyrirvara vegna bókunarstöðu. Innlent 4.8.2022 12:51
Kraftur gossins sé sá sami en á minna svæði Nýjustu tölur hraunrennslis vegna eldgossins í Meradölum eru ekki komnar til Veðurstofunnar en þær fást eftir mælingar vísindaflugsins í hádeginu. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir sprunguna hafa minnkað en kraftinn vera þann sama á minna svæði. Innlent 4.8.2022 12:35