Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 4-2 | Sanngjarn sigur Breiðabliks Hinrik Wöhler skrifar 10. ágúst 2024 15:16 Breiðablik - Keflavík Mjólkurbikarinn kvenna sumar 2024 Vísir/Diego Breiðablik og Þór/KA áttust við í stórleik dagsins í Bestu deild kvenna en Blikar freistuðu þess að minnka forskot Vals í eitt stig á toppi deildarinnar. Að lokum var sanngjarn 4-2 sigur Breiðabliks staðreynd. Þór/KA náði að jafna undir lok fyrri hálfleiks en síðari hálfleikur var algjörlega eign Blika. Birta Georgsdóttir var allt í öllu í heimaliðinu, skoraði og lagði upp og var fremst meðal jafningja á vellinum. Blikar aðeins einu stigi frá toppliði Vals eftir leikinn. Uppgjör og viðtöl væntanleg á Vísi í kvöld. Besta deild kvenna Breiðablik Þór Akureyri KA Íslenski boltinn Fótbolti