City vann Sam­fé­lags­skjöldinn eftir vítakeppni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manuel Akanji skorar og tryggir Manchester City Samfélagsskjöldinn.
Manuel Akanji skorar og tryggir Manchester City Samfélagsskjöldinn. getty/Stu Forster

Manchester City vann Samfélagsskjöldinn eftir sigur á Manchester United í vítaspyrnukeppni, 7-6. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1.

Úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju umferð bráðabana. Þá skaut Jonny Evans yfir en Manuel Akanji skoraði og tryggði City sigurinn. Þetta er í sjöunda sinn sem City vinnur Samfélagsskjöldinn.

City var meira með boltann í leiknum en United fékk hættulegri færi. Marcus Rashford fékk þau tvö bestu. Í fyrra skiptið skaut hann langt framhjá og í því seinna setti hann boltann í stöngina. Þá var mark dæmt af Bruno Fernandes.

Alejandro Garnacho kom United yfir á 82. mínútu. Hann fékk boltann þá frá Fernandes, lék inn á vítateig City og skoraði með vinstri fótar skoti.

Þegar mínúta var til leiksloka jafnaði Bernardo Silva fyrir City. Oscar Bobb sneri þá skemmtilega á Lisandro Martínez og sendi fyrir á Silva sem skallaði boltann í netið. Silva, sem fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag, tryggði City því vítakeppni.

Þar varði André Onana frá Silva og Ederson frá Jadon Sancho. Ederson tryggði City svo bráðabana með því að skora úr síðasta víti þeirra. 

Liðin skoruðu síðan úr næstu fjórum spyrnum sínum áður en Evans klikkaði. Akanji tryggði City svo Samfélagsskjöldin eins og áður sagði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira