Son tryggði Spurs stig úr víti

Sindri Sverrisson skrifar
Son Heung-Min fagnar jöfnunarmarki sínu gegn Bournemouth í dag.
Son Heung-Min fagnar jöfnunarmarki sínu gegn Bournemouth í dag. Getty/Andrew Kearns

Bournemouth kastaði frá sér tveggja marka forskoti og varð að sætta sig við 2-2 jafntefli gegn Tottenham í Lundúnum í dag, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Bournemouth er því með 44 stig í 8. sæti deildarinnar, jafnmörg stig og Newcastle sem er í 9. sæti en á leik til góða við West Ham á morgun. Tottenham er hins vegar með 34 stig í 13. sæti.

Útlitið var afar gott hjá Bournemouth eftir 65 mínútna leik. Marcus Tavernier hafði komið liðinu yfir í lok fyrri hálfleiks, eftir frábæran undirbúning Milos Kerkez, og Evanilson bætti svo við marki með laglegri afgreiðslu eftir sendingu frá Justin Kluivert.

En á 67. mínútu, aðeins tveimur mínútum eftir seinna mark gestanna, kom Pape Sarr Tottenham aftur inn í leikinn með spyrnu af löngu færi sem frekar virtist líkjast fyrirgjöf en endaði í fjærhorninu.

Son Heung-Min, sem kom inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks, jafnaði svo metin úr vítaspyrnu á 84. mínútu eftir að Kepa hafði brotið á honum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira