Leik lokið: Valur - Porto 27-27 | Ótrúlegir Valsmenn náðu að landa stigi Þorsteinn Hjálmsson skrifar 15. október 2024 17:33 Magnús Óli Magnússon í baráttu við vörn Porto í Kaplakrika í kvöld. vísir/Anton Þrátt fyrir að lenda átta mörkum undir snemma í seinni hálfleik náðu Valsmenn með ævintýralegum hætti að landa stigi gegn Porto í Kaplakrika í kvöld, í Evrópudeildinni í handbolta. Valsmenn, sem unnu EHF-keppnina á síðustu leiktíð en hafa nú fært sig upp og leika í næstbestu Evrópukeppninni, voru 16-9 undir í hálfleik. Porto skoraði svo fyrsta mark seinni hálfleiks og útlitið afar dökkt fyrir Val, en leikið var í Kaplakrika þar sem FH og Gummersbach mætast svo einnig í kvöld. Þá tók við ótrúlegur kafli og mestu munaði um stórkostlega frammistöðu Björgvins Páls Gústavssonar sem alls varði 20 skot í leiknum, þar af tvö víti, og var með 43% markvörslu. Þá skoraði hann þrjú mörk! Umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi innan skamms... Björgvin Páll Gústavsson var hetja Vals í kvöld en hann varði tuttugu skot og skoraði þrjú mörk.vísir/Anton Ísak Gústafsson sækir að marki Porto og Mosfellingurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson tekur á móti honum.vísir/Anton Agnar Smári Jónsson skoraði fjögur mörk í kvöld.vísir/Anton Óskar Bjarni Óskarsson hefur sagt eitthvað mjög gott við sína menn í hálfleik.vísir/Anton Þorsteinn Leó Gunnarsson gekk til liðs við Porto í sumar. Hann varð að sætta sig við eitt stig í kvöld.vísir/Anton Evrópudeild karla í handbolta Valur