Lífið

Völva 2013: Jóhanna lætur til sín taka

Mynd/Eva Björk Ægisdóttir
Nýir flokkar fá lágmarksfylgi



Í þjóðmálunum ber árið 2013 mikinn keim af því að vera kosningaár. Stjórnarflokkarnir hafa sig mikið í frammi, lofa ýmsu og halda sínum "heiðri“ á lofti, á meðan stjórnarandstaðan berst um á hæl og hnakka við að rétta sinn hlut.

Kosningarnar verða ekki afgerandi á nokkurn hátt. Sjálfstæðismenn fá minna fylgi en haldið er, en það er að hluta til vegna þess að forystan er ekki fólksins í landinu. Framsókn heldur sínu og fær heldur meira en lítur út fyrir. Nýir flokkar fá lágmarksfylgi. Samfylking og Vinstri græn tapa fylgi, Vinstri græn meira en Samfylking, sem velur sér öflugan og vinsælan foringja á árinu. Það er Guðbjartur Hannesson sem þar mun standa við stjórnvölinn, eftir afgerandi kosningu.

Jóhanna lætur til sín taka

Steingrímur verður enn í forystu VG, hann er samt orðinn þreyttur og þarf að passa upp á heilsuna. Í VG er mikil ólga og ófriðaröldur sem erfitt er að lægja, þannig að það er erfitt hjá Steingrími. Úr flokknum fara margir á árinu, bæði óróaseggir og dugnaðarfólk.

Jóhanna hættir eins og hún er búin að segja, en hún er ekki hætt að láta til sín taka og verður áberandi í sambandi við stórt mál þegar líða tekur á árið. Þetta mál snertir innflytjendur á Íslandi og fær hún stóra rós í hnappagatið fyrir framgöngu sína þar. Henni veitir ekki af, því minnisvarðinn sem hún ætlaði að reisa sér með nýju stjórnarskránni og stjórnlagaþinginu misheppnast gersamlega.

Sú stjórn sem tekur við að loknum kosningum sýnist mér vera sjálfstæðismenn og VG ásamt nýjum flokki. Annars verður stjórnarmyndunin erfið og þunglamalegt að koma saman nýjum stjórnarsáttmála.

Hér má skoða eftirminnilegar myndir sem Eva Björk Ægisdóttir tók af Jóhönnu fagna með landsliðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.