Enski boltinn

Terry sá rautt þegar Chelsea fór áfram | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chelsea átti greiða leið í 4. umferð ensku bikarkeppninnar en í dag vann liðið 4-1 sigur á C-deildarliði Peterborough á Stamford Bridge.

Pedro Rodríguez kom Chelsea yfir á 18. mínútu og tveimur mínútum fyrir hálfleik bætti Michy Batshuayi öðru marki við eftir laglega skyndisókn.

Willian kom Chelsea svo í þægilega stöðu þegar hann skoraði þriðja mark liðsins á 52. mínútu.

Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, gerði nokkrar breytingar á byrjunarliðinu og meðal þeirra sem kom inn var John Terry.

Fyrirliðinn þrautreyndi náði þó ekki að klára leikinn því hann fékk að líta rauða spjaldið á 67. mínútu fyrir brot á Lee Angol.

Þremur mínútum síðar minnkaði Peterborough muninn í 3-1 með marki Tom Nichols.

En Pedro átti síðasta orðið þegar hann skoraði annað mark sitt og fjórða mark Chelsea stundarfjórðungi fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×