Fréttir
152 153 154 155 156 157 158 159 160 … 334 ›
Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Gríðarlegur fjöldi fólks sendi skipuleggjendum Druslugöngunnar upplifun sína af kynferðisofbeldi og verða setningar frá þeim lesnar á Austurvelli í dag þegar gangan verður haldin. Skipuleggjandi segir algengt að þolendur séu einmana og mikilvægt að skila skömminni og ræða um ofbeldið. Innlent 27.7.2024 11:30
Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Um vorið 2018 hnaut Ragnheiður Pétursdóttir um skakka gangstéttarhellu á leið sinni á fund og við tóku sex ár af óbærilegum sársauka og baráttu við danska heilbrigðiskerfið um að fá hann viðurkenndan. Draumum um framtíðina hefur verið gert að víkja fyrir stöðugu stríði við sveitarfélagið, læknasamfélagið, tryggingafélög og eigin líkama. Innlent 27.7.2024 11:01
FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Bandaríska alríkislögreglan (FBI) staðfestir að það hafi verið byssukúla sem hæfði eyra Donalds Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu fyrir um tveimur vikum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar óljósra frásagna um það hvað olli sárum hans þegar byssumaður hóf skothríð þann 13. júlí. Erlent 27.7.2024 10:47
Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Varaforsetaefni Donalds Trump hefur gripið til varna fyrir ummæli sem hann lét falla 2021, um að Demókrataflokkurinn samanstandi af „barnlausum kattarkonum sem lifa í eymd.“ Hann segir Demókrataflokkinn reka ófjölskylduvæna stefnu, og líta barneignir hornauga. Erlent 27.7.2024 09:28
Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Dómsmálaráðherra vonast til að geta lagt fram frumvarp sem tekur á reglum um erlendar veðmálasíður í haust. Talsmaður fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu segir að Coolbet hafi óskað eftir samstarfi sem var slitið í gær. Innlent 27.7.2024 09:03
Áfram vætusamt og skýjað um helgina Spáð er suðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s í dag. skýjað að mestu og dálítil væta á víð og dreif. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Hiti víða 10 - 15 stig. Veður 27.7.2024 08:33
Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Glæsilegt Bálhýsi er nú í byggingu við tjaldsvæðið á Borg í Grímsnesi en allt efni í hýsinu er af skógræktarsvæðinu á Snæfoksstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Allir eru velkomnir að nýta sér bálhýsið. Innlent 27.7.2024 08:06
Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar, biðst velvirðingar fyrir hönd Brimborgar á myndbirtingu frá afhendingu bílsins, sem verðandi forsetahjónin festu kaup á á dögunum. Hann segir að misskilningur hafi orðið um að heimild til myndatöku gilti sem heimild til birtingar. Það sé ekki óalgengt að myndir frá afhendingu nýrra bíla séu birtar með þessum hætti. Innlent 27.7.2024 08:03
Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Veiðivörður tilkynnti um tvo að veiðum í Elliðaá án leyfis. Aðilarnir á vettvangi neituðu sök við lögreglu þrátt fyrir að vera með veiðistangir meðferðis en veiðivörðurinn sagðist vera með mynd af þeim að veiðum. Ökumaður framvísaði skírteni bróður síns, og maður beraði sig fyrir konu. Innlent 27.7.2024 07:37
Full ástæða til að vara foreldra við Starfsfólk Foreldrahúss hefur séð aukningu í vímuefnavanda ungmenna síðustu ár og hefur áhyggjur af stöðu mála. Mjög auðvelt sé fyrir unglinga að nálgast vímuefni á samfélagsmiðlum og það sé liðin tíð að einungis börn sem búi við erfiðar aðstæður glími við fíkniefnavanda. Innlent 26.7.2024 22:43
Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Stjórnsýslufræðingur segir bílamál Höllu Tómasdóttur vera óheppilegt og mjög klaufalegt fyrir verðandi forseta. Lykilmáli skipti að hjónin hafi ekki fengið nýjan Volvo-rafbíl á betri kjörum en almenningi býðst. Innlent 26.7.2024 20:36
Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Sífellt fleiri fíkniefnasalar selja eiturlyf fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum og bjóðast jafnvel til að keyra efnin heim til fólks. Fimm eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að nota slíkar söluaðferðir. Yfirlögregluþjónn segir málið umfangsmikið en næstum tuttugu kíló af efnum fundust við húsleit. Innlent 26.7.2024 18:20
Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Halla Tómasdóttir segir að ljósmynd af henni og Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar að taka við nýjum Volvo-rafbíl hafi verið birt á Facebook-síðu Brimborgar án þeirra vitundar. Ekki hafi verið ætlunin að gera bílakaupin opinber og þau ekki farið fram á nein sérkjör. Innlent 26.7.2024 18:09
Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum. Innlent 26.7.2024 16:26
Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu Fimmtán ára stúlka var handtekin í tengslum við dráp á táningsstúlku í bænum Landskrónu í Svíþjóð. Hún neitar allri sök. Tvö önnur ungmenni eru grunuð um aðild að drápinu á stúlkunni. Erlent 26.7.2024 15:38
Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað frá kæru Byko á hendur íslenskum karlmanni fyrir eignaspjöll. Karlmaðurinn setti límmiða á vörur frá Byko þar sem hvatt var til sniðgöngu á vörum frá Ísrael. Innlent 26.7.2024 15:29
Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Samskiptastjóri Reykjavíkurborgar segir að unnið verði að því næstu tvær vikurnar að gera húsnæðið í Ármúla huggulegt og leikskólahæft. Hún segir að ekki liggi fyrir hversu langan tíma framkvæmdir við Brákarborg munu taka, en borgin hafi veitt foreldrum allar upplýsingar sem eru fyrir hendi. Fundur verði boðaður með foreldrum á næstunni. Innlent 26.7.2024 15:13
Fundu óvænt merki um mögulegt örverulíf á Mars Lífræn efnasambönd fundust óvænt í steini sem bandaríski könnunarjeppinn Perseverence tók sýni úr á Mars. Á jörðinni gætu þau verið merki um líffræðilega ferla en frekari rannsókna er þörf til að skera úr um uppruna efnasambandanna. Erlent 26.7.2024 14:37
Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá Þrítugur íslenskur karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hnífaárás á göngustíg í Lundi í Kópavogi í lok júní. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis. Innlent 26.7.2024 13:38
„Hann meiddi mig ekki mikið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir ritar grein í tilefni af Druslugöngunni sem er á morgun og spyr hver hún sé eiginlega þessi drusla? Og kemst að því að hún geti verið hver sem er. Innlent 26.7.2024 13:33
Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðherra bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um innleiðingu nýs samræmds námsmats. Einnig er óskað eftir því að ráðuneytið leggi fram skýrslu um framkvæmd skólastarfs í grunnskólum, sem ráðuneytið hefur ekki skilað af sér síðan 2019. Lögum samkvæmt á að leggja slíka skýrslu fram á þriggja ára fresti. Innlent 26.7.2024 13:27
Weinstein lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 og lungnabólgu Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein, 72 ára, hefur verið flutt á Bellevue-sjúkrahúsið í New York með Covid-19 og lungnabólgu. Erlent 26.7.2024 13:04
Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á umtalsvert magn af fíkniefnum og teygir málið anga sína víða. Yfirlögregluþjónn segir talsvert magn fíkniefna í umferð og sala þeirra fari fram fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum. Fimm manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 26.7.2024 12:05
Vaxandi áhrif hlýnunar á úrkomumynstur og fellibyli Meirihluti landssvæðis á jörðinni hefur upplifað stærri sveiflur á milli úrkomu og þurrks en áður vegna hlýnunar lofthjúpsins. Þá eru merki um að loftslagsbreytingar hafi þau áhrif að fellibylir við Asíu verða fátíðari en öflugri en ella. Erlent 26.7.2024 11:48
Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Þrír erlendir ferðamenn sem gengu í skrokk Íslendings í miðbæ Reykjavíkur síðustu helgi eru lausir úr haldi að lokinni yfirheyrslu. Engin tengsl voru milli mannanna og þolanda, en varðstjóri segir skemmtunina hafa farið fram úr sér. Innlent 26.7.2024 11:45
Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar umfangsmikið fíkniefnamál, sem teygir anga sína víða. Fimm eru í varðhaldi vegna þess, en sala fíkniefnanna fór fram fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum. Innlent 26.7.2024 11:36
Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Miklar deilur standa nú innan Murdoch-fjölskyldunnar eftir að ættfaðirinn og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch freistaði þess að breyta skilmálum fjölskyldusjóðs sem var stofnaður þegar hann skildi við aðra eiginkonu sína, Önnu Murdoch Mann. Erlent 26.7.2024 11:23
Ný líkön sýna umfang hraunsins Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birti í gær myndir á síðu sinni á Facebook þar sem hægt er að sjá flæði og magn hraunsins. Innlent 26.7.2024 11:22
Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Átök í fjölskyldufyrirtæki sem lauk með því að synir sögðu föður sínum upp störfum leiddu til dómsmáls. Tuttugu árum eftir að feðgarnir stofnuðu fyrirtækið fór allt í háaloft. Innlent 26.7.2024 11:20
Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Íris Guðnadóttir, talsmaður landeigenda í Reynisfjöru, segir mál manns sem var ofrukkaður fyrir bílastæði við Reynisfjöru vera leiðan misskilning sem búið er að kippa í lag. Ekki sé verið að okra á ferðamönnum heldur borga fyrir nauðsynlega innviði. Innlent 26.7.2024 10:59