Fréttir
215 216 217 218 219 220 221 222 223 … 334 ›
Krefja Vinnslustöðina um 1,5 milljarða króna Vestmannaeyjabær og HS Veitur hafa sent Vinnslustöð Vestmannaeyja hf. og tryggingafélagi fyrirtækisins kröfubréf þar sem farið er fram á að tjónið á vatnslögn til Eyja verði að fullu bætt. Eins og staðan er í dag er áætlað heildartjón á bilinu 1.380 til 1.485 milljónir króna. Innlent 7.6.2024 13:34
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann í skemmtiferðaskip Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar í morgun vegna veikinda farþega um borð í erlendu skemmtiferðaskipi. Um eldri mann er að ræða. Innlent 7.6.2024 12:56
Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur mælt með því að hefja formlegar aðildarviðræður milli sambandsins og Úkraínu. Erlent 7.6.2024 12:08
Írar kjósa til Evrópuþings Næststærstu lýðræðislegu kosningar heims á eftir þeim indversku fara nú fram í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsnins. Kosið er um fleiri en sjöhundruð sæti í Evrópuþinginu fram á sunnudag. Írar ganga til kosninga til Evrópuþingsins í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan sjö í morgun og loka þeir klukkan tíu. Írar senda fjórtán fulltrúa á þingið en alls sitja þar 720 fulltrúar frá öllum aðildarríkjum sambandsins. Erlent 7.6.2024 12:07
Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu. Innlent 7.6.2024 12:01
Augljóslega þurfi að aðstoða bændur Matvælaráðherra segir augljóst að stjórnvöld þurfi að grípa inn í aðstæður bænda sem nú berjast margir í bökkum vegna kuldatíðar. Veita þurfi þeim stuðning með einhverjum hætti í gegnum bjargráðasjóð. Innlent 7.6.2024 12:01
Umsóknum í HA fjölgaði um tuttugu prósent á tveimur árum Umsóknum í Háskólann á Akureyri fjölgaði um tuttugu prósent frá árinu 2022 og sjö prósent frá síðasta ári. Þá var mikil fjölgun umsókna um nám við kennaradeild skólans. Innlent 7.6.2024 11:54
Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn. Innlent 7.6.2024 11:41
Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju. Innlent 7.6.2024 11:40
Bjargráð fyrir bændur og ósáttir trillukarlar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann Bændasamtaka Íslands um það tjón sem bændur á Norður- og Austurlandi eru að verða fyrir í kuldatíðinni sem nú gengur yfir. Innlent 7.6.2024 11:38
Hjúkrunarfræðingar fordæma aukið aðgengi að áfengi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skorað á Alþingi og Ríkisstjórn að takmarka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýðheilsu þjóðarinnar. Innlent 7.6.2024 11:16
Læknar sagðir útbýta vottorðum eins og sælgæti Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda tók upp þann þráð sem Kristján Berg Fiskikóngur hóf um brottrekna starfsmenn í viðtali í Bítinu. Helst var á honum að skilja að læknar séu ævintýralega glaðir að skrifa út vottorð. Innlent 7.6.2024 10:39
Hafró ráðleggur eins prósents hækkun aflamarks þorsks Hafrannsóknastofnun kynnti úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár í morgun. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna var lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Innlent 7.6.2024 10:27
Hraungígur brast í morgun Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með. Innlent 7.6.2024 10:16
Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí Rishi Sunak segir það hafa verið mistök að yfirgefa minningarathöfn um innrásina í Normandí í gær. Það gerði hann til þess að gefa sjónvarpsviðtal heimafyrir, þar sem hann stendur í harðri kosningabaráttu. Erlent 7.6.2024 10:02
Erfitt fyrir konur að fara frá heimili í langan tíma fyrir fæðingu Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og Heiðdís Anna Marteinsdóttir, verðandi ljósmóðir, segja fæðingarþjónustu á landsbyggðinni ábótavant. Heiðdís og Unnur fóru yfir stöðuna í faginu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 7.6.2024 09:53
Bein útsending: Hafró kynnir komandi fiskveiðiár Hafrannsóknastofnun kynnir í dag úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár. Kynningin hefst klukkan níu og fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Innlent 7.6.2024 08:31
Eldur í íbúð í Kóngsbakka Eldur kom upp í íbúð í Kóngsbakka í Breiðholti fyrir skömmu. Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út. Innlent 7.6.2024 08:26
Gular viðvaranir enn í kortunum Meginþunginn af langvinnu norðanhreti er afstaðinn en þó eru enn gular viðvaranir í kortunum. Slyddu eða snjókomu er spáð á Norðurlandi í kvöld, líklega síðustu gusunni af kaldri úrkomu í bili. Innlent 7.6.2024 07:52
Bjarni vill fjölga meðmælendum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu. Innlent 7.6.2024 07:30
Íbúar óttast nýtt hverfi og að ekki verði tekið tillit til þeirra Hópur íbúa í Garðabæ skoðar nú að stofna hagsmunasamtök til að mótmæla fyrirhugaðri uppbyggingu í Arnarlandi í Garðabæ. Sigurður Hólmar Jóhannesson er hluti af þeim hópi. Hann mætti á fund bæjarstjórnar í dag, ásamt um þrettán öðrum, til að mótmæla samráðsleysi við íbúa. Hann segir íbúa ekki mótfallna uppbyggingu á svæðinu en þau telji að hún ætti að vera meira í takt við það sem fyrir er. Innlent 6.6.2024 23:55
Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Vinstriflokkarnir í Hollandi virðast hafa haft nauman sigur á fjarhægri flokki í Evrópuþingskosningum þar í dag. Holland er fyrsta landið sem kýs í kosningunum en hægri- og fjarhægri flokkum er almennt spáð góðu gengi í álfunni. Erlent 6.6.2024 23:33
Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast. Innlent 6.6.2024 22:45
Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál. Innlent 6.6.2024 22:09
Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Joe Biden Bandaríkjaforseti líkti stríðinu í Úkraínu ítrekað við baráttu bandamanna gegn fasískum öflum í síðari heimsstyrjöldinni í ávarpi við minningarathöfn um innrásina í Normandí í dag. Evrópu væri ógnað ef Úkraína tapaði stríðinu. Erlent 6.6.2024 20:53
Næsta gusa lendi á landinu annað kvöld Langvarandi veðurviðvaranir eiga loks að falla úr gildi í nótt. Appelsínugul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra en gul viðvörun á vestan-, norðan, og austanverðu landinu. Veður 6.6.2024 20:41
Grasið vel sprottið og heyskapur hafinn Heyskapur hófst undir Eyjafjöllum í dag. Bændur á Þorvaldseyri segjast finna til með starfssystkinum sínum norðan heiða. Innlent 6.6.2024 20:40
Stunda njósnir gegn íslenskum stjórnvöldum og fyrirtækjum Staðfest dæmi eru um hópar netþrjóta sem ganga erinda erlendra ríkja á borð við Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu geri netárásir á Íslandi. Nokkur atvik hafa komið upp þar sem njósnað er um íslenska stjórnsýslu og fyrirtæki að sögn netöryggissérfræðings. Innlent 6.6.2024 20:31
Tók fjóra daga að þíða skautasvellið Í fyrsta sinn í sjö ár sést í steypuna undir ísnum í Skautahöllinni í Laugardal þar sem endurbætur standa nú yfir. Fjóra daga tók að þíða ísinn áður en hægt var rífa niður veggi. Innlent 6.6.2024 19:10
Borgin undirbýr sölu Perlunnar, rafstöðvar og bílastæða Söluferli á Perlunni, rafstöðvarhúsi í Elliðaárdal og bílastæðum undir Hörpu var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Lágmarksverð fyrir Perluna verður þrír og hálfur milljarður króna en væntanlegur kaupandi þarf að opna dyr sínar fyrir grunnskólanemum. Innlent 6.6.2024 18:04