Fréttir
241 242 243 244 245 246 247 248 249 … 334 ›
Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Frumvarp þess efnis að heimila ætti þungunarrof fram að 12. viku var fellt á færeyska þinginu á miðvikudaginn. Málið féll á jöfnu, en atkvæðagreiðslan fór 15 -15. Á þinginu sitja 33. Erlent 18.5.2024 10:52
Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu, en það er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem höfðar málið. Innlent 18.5.2024 09:57
Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á Suðurlandi, Suðausturlandi og við Faxaflóa á morgun. Gengur í austan 15-23 m/s, hvassast austan til. Innlent 18.5.2024 09:28
Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, sem eru í meirihluta í Ölfusi, finnst leiðinlegt að fresta fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu íbúa um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast í dag. Hins vegar sé ekkert annað í stöðunni. Innlent 18.5.2024 09:23
„Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Jóni Gnarr þykir sérkennilegt að forsetaframbjóðendum hafi ekki verið boðið í bústað forseta Íslands á Bessastöðum. Þetta kom fram í forsetakappræðum á Stöð 2 síðastliðið fimmtudagskvöld. Innlent 18.5.2024 09:01
Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Umboðsmaður skuldara stendur stundum bjargarlaus þegar kemur að því að greiða úr fjármálum fanga og fyrrverandi fanga. Kallað er eftir heildarsýn stjórnvalda og að sérstaklega verði skoðað hvernig meðhöndla eigi skuldir fanga sem oftar en ekki losna úr afplánun en stíga um leið inn í skuldafangelsi. Innlent 18.5.2024 08:01
Of þung en annars hraust á Ozempic Íslendingum sem nota sykursýki- og þyngdarstjórnunarlyf hefur fjölgað um rúm sextíu prósent á aðeins sextán mánuðum. Notendur lyfjanna sem fréttastofa hefur rætt við segjast flestir eingöngu á lyfjunum til að léttast en eru hraustir að öðru leyti. Ung kona sem notaði Ozempic segir sligandi kostnað einu ástæðu þess að hún hætti á lyfinu. Innlent 18.5.2024 08:01
Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Þegar klukkan var hálffimm í nótt var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluna bar að garði voru allir þeir sem áttu hlut í máli að ganga á brott og enginn virtist slasaður eftir áflogin. Innlent 18.5.2024 07:17
Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Karlmaður sem réðst á eiginmann Nancy Pelosi, þáverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, á heimili þeirra í San Francisco var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Hann var sakfelldur fyrir líkamsárás og tilraun til mannráns Erlent 17.5.2024 23:11
Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Heildarumfang útgjalda sem ríkissjóður hefur efnt til vegna náttúruhamfara við Grindavík stefnir í hundrað milljarða. Forsætisráðherra segir skyldur gagnvart heimilum vega þyngra en gagnvart atvinnustarfsemi. Innlent 17.5.2024 20:30
Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Bæjarstjórn Ölfuss ákvað síðdegis að fresta íbúakosningu um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast á morgun. Vísað er til þess að bréf forstjóra First Water hafi fyllt málið vafa og óvissu sem ekki verði við unað. Innlent 17.5.2024 20:14
Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar hefur verið lífleg og á köflum skrautleg, að dómi Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra. Hann segist hafa tilfinningu fyrir hvern hann ætli að kjósa en vill ekki gefa það upp til að gera kosningarnar ekki enn pólitískari en ella. Innlent 17.5.2024 19:27
Dregur saman með efstu frambjóðendum Ekki er tölfræðilega marktækur munur á fylgi þriggja efstu frambjóðendanna til forseta í nýrri skoðanakönnun Gallup. Fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Höllu Hrundar Logadóttur minnkar milli kannana en Halla Tómasdóttir sækir á. Innlent 17.5.2024 18:39
Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Kvikusöfnun heldur stöðugt áfram undir Svartsengi og er nú magn kviku það mesta frá því áður en kvikugangur myndaðist 10. nóvember. Haldi kvikusöfnunin áfram án kvikuhlaups eða eldgoss segir Veðurstofan að huga þurfi að fleiri sviðsmyndum um framhaldið. Innlent 17.5.2024 18:06
Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Íslendingum sem nota sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf hefur fjölgað um rúm sextíu prósent á aðeins sextán mánuðum. Notendur lyfjanna sem fréttastofa hefur rætt við segjast eingöngu á lyfjunum til að léttast en eru hraustir að öðru leyti. Innlent 17.5.2024 18:01
Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Landsréttur staðfesti dóm yfir karlmanni í dag sem varðar fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Móðir hans hafði verið sakfelld í héraði í málinu en lést á síðasta ári. Landsréttur vísaði sakargiftum hennar frá dómi. Innlent 17.5.2024 16:22
Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra, Guðný Sverrisdóttir fyrrverandi sveitarstjóri og Gunnar Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar. Innlent 17.5.2024 16:19
Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu „Þetta er bara mitt „identity“. Þetta er minn karakter. Ég hef verið kallaður þetta í sautján ár,“ segir Rúnar Hroði Geirmundsson um ákvörðun Mannanafnanefndar að úrskurða að leyfa ekki fólki að bera nafnið Hroði. Innlent 17.5.2024 15:38
Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Ríkisstjórnin leggur til stuðningslán til grindvískra heimila og fyrirækja í Grindavík að viðbættum viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta. Innlent 17.5.2024 15:29
Skipið leggur úr höfn Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt hefur lagt úr höfn í Vestmannaeyjum á leið sinni til Rotterdam. Farbanns er krafist yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Innlent 17.5.2024 15:23
„Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Karl Erlendsson, eldri borgari, telur Sigurð Ágúst Sigurðsson formann FEB skjóta vel yfir markið þegar hann heldur því fram að eldri borgarar á landsbyggðinni vilji leggja undir sig Landsamband eldri borgara. Innlent 17.5.2024 15:05
Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá „Þetta er fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði. Brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ segir Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar við brúna. Innlent 17.5.2024 14:42
Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju „Mér finnst mjög mikilvægt að forseti sýni frumkvæði á sviði utanríkismála en auðvitað verður það að gerast innan ramma utanríkisstefnunnar og í samráði við stjórnvöld, sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Innlent 17.5.2024 14:05
Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Landspítali tók á móti 4.500 fleiri sjúklingum á árinu 2023 en árið á undan. Það jafngildi því að spítalinn sinni tólf fleiri einstaklingum á degi hverjum en árið áður. Innlent 17.5.2024 14:01
Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Inga Fjóla Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Kóraskóla hefur verið ráðin skólastjóri Kóraskóla. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Kópavogs frá því í gær en mikil ólga hefur verið meðal kennara í skólanum vegna ráðningu skólastjóra. Innlent 17.5.2024 13:50
Bein útsending: Ársfundur Landspítala Ársfundur Landspítala fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 17.5.2024 13:30
Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17.5.2024 13:24
Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44
Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir Rússa ekki stefna að því að hernema Kharkív en hersveitir landsins hafa sótt fram í héraðinu undanfarna daga. Erlent 17.5.2024 12:36
Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59