Fastir pennar

Fallandi fylgi Samfylkingar

Jón Kaldal skrifar

Það er örugglega rétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, að minnkandi fylgi við ríkisstjórnina tengist erfiðri stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Auðvitað er þyngra að sækja fram í mótvindi en þegar byrinn er í bakið.

Fastir pennar

Mývargur

Einar Már Jónsson skrifar

Í Frakklandi hefur frumrannsóknir í vísindum nokkuð borið á góma að undanförnu. Hafa vísindamenn við hina opinberu vísindastofnun CNRS risið upp og gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að láta þá iðju sitja á hakanum, en beina fjármagninu í staðinn að hagnýtum rannsóknum alls konar, kannske í samvinnu við fyrirtæki og samkvæmt óskum þeirra.

Fastir pennar

Tilkall til píslarvættis

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Ekki ég," tauta ég gjarnan með sjálfum mér þegar smeðjulegi maðurinn kemur í útvarpinu og segir að allir elski KFC: það er ein tegund andófs. Og eiginlega það eina sem ég stunda í seinni tíð.

Fastir pennar

Skólinn hlýtur að bera ábyrgð

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Fyrr á þessu ári var móðir dæmd í héraði til að greiða kennara barns síns bætur vegna áverka sem hann hlaut í slysi í skólanum. Slysið varð með þeim hætti að barn skellti aftur rennihurð sem lenti á höfði kennarans en hann hlaut 25 prósenta örorku af völdum áverkans.

Fastir pennar

Vorboðar

Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar

Spennan er gríðarleg. Það þarf að greiða hárið í fallegan hnút, yfirfara skóna og mæta tímanlega. Í kvöld verður hin árlega vorsýning balletskóla Sigríðar Ármann.

Fastir pennar

Norðlingaholtsbardaginn

Jón Kaldal skrifar

Átök lögreglu við flutningabílstjóra og vegfarendur við Norðlingaholt í gær eru forvitnileg á ýmsa kanta. Af viðbrögðum við þeim að dæma virðist almenn samúð með aðgerðum flutningabílstjóra vera að fjara mjög hratt út.

Fastir pennar

Þögul flóðbylgja

Auðunn Arnórsson skrifar

Snarhækkað verð á ýmsum grunntegundum matvæla í heiminum, svo sem korni, maís, hrísgrjónum, baunum og kjöti, veldur því nú að hungurógnin vofir yfir hundruðum milljóna manna.

Fastir pennar

Ábyrgð pólitíkusa

Björgvin Guðmundsson skrifar

Það er mikilvægt að forsætisráðherra sýni ákveðna yfirvegun þegar kemur að spurningum og svörum um íslenskt efnahagslíf. Það hefur hann sýnt undanfarnar vikur.

Fastir pennar

Er Bréf til Láru bjánalegt?

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Skemmtileg umræða var í Morgunblaðinu í síðustu viku um gáfnafar unglinga í framhaldi af léttúðugum ummælum Egils Helgasonar í Kiljunni þegar rætt var um Bréf til Láru eftir Þórberg. Hann sagði glaðhlakkalega: „Unglingar eru náttúrlega mjög vitlausir."

Fastir pennar

Blaðberinn fær góðar viðtökur

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Fréttablaðið hóf dreifingu Blaðberans nú fyrir helgi. Blaðberinn er hvort tveggja í senn, blaðakarfa og taska sem nota má til að bera blöðin sín í endurvinnslu.

Fastir pennar

Gulrótarlögmálið

Hallgrímur Helgason skrifar

Enn er Seðlabankinn í sviðsljósinu. Og enn á ný á röngum forsendum. Tilskipunum hans, sem áður var hlýtt í hljóði, er nú tekið með öllu í bland; hlátri, reiði og furðu.

Fastir pennar

Samkeppnisgrundvöllurinn

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Á fimmtudagskvöld var fjallað um innlenda dagskrárframleiðslu í Ríkissjónvarpinu: Tökur eru nýlega hafnar á þáttaröðinni Dagvaktin sem sýnd verður á Stöð 2.

Fastir pennar

Á þunnum ís?

Þorvaldur Gylfason skrifar

Snögg innsýn í stjórnmálasöguna getur varpað ljósi á nýliðna atburði og sviptingar í efnahagslífi á Íslandi. Áratugum saman eftir að Framsóknarflokkurinn náði völdum á Íslandi 1927 með þriðjung kjósenda á bak við sig var landið reyrt í viðjar hafta umfram flest eða öll önnur ríki Vestur-Evrópu nema kannski Írland.

Fastir pennar

Uppreisn á fölskum forsendum

Jón Kaldal skrifar

Hringlandaháttur borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna í málefnum REI er illskiljanlegur. Á sama tíma og sjálfstæðismenn eru ríkismegin á fleygiferð við stofnun dótturfélaga opinberra orkufyrirtækja um útrásarverkefni vilja samherjar þeirra í borgarstjórn selja REI, útrásarfélag Orkuveitunnar, á þeim forsendum að ekki megi standa í áhætturekstri með peninga skattgreiðenda utan landsteinanna.

Fastir pennar

Gore-áhrifin

Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar

Það var sól og sunnanvindur, þegar Gore reið í garð mánudagskvöldið 7. apríl. Þegar hann kvaddi sólarhring síðar, snjóaði í Reykjavík. Gárungarnir kalla þetta Gore-áhrifin, því að hvarvetna, þar sem þessi farandprédikari hefur komið við á einkaþotu sinni í því skyni að vara við hlýnun jarðar, kólnar snögglega.

Fastir pennar

Eftirmál

Þorsteinn Pálsson skrifar

Eftirmál síðustu vaxtahækkunar Seðlabankans hafa aðallega verið tvenns konar: Annars vegar birtast þau í kröfum úr ýmsum áttum um nýja yfirstjórn bankans.

Fastir pennar

Hrói Höttur fengi flog

Þorvaldur Gylfason skrifar

Mörg undangengin ár hef ég hér og víðar vakið máls á auknum ójöfnuði í skiptingu auðs og tekna á Íslandi, og það hafa aðrir einnig gert, þar á meðal Guðmundur Örn Jónsson verkfræðingur og Stefán Ólafsson prófessor.

Fastir pennar

Umboð til umbóta

Auðunn Arnórsson skrifar

Silvio Berlusconi, hinn skrautlegi „Cavaliere“, snýr aftur til valda. Ítalskir kjósendur ákváðu í kosningunum sem fram fóru á sunnudag og mánudag að gefa honum nýtt tækifæri eftir að miðju-vinstristjórn Romanos Prodi hafði spilað frá sér vinsældum og trúverðugleika með auknum álögum á almenning og ráðaleysi í mörgum málum sem mest brunnu á fólki eins og úrbætur í efnahags-, innflytjenda- og sorphirðumálum

Fastir pennar

Ólympíuleikar

Einar Már Jónsson skrifar

Ólympíuleikarnir hófust í París mánudaginn 7. apríl, vasklega var keppt og mörg met voru sett. Þótt keppnisgreinarnar væru að vísu ekki þær sömu og verða í Peking í sumar þegar leikunum verður þar haldið áfram, er hætt við að sá árangur sem náðist í París muni skyggja nokkuð á það sem fara mun fram í höfuðstað Miðríkisins, hvað sem það verður.

Fastir pennar

Eftirminnilegur maður

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Til eru þeir sem segja frá eigin reynslu með svo lifandi og myndrænum hætti að hún öðlast sjálfstætt líf í vitund manns og skrif og spjall um skyldar aðstæður kalla þessar minningar ósjálfrátt fram.

Fastir pennar

Þögn er ekki sama og samþykki

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Í vikunni sem leið féll dómur í máli þar sem ákært var fyrir nauðgun. Maðurinn sem var ákærður var sýknaður af öllum kröfum.

Fastir pennar

Kína í stað evru

Þorsteinn Pálsson skrifar

Hverju ríki er mikilvægt að ákvarða stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Breytingar og þróun laga hana að nýjum aðstæðum. Fótfestan er hins vegar að öllu jöfnu stöðugri og felst í langtíma hagsmunum og hugsjónum.

Fastir pennar

Í útlöndum er ónýtt kjöt

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Þegar ég var krakki var kjúklingur aðallega eitthvert fínerí í útlöndum. Á þeim árum var samræmdur matseðill á öllum heimilum landsins alla daga vikunnar.

Fastir pennar

Skotnir sendiboðar

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Harkaleg gagnrýni hefur birst undanfarna sólarhringa um stjórnendur Seðlabankans í kjölfar síðustu ákvarðana um stýrivexti. Bankinn er sagður ráðalaus.

Fastir pennar

Glæpagengiskenningin

Þorvaldur Gylfason skrifar

Gengi gjaldmiðla sveiflast upp og niður á gjaldeyrismörkuðum. Til þess liggja tvær höfuð­ástæður.

Fastir pennar

Að deila kjörum

Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar

Svissneskur listnemi sem var hér um áramót fyrir hartnær tuttugu árum átti ekki orð yfir flugeldana sem skotið var á loft. Ég laug því að henni að hér væri hefð að kaupa flugelda fyrir allan peninginn sem maður ætti eftir við áramót og hefja hvert ár á núlli. Henni fannst það frábær hugmynd. Ég var svo ung og vitlaus að ég gerði mér ekki grein fyrir því að flestir byrjuðu hvert ár í mínus og hefðu verið alsælir með að geta byrjað það á núlli.

Fastir pennar