Fastir pennar

Slæm samheldni

Umræður um nýja eigendur Hitaveitu Suðurnesja hafa kallað fram ólíkt pólitískt tungutak. Hugtakið einkavæðing er helsta bitbeinið. Í ljósi þess að hér er að stærstum hluta til um einokunarrekstur að ræða er eðlilegt að spurningarmerki séu sett um einkavæðingu.

Fastir pennar

Sparisjóðirnir þurfa að breytast

Óli Kristján Ármannsson skrifar

SPRON hefur upplýst um fyrstu skref stjórnar sjóðsins í þá átt að breyta honum í hlutafélag. Stórfelldar breytingar hafa átt sér stað á bankamarkaði hér á örfáum árum þar sem smábankar hafa breyst í alþjóðlegar fjármálastofnanir.

Fastir pennar

Eftir hverju er verið að bíða?

Nú í júlí eru rétt tvö ár liðin frá því að skattheimta af dísilolíu var einfölduð. Þungaskattur var felldur niður og í hans stað var olíugjaldið hækkað. Eitt af yfirlýstum markmiðum breytinganna var að fjölga dísilbílum í fólksbílaflota þjóðarinnar. Fyrir vikið átti bílaflotinn að gefa frá sér minna magn gróðurhúsalofttegunda og þar með verða umhverfisvænni.

Fastir pennar

Bréf til Einars Más

Kæri Einar Már Jónsson! Þar sem þú situr úti í París, hefur þú skrifað bók gegn frjálshyggju, Bréf til Maríu. Þú hefur augljóslega hugsað þér að skrifa nýtt Bréf til Láru. En þú ert enginn Þórbergur.

Fastir pennar

Hungraðir fuglar

Mikill uppgangur máva hefur verið í höfuðborginni og víðar um landið þetta sumar og árið í fyrra. Sést hefur til þeirra á ótrúlegustu stöðum, jafnvel uppi við Heklu þar sem mikið er af ormi í mosanum. Má rekja ferðir þeirra til þess að lítið er af sandsíli í sjónum sem er helsta fæða mávanna sem að öllu jöfnu halda sig niðri við sjóinn, enda er mávurinn strandfugl.

Fastir pennar

Þrefaldur skaði

Fólk er ólíkt að upplagi, það blasir við. Um hitt geta menn deilt, hvort þjóðir eru einnig ólíkar að eðlisfari. Sumir hallast að þeirri skoðun, að skyldar þjóðir hljóti allar að vera eins inn við beinið samkvæmt einfaldri meðaltalsreglu.

Fastir pennar

Róttæk hugsun

Eftirspil sölu ríkisins á hlut í Hitaveitu Suðurnesja hefur opnað áhugaverða umræðu. Annars vegar hefur verið á það bent að brýnast sé að verja almannahagsmuni að því er varðar öflun og dreifingu á rafmagni og hita. Staðhæft er að opinber rekstur tryggi bæði þjónustu­öryggi og lægsta mögulega verð.

Fastir pennar

Blönduóslögreglan vísar veginn

Lögreglan á Blönduósi hefur um árabil mátt þola illt umtal vegna rösklegrar framgöngu við vegaeftirlit. Þó vill svo til að þeir sem hafa horn í síðu þessara samviskusömu laganna varða eru fyrst og fremst bílstjórar sem aka yfir löglegum hámarkshraða.

Fastir pennar

Tökum okkur tak

Sú áherzla á efld tengsl Íslands við Afríku, sem kom fram í nýafstaðinni Afríkuferð utanríkisráðherra, er rétt og æskileg. Í Afríku eru mörg af fátækustu og vanþróuðustu löndum heims, sem þurfa mest á því að halda að hinar aflögufærari þjóðir heims leggi þeim lið í að komast á framfarabraut.

Fastir pennar

Er þögn sama og samþykki?

Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir naugðun á stúlku á Hótel Sögu olli talsverðum titringi þar sem mörgum þótti sannað að naugðun hefði átt sér stað. Atli Gíslason lögmaður var meðal þeirra sem sýndi viðbrögð við dómnum og sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudagskvöldið að dómurinn væri skelfilegt afturhvarf til fortíðar.

Fastir pennar

Rétt

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið heildarafla næsta fiskveiðiárs. Athugasemdir um þá ákvörðun geta í sjálfu sér falist í því eina orði sem gjarnan er ritað á villulausar prófúrlausnir: Rétt.

Fastir pennar

Ef maður getur haldið sér vakandi

Það þarf þrekmenni til að sitja ráðstefnur. Sérstaklega ef þær eru stórar og langvarandi. Ég var nærri búinn að gleyma þessari lífsreynslu minni, þangað til að ég var sendur sem fulltrúi Alþingis á þing Evrópuráðsins í Strassbourg ásamt með alþingismönnunum Guðfinnu Bjarnadóttur og Steingrími J. Sigfússyni.

Fastir pennar

Hefur áhrif á væntingarnar

Staðreyndin er sú og það hefur komið fram í gagnrýni Seðlabankans og alþjóðastofnana að það er fordæmi ríkisins og inngrip á húsnæðismarkaði sem hvetur hann áfram og kyndir undir hækkun fasteignaverðs með tilheyrandi hækkunum.

Fastir pennar

Ráðherra kominn úr fríi

Þeir sem vinna í heilbrigðisgeiranum kunna sínum nánustu hollráð: ekki veikjast að sumri til, og alls ekki á föstudögum eða um helgar. Sjúkrastofnanir um allt land eru þá fáliðaðar af vönu fólki, margir í fríi, bekkurinn þunnskipaður af vönum höndum og þjálfuðum huga.

Fastir pennar

Börn engin fyrirstaða

Einn munurinn á ríkum þjóðum og fátækum er sá, að ríku þjóðirnar hafa meiri fjárráð. Fleira hangir þó á spýtunni en fjárráðin ein. Annar munur á ríkidæmi og fátækt er sá, að fólk í ríkum löndum lifir jafnan lengi í litlum fjölskyldum og fólk í fátækum löndum lifir stutt í stórum fjölskyldum.

Fastir pennar

Þróun eða stöðnun

Sú var tíð að það var talið ýmsum stjórnmálamönnum til vegsauka og virðingar að gefa sérfræðingum fyrir sunnan langt nef. Sérstaklega gaf þetta góða raun þegar fiskifræðingar áttu í hlut. Af yfirlýsingum sjávarútvegsráðherra verður ekki ráðið að hann ætli að láta ímyndarvanda af þessu tagi rugla sig í ríminu við ákvörðun heildarafla enda þunnur þrettándi í nútímapólitík.

Fastir pennar

Risaveldi í kreppu

Bandaríkjamenn, voldugasta þjóð heims, halda upp á þjóðhátíð sína á morgun, 4. júlí, er rétt 231 ár verða liðin frá því Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði.

Fastir pennar

Lastaskattar í þágu góðra mála

Það eru iðjuleysingjar sem spila póker upp á pening. Hinir sem þiggja peningaverðlaun eða verðmæta vinninga fyrir góðan árangur í bridds eða skák eru taldir afreksmenn og njóta velþóknunar.

Fastir pennar

Flugvöllur á floti í Vatnsmýri

Nýting lands í Vatnsmýrinni í Reykjavík er lykilatriði þegar horft er til framtíðar í skipulagi og uppbyggingu í höfuðborginni. Þess vegna sætir nokkurri furðu hversu illa gengur að fá ráðamenn, bæði ríkis og borgar, til að taka af skarið og móta stefnu sem fylgja skal um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri.

Fastir pennar

Hver á hvað?

engin algild uppskrift er til um hvernig skipta á verkefnum milli ríkis og sveitarfélaga. Um tvær viðmiðanir í þeim efnum hefur eigi að síður ríkt ríkur samskilningur. Önnur er sú að sveitarfélögin annist sem mest af þeirri þjónustu sem stendur borgurunum næst. Hin segir að ekki megi slíta í sundur ákvörðunarvald og fjármála­ábyrgð.

Fastir pennar

Takmörk félagshyggju

Íslenskir félagshyggjumenn ættu að staðnæmast við hugmyndir tveggja snjallra hugsuða. Annar er John Rawls, sem lést fyrir nokkrum árum, en var lengi heimspekiprófessor í Harvard-háskóla. Hinn er Arthur Laffer, sem er í fullu fjöri og raunar væntanlegur næsta haust til Íslands, en hann var um skeið hagfræðiprófessor í Chicago-háskóla og ráðgjafi Bandaríkjaforseta. Báðir þessir menn setja ríkisafskiptum takmörk, sem skynsamir félagshyggjumenn hljóta að viðurkenna.

Fastir pennar

Skattur? Nei, gjald

Borgarstjórinn í London, Ken Livingstone, lagði fyrir nokkrum árum umferðargjald á ökumenn í London til að draga úr umferðarþunganum í miðborginni, enda var hann orðinn nær óbærilegur.

Fastir pennar

Ný Evrópa án okkar

Leiðtoga ríkja Evrópusambandsins bíður nú það miserfiða verkefni að sannfæra íbúa landa sinna um ágæti nýs stjórnskipunarsáttmála sem þeir lönduðu eftir nokkurn barning í Brussel á föstudaginn.

Fastir pennar

Baráttan fyrir ábyrgum akstri

Ferðasumarið er hafið. Á það var rækilega minnt þegar langar raðir bifreiða mynduðust á umferðaræðunum til og frá höfuðborginni, fyrst út úr bænum á föstudag og svo aftur inn í bæinn á sunnudag.

Fastir pennar

Umræðan mótist af heildarsýn

Hröðum þjóðfélagsbreytingum fylgir að endurskoða þarf ýmsa þætti í samfélaginu. Þannig hefur vægi fjármála- og viðskiptalífs aukist verulega í samfélaginu, án þess að samsvarandi vöxtur fylgi í eftirlitsstofnunum sem sinna þeim málaflokki.

Fastir pennar

Ljósið loftin fyllir

Nú eru dagar langir, birtan hvolfist yfir okkur þessi dægrin: nætur skammar og er dregur að hinu forna miðnætti leggst þögn yfir allt. Heyra má samtal manna langt að í borginni – sláttumann bölva yfir gamalli tvígengisvél sem vill ekki þýðast hann til sláttar langt að.

Fastir pennar

Starf eða hlutverk?

Hvað er þingmennska? Er það starf í hefðbundinni merkingu þess orðs? Er Alþingishúsið vinnustaður eins og hver önnur skrifstofa eða færibandaframleiðsla? Spurningar af þessu tagi vakna vegna umræðu um nýja þingmenn, önnur hlutverk þeirra og tengsl við fyrri störf.

Fastir pennar

Aflamarkskerfið í uppnámi

Lái mér hver sem vill, en ég hef lengi undrast þann lofsöng sem sunginn hefur verið um fiskveiðistjórnunarkerfi okkar Íslendinga. Fræðimenn í hagfræði, hagsmunaðilar í sjávarútvegi, stjórnmálamenn í valdastólum, hafa um árabil lofað og prísað aflamarkskerfið, sem á að hafa komið skikki á útgerð og fiskveiðar og leitt af sér hagræðingu í greininni með því að innleiða markaðstorg hins frjálsa framsals kvótans.

Fastir pennar

Grannþjóðir taka höndum saman

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er nú stödd í Noregi þar sem hún hittir í dag Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Áður ræddi hún við Anne-Grete Strøm-Erichsen varnarmálaráðherra og Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra. Eitt aðalmálið á dagskrá viðræðna Ingibjargar við hina norsku kollega sína var hinn nýi tvíhliða samningur Íslands og Noregs um eflt samstarf á sviði öryggis- og varnarmála.

Fastir pennar