Erlent
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 334 ›
Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Kamala Harris og Donald Trump mældust með jafn mikinn stuðning á landsvísu í nýrri skoðanakönnun New York Times, Philadelphia Inquirer og Siena College. Erlent 20.9.2024 12:44
Fógeti skaut dómara Fógeti strjálbýllar sýslu í Kentucky í Bandaríkjunum skaut í gær dómara til bana. Fógetinn er sagður hafa gengið inn í klefa dómarans um miðjan dag í gær og skotið hann nokkrum sinnum eftir rifrildi. Skömmu síðar gaf fógetinn sig fram til lögreglu og var handtekinn. Erlent 20.9.2024 09:54
Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Kafbáturinn Títan, sem fórst í leiðangri að flaki Titanic í fyrra, bilaði nokkrum dögum fyrir hinstu förina. Fimm létust í slysinu, þeirra á meðal Stockton Rush, forstjóri fyrirtækisins sem átti kafbátinn. Erlent 20.9.2024 08:20
Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Íbúar Springfield í Ohio í Bandaríkjunum eru ekki á einu máli hvað varðar yfirvofandi heimsókn Donald Trump en forsetinn fyrrverandi sagði á dögunum að hann hygðist heimsækja borgina á næstu tveimur vikum. Erlent 20.9.2024 07:19
Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Herþotur Ísraelshers gerðu árásir á fjölda skotmarka í suðurhluta Líbanon í gærkvöldi, aðeins klukkustundum eftir að Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, hét hefndum fyrir sprengingar símboða og talstöðva liðsmanna samtakanna. Erlent 20.9.2024 06:37
Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Ríkisstjóraefni Repúblikanaflokksins í Norður-Karólínu lýsti sjálfum sér sem „svörtum nasista“ og sagðist vilja endurvekja þrælahald á klámspjallsíðu. Hann segist ætla að halda framboði sínu til streitu þrátt fyrir uppljóstrarnirnar um ummælin. Erlent 19.9.2024 23:01
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí. Erlent 19.9.2024 12:31
Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Fjórum skipverjum var bjargað eftir að skip sökk nærri Nanortalik við suðurströnd Grænlands í nótt. Um 20 þúsund lítrar af dísilolíu eru í skipinu og er nú unnið að því að koma í veg fyrir að umhverfisslys verði. Erlent 19.9.2024 11:30
Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Yfirvöld í Portúgal lýstu í vikunni yfir neyðarástandi vegna rúmlega hundrað skógarelda sem loga víðsvegar um norðanvert landið. Þúsundir slökkviliðsmenn berjast við eldana en vitað er til þess að sjö hafi látið lífið vegna eldanna. Erlent 19.9.2024 10:42
Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Margrét Þórhildur, Danadrottning, hefur verið lögð inn á sjúkrahús eftir að hún féll í gærkvöldi. Drottningin er 84 ára gömul og datt hún í kastala konungsfjölskyldunnar í Fredensborg. Erlent 19.9.2024 10:19
Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Lögregluyfirvöldum í Bedford í Ohio í Bandaríkjunum bárust tilkynningar á sunnudag um átta ára stúlku og fjölskyldubifreið sem var saknað og ökumann sem ók fremur furðulega. Erlent 19.9.2024 08:12
Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi Um 20 konur hafa sakað Mohamed Al Fayed, fyrrverandi eiganda Harrods, um kynferðisofbeldi, þar af fimm um nauðgun. Þetta kemur fram í nýrri heimildarmynd BBC, Al Fayed: Predator at Harrods. Erlent 19.9.2024 07:16
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Vitorðsmaður Dominique Pelicot, sem er ákærður fyrir að byrla eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fá tugi manna til að nauðga henni ítrekað á tíu ára tímabili, sagði fyrir dómi í Frakklandi í dag að hann hefði einnig byrlað konu sinni og fengið menn til að nauðga henni. Erlent 18.9.2024 21:11
Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Þrír hafa verið handteknir eftir skotárás við skóla í Groruddalen, norðaustur af Osló. Norska lögreglan leitar enn að einum einstaklingi sem er talinn hafa særst í árásinni. Erlent 18.9.2024 15:06
Talstöðvar springa einnig í Beirút Degi eftir að fjölmargir símboðar í notkun meðal meðlima Hezbollah-samtakanna í Líbanon og Sýrlandi sprungu, gerðist það sama með talstöðvar þeirra. Sprengingar hafa átt sér stað víðsvegar um Beirút og annarsstaðar í Líbanon. Erlent 18.9.2024 14:37
Harris eykur forskotið á landsvísu Útlit er fyrir að staða Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, hafi batnað eilítið á landsvísu í Bandaríkjunum eftir kappræðurnar milli hennar og Donalds Trump. Samkvæmt meðaltali kannana hefur fylgi hennar aukist um 0,4 prósentustig og eru líkur hennar á sigri taldar meiri en nokkru sinni áður. Erlent 18.9.2024 14:16
Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Vatnsstaða í mörgum þverám Amasonfljóts er nú lægri en nokkru sinni hefur mælst áður af völdum langvarandi þurrks. Sumar ár sem voru áður siglanlegar hafa jafnvel þornað alveg upp. Fjöldi þorpa hefur einangrast því ekki er lengur hægt að sigla þangað. Erlent 18.9.2024 13:32
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18.9.2024 11:22
Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Rússneskir ríkisfjölmiðlar eru ekki lengur velkomnir á samfélagsmiðlum Meta vegna óheiðarlegra vinnubragða þeirra við að breiða út áróður fyrir stjórnvöld í Kreml. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu um refsiaðgerðir gegn einum fjölmiðlinum í síðustu viku. Erlent 18.9.2024 11:11
Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Íbúar í grennd við stóra vopnageymslu í Tver-héraði í Rússlandi, skammt frá Belarús, vöknuðu í nótt við kröftugar sprengingar og stendur vopnageymslan í ljósum logum. Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmikla drónaárás á vopnageymsluna, sem þeir telja að hafi hýst eldflaugar og önnur hergögn frá Norður-Kóreu. Erlent 18.9.2024 09:45
Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“. Erlent 18.9.2024 09:29
Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Rannsóknir Microsoft hafa leitt í ljós að „tröllabúið“ Storm-1516, rússneskur hópur tölvuþrjóta hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu, sé að baki myndskeiði þar sem Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, er sökuð um að hafa ekið á stúlku og svo á brott. Erlent 18.9.2024 07:49
Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, neitaði sök þegar hann var dreginn fyrir dómara í New York í gær. Erlent 18.9.2024 06:57
169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 18.9.2024 06:29
Settu sprengjur í símboðana Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon. Erlent 17.9.2024 23:26
Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum Þýskur ferðamaður er látinn eftir hákarlaárás undan ströndum Kanaríeyja. Um var að ræða konu á fertugsaldri. Hún missti fótlegg í árásinni. Erlent 17.9.2024 22:05
„Það er hula yfir sólinni“ Sjö hafa farist í miklum gróðureldum sem geisa í Portúgal og á sjötta tug hafa slasast. Íslendingur í Portó segir gulleitan reykjarmökk hafa legið yfir borginni í dag og í gær. Hún hafi aldrei upplifað annað eins. Erlent 17.9.2024 19:46