Erlent
243 244 245 246 247 248 249 250 251 … 334 ›
Hlaut lífstíðardóm fjórtán árum eftir að hafa myrt dætur sínar Yaser Said var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag fyrir að skjóta dætur sínar, Aminu og Söruh Said, til bana árið 2008. Eftir morðin hvarf Said sporlaust og var á flótta undan bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár, þar til hann var handtekinn árið 2020. Erlent 10.8.2022 00:19
Ákærður fyrir að myrða tvo í Albuquerque Yfirvöld hafa ákært hinn 51 árs gamla Muhammad Syed fyrir morð á tveimur múslimum í Albuquerque í Nýju-Mexíkó en hann er einnig grunaður um að hafa orðið tveimur mönnum til viðbótar að bana. Erlent 9.8.2022 22:40
Fundu líkamsleifar og flugvél í Ölpunum Á miðvikudaginn gengu tveir fjallagarpar fram á flugvél í Alpafjöllunum í Sviss sem hafði hrapað í fjallinu fyrir tæpum fimmtíu árum síðan. Við hlið vélarinnar voru líkamsleifar manns. Erlent 9.8.2022 22:16
Maður grunaður um morð á fjórum múslimum handtekinn Lögreglan í Albuquerque í Nýju-Mexíkó hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa myrt Naeem Hussain, 25 ára gamlan múslima, á föstudag og ók bíl sem lögreglan hefur verið að leita að í tengslum við morðið. Lögreglan grunar manninn einnig um að hafa skotið þrjá aðra múslima til bana í borginni. Erlent 9.8.2022 19:45
Konsúll Þýskalands í Brasilíu grunaður um morð Uwe Herbert Hahn, konsúll Þýskalands í Brasilíu, var á laugardaginn handtekinn í borginni Rio de Janerio vegna gruns um að hann hafi orðið eiginmanni sínum að bana. Hahn neitar allri sök. Erlent 9.8.2022 18:59
Allt að áttatíu þúsund hermenn sagðir fallnir eða særðir Sérfræðingar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna telja að allt að áttatíu þúsund rússneskir hermenn hafi fallið eða særst í innrás Rússa í Úkraínu. Innrásin hófst þann 24. febrúar en Bandaríkjamenn lýsa átökunum sem þeim erfiðustu fyrir Rússa frá seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 9.8.2022 14:55
Styttist í fyrstu tunglferðina Forsvarsmenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) hafa sett stefnuna á því að fyrsta tunglferð Artemis-áætlunarinnar verði farin þann 29. ágúst. Þá verður geimfari skotið til tunglsins og flogið hring þar í kring og til baka. Erlent 9.8.2022 13:11
Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum. Erlent 9.8.2022 10:29
Ezra Miller ákært fyrir húsbrot og að stela áfengi Leikarinn Ezra Miller var fyrr á þessu ári ákært fyrir húsbrot í Vermont í Bandaríkjunum. Málið er það nýjasta í röð atvika þar sem Miller hefur verið sakað um ofbeldi og óvenjulega hegðun. Erlent 9.8.2022 09:09
Fullviss um að Kína undirbúi innrás Utanríkisráðherra Taívan kveðst fullviss um að Kínverjar undirbúi innrás inn í landið. Hann segir gremju Kínverja út í Nancy Pelosi, vegna heimsóknar hennar til Taívan, einungis vera afsökun fyrir því að halda heræfingum og ögrunum áfram. Erlent 9.8.2022 08:15
Átta látnir í flóðum á höfuðborgarsvæðinu í Suður-Kóreu Að minnsta kosti átta eru látnir og fjórtán slasaðir í gríðarlegum flóðum í kjölfar úrhellisrigninga í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, í gær. Erlent 9.8.2022 07:51
Alríkislögreglan gerði húsleit heima hjá Trump Donald Trump sagði í yfirlýsingu í dag að Alríkislögregla Bandaríkjanna hefði gert árás á heimili hans í Mar-a-Lago í Palm Beach í Flórída og tekið það yfir. Hann segir húsleitina hluta af árásum „róttækra vinstri Demókrata“ sem vilji ekki að hann bjóði sig aftur fram til forseta árið 2024. Erlent 8.8.2022 23:56
Holdgervingur eitraðrar karlmennsku slær í gegn á TikTok Fyrrum bardagakappinn Andrew Tate hefur slegið í gegn á TikTok síðustu vikur, þá sérstaklega meðal ungra karlmanna. Ummæli Tate verður þó að flokka oft á tíðum sem afar umdeild en hann talar oftar en ekki niður til kvenna og ýtir undir eitraða karlmennsku. Fleiri og fleiri ungir karlmenn fylgjast með Tate á hverjum einasta degi. Erlent 8.8.2022 23:45
Bandaríkin heita Úkraínu milljarði Bandaríkjadala Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að hún ætli styrkja úkraínska herinn með vopnasendingu að andvirði eins milljarðs Bandaríkjadala, eða um 140 milljörðum íslenskra króna. Vopnasendingin er sú stærsta frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu til Úkraínu til þessa. Erlent 8.8.2022 20:00
Fær annan lífstíðardóm fyrir morðið á Arbery Travis McMichael var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að fremja hatursglæp er hann myrti Ahmaud Arbery árið 2020 vegna litarháttar hans. Morðið framdi McMichael með tveimur öðrum karlmönnum en allir eru þeir hvítir en Arbery var svartur. Erlent 8.8.2022 18:11
Sagnfræðingurinn og Pulitzer-hafinn David McCullough látinn David McCullough, sagnfræðingur og tvöfaldur Pulitzer-verðlaunahafi, er látinn, 89 ára að aldri. Erlent 8.8.2022 17:53
Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns Myndefni af afskræmdu líki úkraínsks hermanns sem fangaður var af Rússum hefur verið í dreifingu um helgina og vakið mikla reiði. Hermaðurinn virðist hafa verið afhöfðaður og höfði hans og höndum komið fyrir á skafti í borginni Popasna í Úkraínu. Erlent 8.8.2022 16:21
Vildi herforingja eins og Hitler Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa spurt aðstoðarmann sinn af hverju herforingjar hans gætu ekki verið eins og herforingjar Adolfs Hitler. Þeir hefðu verið algjörlega hliðhollir Hitler og gert það sem hann sagði þeim að gera. Erlent 8.8.2022 15:03
Medvedev segir Nató dreifa sér eins og krabbamein Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að hvorki Úkraínumenn né bandamenn þeirra myndu ganga til viðræðna við Rússa ef þeir efndu til atkvæðagreiðsla um innlimun á hernumdum svæðum. Rússar hafa náð stórum svæðum á sitt vald í austur- og suðurhluta Úkraínu, þar sem leppstjórnir þeirra hafa ítrekað boðað íbúakosningu um sameiningu við Rússland. Erlent 8.8.2022 12:19
Segir árásina stórskaðlega og krefst aðgangs að svæðinu Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir loftárásina sem gerð var á kjarnorkuver í Zaporizhzhia vera stórskaðlega og kallar eftir því að alþjóðlegir rannsakendur fái aðgang að kjarnorkuverinu. Úkraínumenn og Rússar saka hvorir aðra um að hafa staðið að loftárásinni á kjarnorkuverið sem er það stærsta í Evrópu. Erlent 8.8.2022 10:25
Einn frægasti Jiu Jitsu-kappi heims skotinn í höfuðið af löggu á frívakt Leandro Lo, einn frægasti Jiu Jitsu-bardagamaður allra tíma, var skotinn í höfuðið á næturklúbbi í São Paulo í Brasilíu. Hinn 33 ára Brasilíumaður var staddur á skemmtanastað í Saude-hverfi borgarinnar þegar hann var skotinn af lögreglumanni á frívakt, að sögn lögreglu en sá er nú sagður vera á flótta. Erlent 8.8.2022 08:17
Ekkert lát á ógnandi heræfingum Kínverja í kringum Taívan Kínverjar tilkynntu í morgun að þeir hefðu framlengt heræfingar sínar í kringum Taívan. Æfingarnar hafa truflað flutninga og flugsamgöngur síðustu daga ásamt því að auka á áhyggjur manna af því að Kínverjar hafi í hyggju að ráðast inn í landið. Erlent 8.8.2022 07:23
Öldungadeildin samþykkir sögulegt frumvarp í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær löggjöf sem kveður á um eina umfangsmestu fjárfestingu Bandaríkjanna í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og til að lækka smásöluverð á lyfseðilsskyldum lyfjum. Erlent 8.8.2022 07:15
Vopnahlé í kjölfar átaka á Gaza Heröfl Ísrael og Palestínu hafa samið um vopnahlé eftir þrjá daga af átökum en að minnsta kosti 43 eru látin vegna þeirra. Vopnahléið átti að hefjast klukkan hálf níu í kvöld á íslenskum tíma. Erlent 7.8.2022 21:24
Mjaldurinn í ánni Signu enn í vanda staddur Vannærður mjaldur fannst í ánni Signu nú á þriðjudag en mjaldurinn hefur neitað að borða þá fæðu sem honum hefur verið gefin og hefur vísindafólk á svæðinu miklar áhyggjur af heilsu hans. Líkurnar á því að hann komist aftur á sínar heimaslóðir séu hverfandi. Erlent 7.8.2022 20:28
Þúsundir mættu til útfarar þeirra sem féllu í loftárásum Ísraela á borgina Rafah á Gaza í gær Þúsundir mættu til útfarar þeirra sem féllu í loftárásum Ísraela á borgina Rafah á Gaza í gær. Þegar hafa 29 palestínumenn fallið í átökunum sem hófust á föstudag, þar á meðal almennir borgarar og börn. Erlent 7.8.2022 20:01
Fiðla seld fyrir tvo milljarða króna Fiðla sem smíðuð var fyrir rúmum 300 árum, var seld í sumar á uppboði fyrir andvirði tveggja milljarða íslenskra króna. Ekki er vitað hver kaupandinn var. Erlent 7.8.2022 17:01
Rannsaka tuttugu og fimm þúsund meinta stríðsglæpi Yfirvöld í Úkraínu rannsaka rúmlega 25 þúsund meinta stríðsglæpi sem Rússar eiga að hafa framið í landinu síðan innrásin hófst í lok febrúar. Erlent 7.8.2022 16:30
Færeyingar segja nei takk við Herjólfi III Færeyingar hafa stofnað undirskriftarlista þess efnis að fá annað skip en Herjólfur III til þess að sigla milli Þórshafnar og Suðureyjar á meðan ferjan Smyril fer í slipp. Ekki sé nægt pláss í Herjólfi til að hann leysi Smyril af. Erlent 7.8.2022 16:16
Áttatíu þúsund ferðamenn strandaglópar á „kínversku Hawaii“ Útgöngubann var sett á í borginni Sanya í Kína í gær eftir að 263 kórónuveirusmit greindust þar. Um það bil áttatíu þúsund ferðamenn eru nú staddir í borginni og komast þeir ekki neitt án þess að skila af sér fimm neikvæðum PCR-prófum á sjö dögum. Erlent 7.8.2022 14:39