Erlent
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Lýgur því að Rússar hafi aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna María Zakharova, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hélt því fram í morgun að Rússar hefðu aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna í tengslum við innrásina í Úkraínu. Hún skammaðist út í ráðamenn í Bandaríkjunum fyrir að halda því fram og sakaði þá um ábyrgðarleysi. Erlent 19.5.2022 11:11
Rússar sagðir hafa áhyggjur af framferði hermanna sinna í Maríupól Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin. Erlent 19.5.2022 10:02
Apabóla skýtur upp kollinum í Evrópu og Bandaríkjunum Sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hefur skotið upp kollinum í nokkrum Evrópulöndum og nú síðast í gær í Massachussetts í Bandaríkjunum. Erlent 19.5.2022 07:40
Vaktin: „Rússar mega ekki vinna þetta stríð“ Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur varað við því að fæðuskortur vegna átakanna í Úkraínu gæti varað í mörg ár og valdið hungursneyð víða um heim. Erlent 19.5.2022 06:47
Jarðskjálftamælir á Mars verður rykinu að bráð Útlit er fyrir að bandaríska geimfarið Insight á Mars syngi sitt síðasta í sumar þegar rafhlöður þess tæmast. Farið missir nú orku vegna ryks sem safnast hefur fyrir á sólarsellum þess. Erlent 18.5.2022 23:36
Shkreli látinn laus úr fangelsi Bandarísk yfirvöld slepptu Martin Shkreli, fyrrverandi forstjóra lyfjafyrirtækis, úr fangelsi eftir að hann hafði afplánað hluta sjö ára fangelsisdóms sem hann hlaut árið 2017. Shkreli hefur meðal annars verið nefndur „hataðasti maður internetsins“ vegna gríðarlegrar verðhækkunar á alnæmislyfi. Erlent 18.5.2022 22:14
Skammaði sína æðstu embættismenn fyrir „vanþroska“ Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skammaði sína æðstu embættismenn fyrir þroskaleysi og fyrir að bregðast í viðbrögðum við faraldri Covid-19 þar í landi. Þetta segja ríkismiðlar Norður-Kóreu að Kim hafi gert á fundi stjórnmálanefndar Verkamannaflokks Norður-Kóreu (Politburo) á dögunum. Erlent 18.5.2022 12:17
Erdogan vill fá „hryðjuverkamenn“ afhenta gegn samþykki fyrir aðild Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 18.5.2022 11:37
Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot. Erlent 18.5.2022 10:48
„Rísandi stjarna“ Repúblikana tapaði í forvali Þingmaðurinn Madison Cawthorn tapaði í forvali Repúblikanaflokksins í gær og mun því ekki sitja á þingi annað kjörtímabil. Chuck Edwards, sem situr í öldungadeild ríkisþings Norður-Karólínu bar sigur úr bítum en Cawthorn hefur verið plagaður af hverju hneykslinu á fætur öðru í aðdraganda forvalsins og hafði reitt félaga sína í Repúblikanaflokknum til reiði með ummælum sínum og hegðun. Erlent 18.5.2022 10:05
Svíar og Finnar hafa formlega sótt um aðild Svíar og Finnar hafa formlega skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 18.5.2022 07:48
Stórfellt svindl með ávexti og grænmeti Fleiri tonnum af ávöxtum og grænmeti er smyglað ár hvert til Spánar frá ríkjum Norður-Afríku og þau síðan seld sem spænskar afurðir. Ríkisstjórnin ætlar að skera upp herör gegn þessu umfangsmikla svindli. Erlent 18.5.2022 07:00
Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær. Erlent 18.5.2022 06:43
Rekja eitt af hverjum sex dauðsföllum í heiminum til mengunar Léleg loftgæði, mengað vatn og eituefnamengun drepur fleiri jarðarbúa árlega en stríð, hryðjuverk, bílslys, malaría, fíkniefni og áfengi. Í nýrri rannsókn eru eitt af hverjum sex dauðsföllum í heiminum rakin til mengunar. Erlent 18.5.2022 06:00
Lögmenn Depps saumuðu að Heard í vitnastúkunni Réttarhöld í meiðyrðamáli bandaríska leikarans Johnny Depp á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Amber Heard, héldu áfram í dag. Þar var Heard borin þungum sökum af lögmannateymi Depps, meðal annars um að hafa barið hann og breytt ljósmyndum til að sýna fram á ofbeldi hans gegn henni. Erlent 17.5.2022 23:33
Biden lýsir hvítri þjóðernishyggju sem eitri Hvít þjóðernishyggja er eitur í bandarískum stjórnmálum. Þetta sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann heimsótti borgina Buffalo þar sem ungur hvítur maður skaut tíu blökkumenn til bana um helgina. Erlent 17.5.2022 22:09
Handtóku þingmann sem er grunaður um nauðgun Breskan lögreglan handtók þingmann Íhaldsflokksins sem er grunaður um nauðgun og kynferðisofbeldi á fyrsta áratug þessarar aldar. Þingmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur. Erlent 17.5.2022 20:42
Óttast ný afbrigði í Norður-Kóreu Faraldur kórónuveirunnar á meðal óbólusetts fólks eins og nú geisar í Norður-Kóreu eykur hættuna á að ný afbrigði verði til, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Stjórnvöld í Norður-Kóreu viðurkenndu í fyrsta skipti að veiran hefði stungið sér niður í landinu á dögunum. Erlent 17.5.2022 19:10
Yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með NATO-aðild Yfirgnæfandi meirihluti á finnska þinginu greiddi í hádeginu atkvæði með tillögu um að landið sæki um aðild að NATO. Erlent 17.5.2022 13:12
Bein útsending: Leyniþjónustumálanefnd fundar um fljúgandi furðuhluti Undirnefnd Leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings heldur í dag fund um fljúgandi furðuhluti. Háttsettir embættismenn í leyniþjónustum og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna muni sitja fyrir svörum en hluti fundarins verður í beinni útsendingu. Erlent 17.5.2022 12:01
Tveimur árum eftir að geimskotið misheppnaðist á að reyna aftur Geimvísindamenn NASA og Boeing stefna á að skjóta Starliner-geimfari til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á fimmtudaginn. Þróun geimfarsins hefur tafist nokkuð en síðasta geimskot Starliner, árið 2019, misheppnaðist. Erlent 17.5.2022 10:43
Vaktin: Senda sitt stærsta teymi til að rannsaka stríðsglæpi í Úkraínu Búið er að flytja 260 úkraínska hermenn frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól, þar af marga alvarlega særða. Ekki er ljóst hversu margir eru eftir en áætla má að þeir séu um 350. Rússar virðast nú hafa náð Maríupól alfarið á sitt vald. Erlent 17.5.2022 06:53
Baráttunni um Maríupól er lokið: Hermönnum bjargað frá Azovstal Fleiri en 260 úkraínskir hermenn, margir þeirra slasaðir, hafa verið fluttir á brott frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól eftir margra vikna harða bardaga. Óvíst er hversu margir eru enn í verksmiðjunni. Erlent 17.5.2022 06:28
Byssumaðurinn sagður knúinn áfram af hatri á Taívönum Tæplega sjötugur karlmaður sem skaut einn til bana og særði fimm til viðbótar í kirkju í sunnaverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær er kínverskur innflytjandi og var knúinn áfram af hatri á Taívönum. Árásina gerði hann í taívanskri öldungakirkju en kínversk stjórnvöld gera tilkall til Taívans. Erlent 16.5.2022 23:22
Heil beinagrind risaeðlu seld á uppboði Beinagrind klóeðlu var seld á uppboði í Christie‘s uppboðshúsinu í vikunni. Beinagrindin seldist á 12 milljónir dollara, rúmlega 1,6 milljarði íslenskra króna. Erlent 16.5.2022 09:50
Hafði áður hótað því að myrða og fremja sjálfsvíg „Þessi einstaklingur kom hingað í þeim eina tilgangi að taka eins mörg svört líf og hann gæti,“ sagði Byron Brown, borgarstjóri Buffalo, í gær eftir að 18 ára hvítur maður skaut tíu manns til bana og særði þrjá í árás í versluninni Tops í austurhluta borgarinnar. Erlent 16.5.2022 07:43
Vaktin: Svíar freista þess að ná sátt við Tyrki til að greiða fyrir aðild að Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu ekki hafa gengið eins og áætlað var og að Úkraínumenn gætu unnið stríðið. Erlent 16.5.2022 06:17
Einn látinn og fimm særðir eftir skotárás í kirkju Einn lést og fjórir særðust lífshættulega eftir skotárás í kirkju í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Einn hlaut minni háttar áverka. Síðast í gær létust tíu manns í annarri skotárás þar í landi. Erlent 15.5.2022 22:58
Vaktin: Bjóða upp verðlaunagripinn til styrktar Úkraínu Úkraínumenn eru sigurreifir eftir að framlag landsins í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór með sigur af hólmi í gærkvöldi. Volodýmýr Zelenskí, forseti Úkraínu, heitir því að keppnin verði haldin í Maríupol, sem Rússar hafa nú á sínu valdi, einn daginn. Erlent 15.5.2022 19:00
Keyrði í þrjá tíma til að myrða svart fólk Payton S. Gendron, sem er átján ára gamall, keyrði í rúma þrjá tíma í gær til Buffalo í New York. Þegar hann var kominn á leiðarenda, um 320 kílómetrum frá heimili sínu, skaut hann tíu manns til bana og særði þrjá. Lögreglan segir árásina vera hatursglæp en Gendron fór sérstaklega til Buffalo til að myrða svart fólk. Erlent 15.5.2022 14:46