Innlent
163 164 165 166 167 168 169 170 171 … 334 ›
Fjórhjólaslys við Sólheimajökul Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út klukkan 14:20 í dag vegna fjórhjólaslyss við Sólheimajökul. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi. Innlent 6.6.2024 15:54
„Vonum að þetta skili jafn góðum árangri á Íslandi“ Lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi fá aðgengi að ríflega þriggja milljarða króna fjármögnun í gegnum fjárfestingaáætlun Evrópusambandsins. Forstjóri Byggðastofnunar segir nýtt samkomulag við Fjárfestingabanka Evrópu meðal annars nýtast til kynslóðaskipta í landbúnaði og atvinnureksturs kvenna. Innlent 6.6.2024 15:28
Láninu varið í að tryggja örugga og heilsusamlega skóla 100 milljóna evra lán til Reykjavíkurborgar mun greiða götur borgarinnar þegar það kemur að umfangsmiklu viðhaldsátaki í skólahúsnæði borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Innlent 6.6.2024 15:16
Hafa ekki lokið afgreiðslu á kæru í þrjú ár Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir vinnubrögð menningar- og viðskiptaráðuneytisins en kvartað hefur verið yfir miklum töfum á afgreiðslu mála hjá ráðuneytinu. Ráðuneytið braut gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga að mati umboðsmanns. Innlent 6.6.2024 14:38
Guðni býður á Bessastaði í hinsta sinn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi laugardaginn 8. júní í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldis á Íslandi. Forsetahjónin Guðni Th Jóhannesson og Eliz Reid taka á móti gestum auk þess sem áhugasömum býðst að kynnast þjóðhöfðingjasetrinu. Innlent 6.6.2024 13:57
Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi. Innlent 6.6.2024 13:27
Kynna úttekt á stöðu drengja í menntakerfinu Mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynna viðamikil úttekt á stöðu drengja í menntakerfinu í blaðamannafundi í dag. Fundurinn hefst klukkan 13:30 og verður sýndur hér á Vísi. Innlent 6.6.2024 13:22
Ungur maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Árbæ Ráðist var á átján ára mann á leið sinni heim úr útskriftarveislu í Árbæ aðfaranótt sunnudags. Hann var kýldur, sparkað var í hann liggjandi í höfuð, brjóstkassa og maga. Innlent 6.6.2024 13:18
Stúkan óviðgerðarhæf og jafnvel hættuleg Sérfræðingar sem fengnir voru til þess að meta ástand stúkunnar við Laugardalslaug telja ekki líkur á að hún muni hrynja að svo stöddu. Annar þeirra segir þó ljóst að aldrei verði gert við umfangsmiklar skemmdir á stúkunni og meta þurfi hvort takmarka þurfi aðgang að henni vegna hættu. Innlent 6.6.2024 13:01
Framkvæmdir hafnar við umferðarþyngstu gatnamótin Framkvæmdir eru hafnar við umferðarþyngstu gatnamót landsins. Þær munu tefja umferð í sumar en markmiðið er að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Innlent 6.6.2024 12:59
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. Innlent 6.6.2024 12:00
Ríkisstjórnin hafi sjálf skilyrt stuðning við Úkraínu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina sjálfa hafa fallið á því prófi að styðja Úkraínu. Hún hafi raunar skilyrt stuðning sinn „við það sem henni liði vel með“. Þorbjörg vísar þar til afnám tollfrelsis á úkraínskum landbúnaðarvörum sem hafi strandað á sérhagsmunaaðilum. Innlent 6.6.2024 11:50
Von á ákvörðun um hvalveiðar og lítil samkeppni á raftækjamarkaði Í hádegisfréttum fjöllum við um þingstörfin en matvælaráðherra segir brátt von á ákvörðun um hvalveiðar í sumar. Innlent 6.6.2024 11:31
Genginn úr meirihlutasamstarfi vegna meints trúnaðarbrests Magnús S. Magnússon, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Suðurnesjabæ, segir trúnaðarbrest meðal Sjálfstæðismanna í bæjarstjórninni hafa valdið því að hann gekk úr meirihlutasamstarfinu. Meirihlutinn klofnaði í tveimur atkvæðagreiðslum á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi. Innlent 6.6.2024 10:59
Engir ytri áverkar sem skýra andlátin Engir ytri áverkar voru á líkum sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið á heimili sínu í Bolungarvík í síðustu viku. Dánarorsök er ekki ljós og nákvæm dánarstund liggur ekki fyrir, en ekkert bendir til þess að andlátin hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 6.6.2024 10:59
„Eins og þetta hafi gerst í gær á þessum stöðum“ Áttatíu ár eru liðin frá árásinni í Normandí, þar sem herlið Bandamanna réðst inn í Frakkland til að frelsa Evrópu undan oki nasismans. Séra Þórhallur Heimisson stendur fyrir ferð á þessar sögulegu slóðir. Innlent 6.6.2024 10:54
Ákvörðun Bjarkeyjar um hvalveiðar mun liggja fyrir á þriðjudaginn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sagði á þinginu nú rétt í þessu að hún muni birta ákvörðun sína um hvort hvalveiðar verði leyfaðar á þriðjudaginn. Innlent 6.6.2024 10:49
Kærði gæsluvarðhaldsúrskurð vegna manndráps til Landsréttar Maður sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar kærði áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar á mánudag. Landsréttur hefur ekki enn tekið málið fyrir. Innlent 6.6.2024 10:31
Baðaði sig í Reynisfjöru Barbora Georgsdóttir Fialová, grunnskólakennari, varð vitni að því þegar að maður um þrítugt gerði sér lítið fyrir og tók stuttan sundsprett í Reynisfjöru að kvöldi til þann 22. maí. Innlent 6.6.2024 10:18
Grímur segir tímabært að Vg biðji kjósendur sína afsökunar Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að vera Vinstri grænna í ríkisstjórninni gangi í berhögg við stefnu flokksins og tilgang hans. Hann segir flokkinn í slæmum félagsskap. Innlent 6.6.2024 10:14
Hafnarfjarðarbær semur við HS orku um rannsóknar- og nýtingarrétt í Krýsuvík Hafnarfjarðarbær og HS Orka hafa undirritað samkomulag um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferskvatni og til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi á heitu vatni í Hafnarfirði og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að mæta vaxandi raforkuþörf í landinu. Áætlað er að nýtt jarðvarmaver í Krýsuvík gæti hitað upp allt að 50.000 manna byggð. Innlent 6.6.2024 08:47
Notkun á TikTok og Snapchat dregst saman hjá níu til tólf ára börnum Hlutfall barna á aldrinum 9 til 12 ára sem nota samfélagsmiðlana TikTok og Snapchat lækkar töluvert frá árinu 2021. Youtube er algengasti samfélagsmiðillinn sem nemendur í 4. til 7. bekk nota en Google og Roblox koma þar á eftir. 99 prósent framhaldsskólanema eiga sinn eigin farsíma. Innlent 6.6.2024 08:01
Appelsínugular og gular viðvaranir enn í gildi Veðrið sem gengið hefur yfir landið er enn að setja strik í reikninginn hjá mörgum en gular viðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, á Norðurlandi eystra, Austfjörðum, Suðausturlandi og á miðhálendinu. Enn á síðan að bæta í vindinn og síðdegis verða komnar appelsínugular viðvaranir á Vestfjörðum um tíma og á Norðurlandi vestra þar sem spáin gerir ráð fyrir hvassviðri með rigningu, slyddu eða snjókomu. Á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Breiðafirði taka gular viðvaranir gildi síðdegis til klukkan þrjú í nótt. Innlent 6.6.2024 07:28
Vænir stangveiðimenn um dýraníð og utanvegaakstur Kjartan Ólafsson stjórnarmaður í Arnarlax segir að vandamál villta laxins séu fjölþætt. Lög um dýraníð eigi ekki við um laxveiðimenn, ekki frekar en lög um utanvegaakstur. Karl Lúðvíksson stangveiðimaður segir stangveiðimenn aka eftir tilgreindum slóðum og að lúsétinn, illa haldinn lax í kvíum sé klárt dýraníð. Innlent 6.6.2024 00:23
Rafmagn komið á í Grindavík Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en þar varð rafmagnslaust skömmu eftir að gos hófst við Sundhnúkagígaröðina í síðustu viku. Innlent 6.6.2024 00:19
Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn Bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins klofnaði í tveimur atkvæðagreiðslum á bæjarstjórnarfundi í kvöld. Varðaði málið aðallega staðsetningu gervigrasvallar sem bærinn hyggst reisa. Innlent 5.6.2024 23:37
Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það veki óhug að lesa fréttir eins og þá sem birtist á Vísi í vikunni um átta Palestínumenn sem ákærðir hafa verið fyrir líkamsárásir gegn konu. Hann segir íbúa í Reykjanesbæ búa við ógn af hælisleitendum sem þar búa. Innlent 5.6.2024 22:36
Mikilvæg mál föst vegna „störukeppni“ ríkisstjórnarinnar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir mikilvæg mál fyrir þjóðarheill föst í þinginu vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir ná ekki samkomulagi sín á milli. Hann segir að það megi láta þingviljann ráða ef meirihluti er fyrir slíkum málum til að „störukeppninni“ eins og hann kallar hana geti lokið. Innlent 5.6.2024 22:25
Sinubruni í Gufunesi Verið er að ráða niðurlögum smávægilegs sinubruna sem geysaði rétt fyrir neðan Hamrahverfið í Gufunesi fyrr í kvöld. Innlent 5.6.2024 22:01
Ungmenni séu byrjuð að átta sig á slæmum afleiðingum klámáhorfs Sífellt fleiri nemendur í grunnskólum landsins kjósa að horfa ekki á klám. Verkefnastýra hjá Reykjavíkurborg segir það gleðitíðindi þar sem klámáhorf sé tengt vanlíðan barna á grunnskólaaldri. Unglingar fagna betri fræðslu. Innlent 5.6.2024 21:19