Innlent

Tveir fluttir á slysa­deild vegna á­reksturs við Dalshraun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Einhver viðbúnaður var í Dalshrauninu vegna árekstursins samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum. Myndin er úr safni.
Einhver viðbúnaður var í Dalshrauninu vegna árekstursins samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Tveir voru fluttir á slysadeild vegna áreksturs við Dalshraun í Hafnarfirði. Það staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hann hafði ekki upplýsingar um líðan þeirra sem voru fluttir á slysadeild. Hann átti von á því að atvikið gæti haft einhver áhrif á umferð á meðan unnið er á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×