Innlent
264 265 266 267 268 269 270 271 272 … 334 ›
Nær þröskuldi eldgoss í næstu viku Kvikusöfnun við Svartsengi heldur áfram á sama hraða og áður. Hraðinn er stöðugur og svipar mjög til þess sem sást í aðdraganda síðustu eldgosa. Innlent 22.2.2024 15:42
Enn fundað í Karphúsinu um forsenduákvæðið Breiðfylking stéttarfélaga innan ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda hjá ríkissáttasemjara. Fundur hófst klukkan níu í morgun og stendur enn að sögn Elísabetar Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjara. Innlent 22.2.2024 15:42
Loksins landað í Grindavík: „Ég er ekki tilbúinn til að kveðja þetta líf“ Mikið líf var í Grindavíkurhöfn í hádeginu þegar Vésteinn GK kom inn til löndunar í höfninni í fyrsta sinn síðan í janúar. Vatn komst á höfnina í morgun og eru Grindvíkingar bjartsýnir á framhaldið. Innlent 22.2.2024 14:47
„Reddari“ tekinn með haug af kannabis og sand af seðlum Landsréttur hefur fallist á kröfu lögreglu um að fá að rannsaka innihald síma manns, sem grunaður er um fíkniefnabrot í tveimur málum. Annars vegar póstlagði hann umslag sem innihélt kannabisefni og hins vegar var hann gripinn með mikið magn kannabisefna á sér ásamt hálfri milljón króna í seðlum. Innlent 22.2.2024 14:25
„Ný sýklalyf munu ekki bjarga okkur út úr þessu vandamáli“ Draga þarf úr notkun sýklalyfja eins og kostur er og gera hana skynsamlegri, bæði hjá mönnum og dýrum. Þetta er á meðal tillagna starfshóps um leiðir til að sporna gegn sýklalyfjaónæmi. Ný lyf munu ekki bjarga okkur úr þeim vanda sem blasir við vegna sýklalyfjaónæmra baktería að sögn fyrrverandi sóttvarnalæknis. Innlent 22.2.2024 14:20
Áfallið kalli á heildarendurskoðun Þingmaður Pírata lýsir yfir áhyggjum af því að stjórnvöld hyggist fjármagna uppkaup á húsnæði Grindvíkinga með lántöku en ekki sértækri skattheimtu. Þá veltir hún því upp hvort verið sé að stefna getu þjóðarinnar til að bregðast við náttúruhamförum í hættu með því að ganga á sjóði náttúruhamfaratrygginga. Fjármálaráðherra segir þörf á heildarendurskoðun málaflokksins. Innlent 22.2.2024 14:18
Siggi Sveins þarf hópefli til bjargar Skolla Sigurður Sveinsson handboltakappi með meiru leitar nú eftir liðsinni við að bjarga golfbíl sínum úr skafli. Innlent 22.2.2024 13:49
„Íbúar Gasa eins og dýr í búri“ Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra sagðist deila áhyggjum Þórunnar Sveinbjarnardóttur Samfylkingu af stöðunni í Rafah. Innlent 22.2.2024 13:04
Ekki hugað að öryggi almennings í Gleðivík Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna banaslyss, sem varð á Djúpavogi sumarið 2022, segir að pottur hafi víða verið brotinn í skipulagsmálum við Eggin í Gleðivík. Samhliða því hafi ekki verið hugað að öryggi almennings. Þá segir að meginorsök slyssins hafi verið sú að ökumaður skotbómulyftara veitti gangandi vegfaranda ekki athygli. Innlent 22.2.2024 12:34
Grindavíkurvegur opnaður á nýjan leik Búið er að opna leið um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut að nýrri vegtengingu að Bláa lóninu sunnan varnargarðs. Nýr hluti Bláalónsvegar er allur innan varnargarðsins. Þessi leið er öllum opin en lokað er til Grindavíkur nema þeim sem um mega fara. Innlent 22.2.2024 12:25
BHM og Friðrik Jónsson sýknuð af kröfu fyrrverandi framkvæmdastjóra Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Bandalag háskólamanna og Friðrik Jónsson, fyrrverandi formann BHM, af kröfum fyrrverandi framkvæmdastjóra sem sakaði Friðrik um að hafa brotið gegn trúnaðarskilyrðum starfslokasamnings. Innlent 22.2.2024 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um nýtt mat sem leiðir í ljós að tjón vegna meints samráðs skipafélaganna Eimskips og Samskipa er metið á 62 milljarða króna. Innlent 22.2.2024 11:38
Staðan grafalvarleg og stendur frekari uppbyggingu fyrir þrifum Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur að staða fráveitumála í Hveragerði sé grafalvarleg og með öllu óviðunandi. Að öllu óbreyttu sé ljóst að frekari uppbygging í sveitarfélaginu geti ekki átt sér stað. Innlent 22.2.2024 11:15
Aldrei séð svona öldugang við landið: Hurfu undir öldu á Arnarstapa Ferðamenn voru hætt komnir á Arnarstapa í fyrradag þegar þeir hurfu undir risastóra öldu sem skall á stapanum. Leiðsögumaður segist aldrei áður hafa séð slíkan öldugang og ekki bara á Arnarstapa heldur víðar um landið. Innlent 22.2.2024 10:45
Köldu vatni hleypt á hafnarsvæðið Byrjað er að hleypa köldu vatnið á kerfið á hafnarsvæðinu í Grindavík. Almannavarnir ítreka að mikilvægt er að eigendur fasteigna séu viðstaddir þegar vatni er hleypt á. Innlent 22.2.2024 10:28
Dýri Guðmundsson er látinn Dýri Guðmundsson endurskoðandi, fyrrverandi knattspyrnukappi og gítarleikari er látinn. Hann fæddist 1951 en lést eftir veikindi þriðjudagskvöldið 20. febrúar. Fjölmargir samferðamenn Dýra hvort sem er vinir eða ættingjar hafa minnst hans á samfélagsmiðlum. Innlent 22.2.2024 09:16
„Ísland er uppselt“ Inga Sæland formaður Flokks fólksins segist vilja stöðva flæði fólks til landsins sem óskar eftir alþjóðlegri vernd. Hún fullyrðir að Ísland taki á móti of mörgum og segist vilja undanþágu frá Schengen samstarfinu. Innlent 22.2.2024 09:04
Unglingum vísað af veitingastað og maður með vesen á slysadeild Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða. Þá bárust einnig tilkynningar um líkamsárás og innbrot og þjófnað í heimahús. Innlent 22.2.2024 08:05
Engin byggingarleyfi í höfn þvert á fullyrðingar Arctic Fish Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ekki gefið út byggingarleyfi vegna sjókvía. Þetta segir í svörum HMS við fyrirspurn fréttastofu en tilefnið eru ummæli sem höfð voru eftir framkvæmdastjóra Arctic Fish í Bæjarins besta um að leyfi væri í höfn. Innlent 22.2.2024 06:22
Hótar aðgerðum fari hjólin ekki að snúast fyrir helgi Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir að Samtök atvinnulífsins hafi fram á föstudag til þess að koma með eitthvað að samningaborðinu. Ellegar neyðist Fagfélögin til þess að grípa til aðgerða í kjaradeilunni. Innlent 21.2.2024 23:11
Jón Baldvin heiðraður með afmælisávarpi á eistneska þinginu Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins var heiðraður á 85 ára afmælisdegi sínum í Riigikogu, eistneska þinginu, í dag. Innlent 21.2.2024 22:36
Ætlar að verða forseti og lærir af reynslumiklum frambjóðanda Tónlistarmaðurinn Hafsteinn Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, aðstoðaði forsetaframbjóðandann Ástþór Magnússon við að afla framboði þess síðarnefnda undirskriftum í dag. Sjálfur segist Haffi stefna á framboð þegar fram líða stundir. Því hafi verið um að ræða frábært tækifæri til að öðlast smá reynslu. Innlent 21.2.2024 22:31
Leggur til ellefu króna hækkun frekar en skerðingu opnunartíma Ólafur Egilsson, leikhúsmaður með meiru, er ekki ánægður með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að skerða opnunartíma sundlauga borgarinnar um helgar. Hann leggur til að hætt verði að hleypa erlendum eldri borgurum frítt ofan í eða aðgangsverð verði hækkað um 11,2 krónur. Innlent 21.2.2024 22:09
Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur. Innlent 21.2.2024 20:34
Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist. Innlent 21.2.2024 20:31
Ekki spennt fyrir lokuðum búsetuúrræðum Þingflokksformaður Vinstri grænna fagnar því að ríkisstjórnin sammælist um heildarsýn í málefnum flóttafólks á Íslandi. Hann segir þingmenn flokksins ekki hafa áhuga á lokuðu búsetuúrræði á borð við það sem dómsmálaráðherra hefur kynnt. Innlent 21.2.2024 20:01
Einkunnir, launamál og heilsufarsupplýsingar undir í árásinni á HR Upplýsingar um einkunnir, agamál, launamál og fleiri viðkvæmar persónuupplýsingar voru á drifum Háskóla Reykjavíkur sem gögnum var stolið af í upphafi þessa mánaðar. Innlent 21.2.2024 19:35
Hópur fólks finni fyrir þrýstingi um að fara inn í Grindavík Tugir mættu til vinnu í Grindavík í dag eftir langt hlé. Á sama tíma er bærinn alveg vatnslaus, en vonir standa til að köldu vatni verði komið á hafnarsvæði bæjarins á morgun. Verkalýðsleiðtogi í Grindavík er gagnrýninn á opnun bæjarins. Innlent 21.2.2024 19:04
Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar. Innlent 21.2.2024 18:55
Funda aftur á morgun Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins lauk án niðurstöðu síðdegis í dag. Aftur verður fundað á morgun. Innlent 21.2.2024 18:15