Innlent
47 48 49 50 51 52 53 54 55 … 334 ›
Slökkvilið kallað út vegna bruna í Stjörnugróf Slökkvilið er nú á vettvangi bruna í Stjörnugróf í Bústaðahverfi þar sem tilkynnt var um eld um fimm mínútur í fimm. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang en enn er unnið á vettvangi. Innlent 4.12.2024 17:23
Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Þó nokkrir frambjóðendur til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur voru strikaðir út af lista oftar en hundrað sinnum. Guðlaugur Þór Þórðarson var sá oddviti sem oftast var strikaður út, en Jón Gnarr fékk flestar útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmi suður. Innlent 4.12.2024 17:17
Hafa ekki enn lent í vandræðum í viðræðum Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins byrjuðu að funda klukkan 9.30 í morgun og funduðu til um 16 með fáum hléum. Kristrún segir markmið formannanna að ljúka viðræðum eins fljótt og þær geta. Þær hafi byrjað á því að ræða stóru málin og haldi áfram á morgun. Innlent 4.12.2024 17:00
Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Atli Viðar Þorsteinsson, betur þekktur sem plötusnúðurinn Atli kanill, fagnar sigri í minningargreinarmáli sínu gegn Reyni Traustasyni ritstjóra Mannlífs. Hann upplýsir að Reynir ætli ekki að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Innlent 4.12.2024 16:51
Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur sýndi af sér stórfellt gáleysi þegar hún hellti næringardrykk upp í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Innlent 4.12.2024 16:11
Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði Innan við sólarhringur er í að hulunni verði svipt af því hvaða 251 listamaður fékk náð fyrir augum úthlutunarnefnda úr þeim átta sjóðum sem veita listamannalaun. Listamönnunum sjálfum hefur verið tilkynnt um niðurstöðuna. Þó nokkrir eru með böggum hildar og ganga slyppir og snauðir á braut. Lítið heyrist í fámennari hópnum, þeim sem anda léttar og fengu þriggja til tólf mánaða blessun á umsókn sinni. Innlent 4.12.2024 16:03
Ekkert skapalón til fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst segir allan gang hafa verið á því í gegnum tíðina hversu langan tíma það hefur tekið fyrir flokka að mynda ríkisstjórn eftir kosningar. Það geti tekið daga, vikur eða mánuði. Hægt sé að horfa á málefnin eða setja sér markmið. Innlent 4.12.2024 16:03
Funda áfram á morgun Viðræður formanna Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa gengið vel í dag, og verður fram haldið á morgun. Innlent 4.12.2024 14:11
Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefja stjórnarmyndunarviðræður í dag. Eitt af því sem rætt hefur verið um er fækkun ráðuneyta. Stjórnsýslufræðingur segir slíkt óheppilegt. Innlent 4.12.2024 12:10
Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Starfandi forseti Alþingis segir rangt að yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis geti ekki tekið afstöðu til beiðni um endurtalningu í kjördæminu líkt og formaður hennar hefur haldið fram. Innlent 4.12.2024 11:34
Ný stjórn í burðarliðnum Í hádegisfréttum fjöllum við um hina nýju ríkisstjórn sem nú er í burðarliðnum. Innlent 4.12.2024 11:33
Ásgeir Þór og Theodór grípa boltana hans Gríms Starf Gríms Grímssonar yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður auglýst til umsóknar. Ráðið verður í starfið tímabundið til eins árs. Á meðan umsóknarferlinu stendur munu tveir reynsluboltar hjá lögreglunni fylla í skarð Gríms. Innlent 4.12.2024 11:12
Sánan í Vesturbæ rifin Frá og með morgundeginum verður sánuklefanum í Vesturbæjarlaug lokað. Hann verður í kjölfarið rifinn, ásamt öðrum klefa sem hefur verið lokaður síðan í haust. Innlent 4.12.2024 11:05
Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, er samkvæmt breska ríkisútvarpinu, BBC, ein þeirra hundrað kvenna sem þau telja hafa haft mest áhrif í heiminum. Listi þeirra um 100 áhrifamestu konur heims var birtur í gær. Innlent 4.12.2024 06:46
Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um afgreiðslu dvalarleyfisumsókna eftir að lögum um útlendinga var breytt. Innlent 4.12.2024 06:37
Rifrildi, innbrot og eftirför Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt í kjölfar rifrildis milli tveggja manna sem endaði með því að annar þeirra dró upp eggvopn. Innlent 4.12.2024 06:21
Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi í kvöld fjárhagsætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, mælti fyrir fjárhagsáætlun í fyrsta sinn en samkvæmt henni á bæta stöðu borgarsjóðs hraðar en áður stóð til. Innlent 3.12.2024 23:31
Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Icelandair-menn fögnuðu tímamótum með komu fyrstu Airbus-þotu félagsins til landsins í dag og um leið því að fá farkost sem eyðir þrjátíu prósentum minna eldsneyti á hvert sæti en þotan sem hún leysir af hólmi. Innlent 3.12.2024 22:10
Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Töluverð hálka hefur myndast á höfuðborgarsvæðinu síðustu sólarhringa. Hjólreiðafólk og gangandi eru allt annað en sáttir með stígahreinsun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og víðar. Innlent 3.12.2024 21:48
Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi Það ríkti mikil ánægja hjá nemendum Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í morgun þegar þau gátu loksins mætt aftur í skólann eftir nokkra vikna verkfall kennara. Skólameistari skólans trúir ekki öðru en að samið verði við kennara en verkfallinu var bara aflýst. Innlent 3.12.2024 21:06
„Menn ætla sér alla leið með þetta“ Varaformaður Samfylkingarinnar verður formanninum Kristrúnu Frostadóttur innan handar í komandi stjórnarmyndunarviðræðum. Hann segir einhug í formönnum um að koma viðræðunum alla leið. Innlent 3.12.2024 20:44
Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Skæð fuglaflensa af gerðinni H5N5 var staðfest í alifuglum í Ölfusi í dag. Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafin og á að beita sóttvarnarráðstöfunum til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Innlent 3.12.2024 20:12
Afturkalla átta friðlýsingar Friðlýsingar átta svæða á Íslandi hafa verið afturkallaðar. Var það gert vegna úrskurðar Hæstaréttar Íslands frá því í mars um að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá árinu 2019 hefði verið ólögmæt. Innlent 3.12.2024 20:01
Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Myndlistarkona varð fyrir áfalli á dögunum þegar henni var synjað um listamannalaun. Hún segir næstu mánuði munu einkennast af afkomukvíða. Hún ákvað að tala hreint út um málið fyrir aðra í sömu stöðu en líka fyrir dóttur sína sem hyggur á listnám. Innlent 3.12.2024 20:00
Valkyrjustjórn, afkomukvíði og jóladans í beinni Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins leggja áherslu á efnahagslegan stöðugleika og mikilvægi þess að verðbólga og vextir haldi áfram að lækka í viðræðum sínum um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Formennirnir eru bjartsýnir og ætla að vinna hratt næstu daga. Innlent 3.12.2024 18:02
Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu konu sem taldi sig eiga rétt á helmingsafslætti stimpilgjalds vegna fyrstu kaupa íbúðarhúsnæðis. Var það vegna eignarhlutar í íbúðarhúsnæði, sem hún hlaut í arf á barnsaldri, að virði 45.000 króna. Innlent 3.12.2024 17:23
Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Hitabreytingar voru með mesta móti á Austfjörðum í gær. Hitinn fór sem dæmi úr -23,6 gráðum í Möðrudal á Fjöllum í gærmorgun yfir í -0,4 gráður klukkan níu í morgun. Innlent 3.12.2024 16:58
Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks hefur lagt fram fjölda breytingartillagna við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem rædd var í annað sinn á fundi borgarstjórnar í dag. Meðal þess sem Sjálfstæðismenn vilja gera er að selja öll bílastæðahús í eigu borgarinnar. Innlent 3.12.2024 16:29
Ráðuneytum fækkað og ljóst hvar stóru verkefnin liggja Bjartsýni ríkir meðal formanna Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar, sem strax hafa fengið viðurnefnið Valkyrjustjórnin. „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra,“ segir Inga Sæland að loknum fundi þeirra þriggja í Alþingishúsinu. Innlent 3.12.2024 16:28
Bæjarstjóraskipti á áætlun í Hafnarfirði Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði og nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, lætur af störfum sem bæjarstjóri um áramótin eins og til stóð. Samkvæmt málefnasamningi við Framsóknarflokksins verður Valdimar Víðisson oddviti flokksins og formaður bæjarráðs bæjarstjóri síðasta eina og hálfa ár kjörtímabilsins. Innlent 3.12.2024 16:01