Skoðun

Borgar­lína og bráða­vandi

Þórarinn Hjaltason skrifar

Samgöngusáttmálinn hefur nú verið rúmt ár í endurskoðun og hafa hver ósköpin á fætur öðrum dunið á ríkissjóði á þeim tíma. Ekki er nóg með að kostnaðaráætlanir Borgarlínu rjúki upp, hamfarirnar í Grindavík kosta sitt, ríkissjóður þarf að kosta ómældu fé til að skynsamlegir kjarasamningar náist á vinnumarkaði og enn er margt vantalið.

Skoðun

Hvar eru kjara­samningar ör­yrkja?

Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Íslenskum verkalýðsfélögum hefur gengið ágætlega að ná fram launahækkunum og ýmsum öðrum kjarabótum í samningum upp á síðkastið. Það er mikið fagnaðarefni.

Skoðun

Heim­spekingurinn

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir skrifar

Ef ég ætti að greina bróður minn, myndi ég segja að hann væri heimspekingur. En þegar hann var fjögurra ára gamall merkti barnasálfræðingur hann með einhverfu. Tilvera okkar breyttist samstundis. Sama ár og ég leit alheiminn augum í fyrsta sinn var hann skráður sem frávik.

Skoðun

Hryllingur í hálft ár – þjóðar­morðið heldur á­fram á Gaza

Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Það er ekki auðvelt að koma orðum að þeim hryllingi á Gazaströnd sem heimurinn hefur nú horft upp á í hálft ár. Milljónir manna um heim allan hafa mótmælt þjóðarmorðinu og loks hefur Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna tekist að samþykkja ályktun þar sem krafist er tafarlauss vopnahlés og að neyðaraðstoð sé hleypt inn á svæðið hindranalaust, jafnframt því að föngum og gíslum sé sleppt.

Skoðun

Ís­lenskt tákn­mál, ég og við öll

Birta Björg Heiðarsdóttir skrifar

Mig langar til að deila með ykkur hugrenningum mínum um íslenskt táknmál; tungumál sem hefur gefið mér svo mikið og ég á svo ótal mörg tengsl og tækifæri að þakka. En einhver gæti velt fyrir sér af hverju ætti ég að deila með ykkur mínum vangaveltum?

Skoðun

Ræðum um gjald­miðilinn

Ingólfur Sverrisson skrifar

Sveigjanleiki íslensku krónunnar er að margra mati dýrmætur eiginleiki og gerir þennan minnsta gjaldmiðil veraldar að þjóðargersemi sem mikil nauðsyn er að varðveita. Með þessum töfrasprota sé unnt að bregðast við óværu eins og verðbólgu og hækka vexti endalaust þannig að fólk og fyrirtæki borgi ríflega fyrir þá ósvinnu að sækjast eftir lánum innan íslenska hagkerfisins.

Skoðun

Gerum skipti­stöðina í Mjódd betri

Helgi Áss Grétarsson skrifar

Steinsnar frá mínu æskuheimili er stærsta stætóskiptistöð höfuðborgarsvæðisins, Mjóddin. Lengst af rak Strætó bs. skiptistöðina en árið 2015 tók Reykjavíkurborg, sem eigandi mannvirkisins, við rekstrinum. Síðan þá hefur skiptistöðin hægt og sígandi drabbast niður.

Skoðun

„Kaninn kæmi hvort sem er til bjargar“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugmyndir um það að Ísland geti verið hlutlaust gagnvart hernaðarátökum, einkum í okkar heimshluta, kunna ef til vill að hljóma vel í einhverjum eyrum en standast hins vegar alls enga skoðun.

Skoðun

Að róa til jafns

Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar

Taktfastur skilvirkur róður snýst um nokkra hluti. Að fólk fái sæti á réttum stað á bátnum, að árar séu vel mannaðar, að taktinum sé stýrt af festu, hvatningu og gleði af hálfu forystu sem veit hvert stefna skal og hvernig. Fólki líður vel, báturinn er notalegur, snyrtilegur, nægt rými, aðbúnaður er góður og atlæti framúrskarandi. Forystan er mild og sterk.

Skoðun

Í til­efni al­þjóð­legs sýnileikadags trans fólks

Arna Magnea Danks skrifar

31. mars er alþjóðlegur dagur sýnileika trans fólks (TDOV = Trans Day of Visibility). Það er viðeigandi að í ár skuli þessi dagur koma upp á Páska sunnudegi þar sem við minnumst upprisu Jesú Krists og þann kærleik sem hann stóð fyrir, en undanfarin fimm ár hefur ofbeldi og árásum gegn trans fólki aukist í Bretlandi um tæp 200%

Skoðun

Hin endan­lega lausn

Þorsteinn Siglaugsson skrifar

„Hin mikla frásögn samfélags okkar er frásögn vélhyggjunnar, frásögn þar sem maðurinn er smættaður niður hreina líffræðilega tilvist. Frásögn sem hunsar algerlega sálræna og táknræna vídd manneskjunnar. Þessi sýn á manninn er kjarni vandans.”

Skoðun

Bessa­staðir eða Bossastaðir

Bergvin Oddsson skrifar

Nú þegar samkvæmisleikurinn um Bessastaði er að ná hámarki, enda aðeins tveir mánuðir í kosningar 1. júní nk. langar mig hér að velta upp tveim spurningum.

Skoðun

Kaup Lands­bankans á TM: Um banka og sam­fé­lagið

Guðmundur D. Haraldsson skrifar

Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM Tryggingum kom mörgum á óvart. Í kjölfar frétta af fyrirætlunum bankans fóru á flug gamalkunnugar yfirlýsingar um að ríkið eigi ekki að standa í fjármálastarfsemi – og sumir vilja alls ekki að fyrirtæki í eigu ríkisins auki við starfsemi sína. Einn ráðherra lýsti því yfir að verði af kaupunum þurfi að einkavæða Landsbankann, væntanlega í flýti.

Skoðun

Tákn­myndir páskanna og náttúru­vernd

Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Útdauðar tegundir plantna og dýra munu ekki snúa aftur, en eins og upprisan fylgdi krossdauða Krists, finnur náttúran nýjar leiðir til að blómstra ef að henni er hlúð.

Skoðun

Hættur Inter­netsins

Valerio Gargiulo skrifar

Ástæðan fyrir þessum vangaveltur er vegna þess að ég las sögu íslenskrar stelpu á unglingsaldri sem var fórnarlamb nethakkara sem tældu stúlkuna í gegnum samskiptaforrit eins og Discord og Telegram, og leikjasíður eins og Roblox.

Skoðun

Metnaðar­leysi í Mjódd

Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Aðalskipulag Reykjavíkur AR2040, skilgreinir Mjódd sem eitt skipulagsvæði en reiturinn kallast M12. Við sem sækjum þjónustu í Mjódd tölum um Suður-Mjódd, Mjódd og svo Norður-Mjódd. Í Suður-Mjódd er íþróttasvæði ÍR, íbúðir eldra fólks við Árskóga og nýja svæði Garðheima.

Skoðun

Höfnum hernaðar­banda­laginu!

Hópur íslenskra friðarsinna skrifar

Þann 30. mars árið 1949, fyrir 75 árum, samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um inngöngu í Atlantshafsbandalagið.

Skoðun

Dimmt yfir orkuspám

Jónas Hlynur Hallgrímsson skrifar

Íslendingar eiga formæðrum sínum og -feðrum mikið að þakka fyrir margra hluta sakir. Ég nefni til að mynda þá framsýni sem þau höfðu til að bera við uppbyggingu orkukerfisins. Samfélagið hefur notið þess hversu vel hefur tekist til og mikilvægi raforkunnar í samfélaginu er augljóst, hún er grunnur velsældar okkar.

Skoðun

Hvar er stór­aukna fylgið?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Mögulega hefur það farið framhjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar, en þjóðin ræður því hverjir taka sæti á Alþingi. Það er kjósendur. Þeir tveir stjórnmálaflokkar sem hafa í gegnum tíðina talað fyrir inngöngu í Evrópusambandið og þjóðaratkvæði í þeim efnum, flokkur Þorgerðar og Samfylkingin, fengu í síðustu þingkosningum haustið 2021 samanlagt um 18% fylgi. Minna fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn einn.

Skoðun

Leiðin til betri lífs­kjara og vel­ferðar

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Þegar að formaður Samfylkingarnar og aðrir lukkuriddar, birtast með lausn á öllum heimsins/ríkisins vandamálum, er fjármögnun þeirra aðgerða einatt sú, að sækja peningana þar sem þeir eru. Í því sambandi er helst talað um að hækka, bankaskatt, fjármagnstekjuskatt og veiðigjald.

Skoðun

Alls konar og lífið

Kristján Friðbert Friðbertsson skrifar

Á sólríkum síðvetrardegi, sá ég alls konar og lífið. Út um gluggann, úti í garði.

Skoðun

For­eldrar með börn í vímu­efna­neyslu og úr­ræði

Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar

Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu, eiga að geta farið strax og fengið ráðgjöf vegna vandans og ber ríkisvaldinu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að standa bak þeirra úrræða sem eru til staðar.

Skoðun

Páskarnir - íhugunarhvatning

Árni Stefán Árnason skrifar

Páskarnir, stærsta trúarhátíð kristinna manna, eru handan við hornið og sá heimssögulegi atburður er sannarlega tilefni til að skrifa um og upphefja.

Skoðun

Aukinn kraftur með hækkandi sól

Bragi Bjarnason skrifar

Páskafrí er í loftinu, fermingar og hið séríslenska “páskahret” örugglega í veðurkortunum, þó við værum öll fegin að losna við það. Þetta eru ákveðnir vorboðar, líkt og lóan, sem er komin aftur og ekki má gleyma holótta malbikinu, sandinum á gangstéttum eða brotnum kantsteinum eftir veturinn. Það er þó allt til bóta með hækkandi sól.

Skoðun

Til­brigðin um enda lífsins

Matthildur Björnsdóttir skrifar

Það hafa verið deilur af og til í ýmsum löndum heims og nú á Íslandi um rétt mannvera til að ákveða sjálfar hvenær líf þeirra endi. Auðvitað viljum við ekki að yngri kynslóðir tapi lífsgleðinni og endi það frá allskonar vanrækslu foreldra og samfélags.

Skoðun

Tón­list í gleði og sorg

Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sorg og ást eru systkini, án ástar er engin sorg og sorgin er ástarjátning þess sem hefur elskað og misst. Ástarlög og gleðisöngvar eiga því ekki síður við í útför en sálmar og lög sem lýsa sorg og trega.

Skoðun