Tíska og hönnun

Íslendingur hannar eyrnalokka sem slá í gegn

Rannveig Gísladóttir flutti heim til Íslands fyrir tæplega einu og hálfu ári síðan eftir að hafa stundað nám við fatahönnun í Los Angeles. Síðasta árið í LA hóf Ranna, eins og hún er kölluð, að hanna fjaðraeyrnalokka sem slóu heldur betur í gegn, en Steven Tyler skartaði meðal annars einum slíkum í auglýsingu fyrir Burger King.

Tíska og hönnun

Já, takk! Epísk brúðarlína

Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr er langt frá því að vera óaðlaðandi í nýrri auglýsingaherferð Victoria's Secret. Þar sýnir Miranda brúðarlínu nærfatarisans og gerir það vel.

Tíska og hönnun

Íslendingar eru heppnir í þetta skiptið

Tískuprinsinn Marc Jacobs mun hanna umbúðir Coke Light í ár og fetar þar með í fótspor Jean Paul Gaultier sem hannaði skemmtilegar umbúðir utan um gosdrykkinn í fyrra. "Jean Paul Gaultier náði mér auðveldri í fyrra svo það gefur að skilja að ég er mjög spennt að drekka Marc Jacobs kók þetta árið. Íslendingar eru heppnir í þetta skiptið því að í fyrsta sinn verður hægt að nálgast vöruna í íslenskum verslunum. Vei," skrifar Elísabet Gunnarsdóttir tískubloggari Trendnet.is.

Tíska og hönnun

Á forsíðu i-D í 20 ár

Í tilefni þess að Kate Moss hefur setið á forsíðu i-D Magazine með reglulegu millibili í tuttugu ár setti tímaritið fjórar mismunandi myndir af Moss á forsíðu vorútgáfu þess þetta árið.

Tíska og hönnun

Þessar kunna þetta

Ljóshærða leikkonan Diane Kruger kann svo sannarlega að klæða sig. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian stígur hins vegar stundum feilspor.

Tíska og hönnun

Hápunktar tískuvikunnar í Kaupmannahöfn

Tískuvikunni í Kaupmannahöfn lauk á sunnudaginn. Sýningar hjá frændum okkar Dönum hafa fengið frábær viðbrögð í erlendum fjölmiðlum, en Style.com, einn virtasti tískumiðill heims tók þátt í vikunni í fyrsta sinn í ár. Þar gerðu tískublaðamenn úttekt á sýningunum og settu myndir af þeim stærstu inn á heimasíðu sína.

Tíska og hönnun

Giselle Bundchen er nýtt andlit Chanel

Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er nýtt andlit Chanel snyrtivörulínunnar Les Beiges. Bundchen er 32 ára gömul tveggja barna móðir sem hefur sigrað fyrirsætuheiminn, en hún er hefur verið hæst launaðsta fyrirsæta heims síðustu árin. Hinn heimsfrægi tískuljósmyndari Mario Testino myndaði Giselle fyrir Chanel.

Tíska og hönnun

Skótískan í sumar

Rekstrarverkfræðingurinn Agla Friðjónsdóttir opnaði vefsíðuna Shoe Jungle í september á síðasta ári. Vefurinn hefur að geyma frumskóg af fróðleik um allt sem við kemur skóm og skókaupum, ásamt því sem hún bloggar um daglegt líf og tísku. Agla hefur alltaf verið mikil áhugamanneskja um skó og er hálfgerður skósafnari að eigin sögn, en hún á um 200 para safn.

Tíska og hönnun

Kalli Berndsen opnar í Kringlunni

"Já Beauty barinn er fluttur í Kringluna. Ég gæti ekki verið hamingjusamari með lífið. Þessi staðsetning hentar fulkomlega fyrir minn rekstur. Allt á fullu að staðsetja og við opnum seinni partinn í þessari viku," svarar Karl Berndsen spurður um snyrti- og hárgreiðslustofuna hans sem var staðsett í Höfðatorgi. "Við erum fimm hárgreiðslumeistarar; Simbi, Steinunn, Tanja og Jón. Svo að karlar og konur ættu að geta droppað inn í klippingu til okkar á 3. hæð um leið og verið er að gera djarfa verslun í Kringlunni." Í næsta mánuði hefst ný þáttaröð af þættinum hans Í Nýju ljósi á Stöð 2.

Tíska og hönnun

Enn og aftur í magabol

Stórstjarnan Miley Cyrus hatar ekki að sýna sinn tónaða maga við hvert tækifæri. Hún mætti á sett í Hollywood um helgina og var enn og aftur í magabol.

Tíska og hönnun

Í hverju var Beyoncé Knowles?

"Allra augu eru á söngdívunni og drottningunni Beyoncé Knowles eftir Super Bowl framkomu gærkvöldsins. Það er því eiginlega ekki hægt komast hjá því að ræða það aðeins," skrifar Elísabet Gunnars tískubloggari á Trendnet.is.

Tíska og hönnun

Djörf en elegant

Leikkonan Zosia Mamet er þekktust fyrir að leika hina prúðu Shoshönnu Shapiro í sjónvarpsþáttunum Girls sem sýndir eru á Stöð 2. Hún mætti í þessum rauða flauelskjól í viðtal hjá Jimmy Fallon á dögunum og vakti mikla athygli fyrir vikið.

Tíska og hönnun

Í sama kjól við sama tilefni

Það er líklega stærsta martröð margra í Hollywood að mæta á rauða dregilinn í nákvæmlega sama dressi og einhver annar. Þó að stílistar stjarnanna reyni sitt besta til að ganga úr skugga um að slíkt eigi sér ekki stað gerist það þó stundum.

Tíska og hönnun

Þetta er rosalegur kjóll

Söngkonan Kimberley Walsh var alltaf álitin sú saklausa þegar hún var í stúlknahljómsveitinni Girls Aloud. Nú hefur hún hafið sólóferil og búin að breyta rækilega um ímynd.

Tíska og hönnun

Alltaf á hælum

Stundum er engu líkara en að stjörnurnar gangi í háum hælaskóm sama hvert tilefnið er. Hér eru nokkrar myndir af stjörnum á hælum við daglegt amstur.

Tíska og hönnun

By Malene Birger á tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Danska tískudrottningin Malene Birger hefur átt mikilli velgegni að fagna síðustu ár. Á tískuvikunni í Kaupmannahöfn um helgina hélt hún upp á 10 ára afmæli tískuhússins By Malene Birger með tískusýningu í konunglega danska leikhúsinu. Sýningin var glæsileg í alla staði, fyrirsæturnar gengu niður sýnngarpallana við tóna Davids Bowie og var öll línan mjög í anda áttunda áratugarins þar sem hattar, leður og loð léku stórt hlutverk.

Tíska og hönnun