Tónlist

Rokkarar ætla að drekka í friði

"Við ákváðum að halda þetta kvöld til að sýna fram á að það sé hægt að hlusta á Motörhead og drekka Motörhead rauðvín, án þess að hljóta skaða af,“ segir Franz Gunnarsson, en hann og félagar hans á Gamla Gauknum standa fyrir rokkarakvöldi þar sem hægt verður að fá hið umdeilda Motörhead Shiraz rauðvín og Black Death bjór.

Tónlist

Þrjár hljómsveitir í einni

"Við erum eiginlega þrjár hljómsveitir í einni. Í fyrsta lagi erum við hljómsveit sem gefur út frumsamið efni. Svo erum við hljómsveit sem spilar á kaffihúsum, böllum, brúðkaupum og þess háttar, og að lokum erum við hljómsveit sem spilar í kirkjum,“ segir Elías Bjarnason, annar gítarleikari hljómsveitarinnar Tilviljun?

Tónlist

Ekki týpískt þungarokk

"Við erum ekki að spila týpíska þungarokkstónlist, og höfðum því til töluvert breiðari áheyrendahóps,“ segir Ási Þórðarson, trommuleikari hljómsveitarinnar Muck.

Tónlist

Zeppelin safnaði í sjóð

Ágóðinn af endurkomutónleikum Led Zeppelin í O2-höllinni í London í desember 2007 er hluti af fimm milljarða sjóði sem hefur verið gefinn Oxford-háskóla. Það var ekkja Ahmets Ertegun, stofnanda Atlantic Records sem Led Zeppelin var á mála hjá, sem ánafnaði háskólanum peninginn. Hann verður notaður í stofnun styrktarsjóðs í nafni Ertegun-hjónanna. Bassaleikarinn John Paul Jones sagðist vera mjög stoltur af því að tónleikarnir hafi átt þátt í stofnun styrktarsjóðsins.

Tónlist

Frábær stemning á tónlistarverðlaununum

Tónlistarfólk landsins fjölmennti í Hörpu á miðvikudagskvöldið þar sem íslensku tónlistarverðlaunin fóru fram. Mugison fór heim með fimm verðlaun á hátíðinni og var meðal annars valinn vinsælasti flytjandi ársins. Kynnir kvöldsins var Vilhelm Anton Jónsson og meðal þeirra sem tróðu upp voru hljómsveitin Of Monsters and Men, Sóley, Mugison og Ari Eldjárn.

Tónlist

Vilja gera plötu með Jimi Tenor

Hjálmar eru í viðræðum við finnska tónlistarmanninn Jimi Tenor um að vinna með honum fleiri lög. Hann söng með hljómsveitinni í laginu Messenger of Bad News sem var tekið upp í fyrra.

Tónlist

Syngja lag Jackson og Mercury

Friðrik Ómar og Matthías Matthíasson bregða sér í hlutverk söngvaranna sálugu Michaels Jackson og Freddies Mercury í nýútgefnu lagi.

Tónlist

Magni syngur til heiðurs Houston

"Ég er ekkert að fara að taka I Will Always Love You,“ segir Magni Ásgeirsson. Hann verður eini karlsöngvarinn á tónleikum til heiðurs Whitney Houston í Austurbæ 22. mars. Þar stíga einnig á svið Jóhanna Guðrún, Sigga Beinteins og fleiri söngkonur.

Tónlist

Högni spilar á Íslandi

Færeyingurinn Högni Reistrup treður upp ásamt hljómsveit á þrennum tónleikum 1. til 3. mars. Þetta verða fyrstu tónleikar hans hér að landi. Hann fær til liðs við sig færeysku söngkonuna Guðrið Hansdóttur sem hefur verið búsett á Íslandi síðan í haust. Högni Reistrup sendi í byrjun árs frá sér sína þriðju plötu, Samröður við framtíðina, þar sem hann blandar saman poppi, raf- og rokktónlist. Gripurinn hefur fengið góða dóma í færeyskum og dönskum fjölmiðlum. Fyrstu tónleikarnir verða á Græna hattinum í kvöld, þeir næstu á Gauki á Stöng annað kvöld og þeir síðustu á Kex Hosteli á laugardagskvöld.

Tónlist

Pólýfónía í nýrri útgáfu

Platan Pólýfónía Remixes er komin út. Hún inniheldur endurhljóðblandanir af níu lögum plötu Apparats Organ Quartet, Pólýfóníu, eftir FM Belfast, Bloodgroup, Dreamtrak, Beta Satan, Reptilicus, Frederik Schikowski, Flemming Dalum, Thomas Troelsen og Robotaki. Pólýfónía kom út í lok ársins 2010 á vegum 12 Tóna en tæpu ári síðar kom hún út erlendis á vegum danska útgáfufyrirtækisins Crunchy Frog. Pólýfónía Remixes er fáanleg á öllum helstu tónlistarveitum á netinu, til dæmis á iTunes, Amazon og Gogoyoko.

Tónlist

Blur spilar í Gautaborg

Enska hljómsveitin Blur spilar á tónlistarhátíðinni Way Out West sem verður haldin í Gautaborg í ágúst. Meðal annarra flytjenda verða The Black Keys, Bon Iver og Florence and the Machine.

Tónlist

Tónleikar til heiðurs Cash

Minningartónleikar um tónlistarmanninn Johnny Cash verða haldnir í Lindakirkju 26. febrúar, sama dag og hann hefði orðið áttræður.

Tónlist

Hæðir og lægðir Houston

Söngkonan ástsæla Whitney Houston lést um síðustu helgi. Ferill hennar var frábær framan ef en dalaði mikið síðasta áratuginn í lífi hennar.

Tónlist

Black Shore vekur athygli

Nýverið sendi tónlistarmaðurinn Úlfur frá sér myndband við lagið Black Shore sem er að finna á plötu hans, White Mountain, sem kemur út hjá Kimi Records í lok mars. Áður kemur hún út hjá japanska útgáfufélaginu AfterHours.

Tónlist

Heiðra Gunna Þórðar

Hljómsveitin Bítladrengirnir blíðu sem spilar Bítlalögin á barnum Obla-di-obla-da ætlar að heiðra Gunnar Þórðarson á morgun. Lítið hliðarherbergi er á staðnum sem kallað er hvíta herbergið, og þar verður silfurplatti með nafni Gunnars hengt upp.

Tónlist

Skálmöld í hljóðver föstudaginn þrettánda

Björgvin Sigurðsson og félagar í Skálmöld virðast ekki vera hjátrúarfullir því þeir hafa bókað tíma í hljóðveri föstudaginn 13. apríl. Tilefnið er ný plata víkingarokkaranna sem áætlað er að komi út í haust.

Tónlist

Ekki bara snjall lagasmiður

Fyrsta plata skosku söngkonunnar Emeli Sandé kemur út í næstu viku. Áhrifavaldar hennar eru Nina Simone, Aretha Franklin og Joni Mitchell.

Tónlist