Tónlist

Kristján samdi fyrir Klaufana

Kristján Hreinsson ásamt Klaufunum. Nýja platan, Óbyggðir, kemur út á næstunni.
Kristján Hreinsson ásamt Klaufunum. Nýja platan, Óbyggðir, kemur út á næstunni.
Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson samdi nánast öll lög og texta á væntanlegri plötu kántrísveitarinnar Klaufarnir.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er í samstarfi við þá," segir Kristján, sem tók að sér verkefnið í gegnum gítarleikarann Sigurgeir Sigmundsson. „Ég á alltaf soddan hrúgu af lögum og þeir völdu úr þeim. Þeir eru með tíu til tólf lög í viðbót sem þá langar að gefa út líka," segir Kristján, sem hingað til hefur verið þekktari fyrir texta sína en lagasmíðar. „Þetta er tónlist í anda Brimklóar og alls hins besta sem boðið hefur verið upp á í íslenskri kántrítónlist síðustu ár og áratugi. Þetta er dillandi gamansemi og 100% hressleiki."

Magnús Kjartansson kemur við sögu á plötunni. Hann leikur á hljómborð og stjórnar heilum kór hestamanna sem nefnist Brokkkórinn. Einnig syngur Selma Björnsdóttir í einu lagi, Aldrei, sem fer í spilun fljótlega. Annað lag af plötunni, Lífið er ferlega flókið, er þegar komið í spilun.

Kristján hafði mjög gaman af samstarfinu við Klaufana en hljómsveitin er skipuð þeim Friðriki Sturlusyni, Kristjáni Grétarssyni, Sigurgeiri Sigmundssyni, Guðmundi Annas og Birgi Nielsen. „Við erum kannski hinir mestu klaufar á ýmsum sviðum en þegar við slettum úr klaufunum, þá erum við á heimavelli." -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.