Tónlist

Hlíf í Friðriksborg

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari heldur tónleika á morgun í hallarkirkjunni í Friðriksborgarhöll á Sjálandi. Þar leikur hún í tilefni af sýningu á portrettmyndum föður síns, Sigurjóns Ólafssonar, sem stendur þar yfir og lýkur um áramót. Á efnisskránni eru Partíta nr. 2 í d-moll eftir Bach og Vetrartré fyrir einleiksfiðlu, sem Jónas Tómasson skrifaði fyrir Hlíf og tileinkaði henni.

Tónlist

Fékk samning í Danmörku

„Ég er að sjálfsögðu alveg í skýjunum með þetta," segir tónlistarmaðurinn Rúnar Eff sem hefur tryggt sér dreifingarsamning í Danmörku í kjölfar góðs gengis í raunveruleikaþættinum All Stars. Rúnar komst alla leið í úrslit í þættinum en kór hans náði á endanum ekki að tryggja sér sigur.

Tónlist

Bryndís á afmælistónleikum

Í kvöld mun leik- og söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir halda tónleika á DOMO í tilefni afmælis síns. Bryndís steig sín fyrstu spor á sviði í Íslensku óperunni tólf ára að aldri í hlutverki Soffíu í Litla sótaranum í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þaðan lá leiðin í leikhópinn Gamanleikhúsið, sem stofnaður var af Magnúsi Geir Þórðarsyni, þar sem hún lék m.a. í sýningunum Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, Gúmmí Tarzan og Línu langsokk.

Tónlist

Uppvakningar í nýju myndbandi

Uppvakningar ganga lausir í nýju myndbandi Metallica við lagið All Nightmare Long. Hið níu mínútna langa myndband er byggt upp eins og sovésk heimildarmynd sem fjallar um nýstárlegar tilraunir sem fara út um þúfur með skelfilegum afleiðingum. Liðsmenn Metallica sjást hvergi í mynd en útkoman þykir afturhvarf til vandaðra myndbanda sveitarinnar frá því í gamla daga á borð við One.

Tónlist

Jólahátíð Kimi í kvöld

Retro Stefson, Reykjavík!, Agent Fresco og Múgsefjun verða á meðal þeirra sem koma fram á árlegri jólahátíð Kimi Records á Nasa klukkan 20 í kvöld. Með tónleikunum vill fyrirtækið fagna útgáfuárinu með vinum og vandamönnum.

Tónlist

Blur í Hyde Park

Hljómsveitin Blur heldur stórtónleika í Hyde Park í London þriðja júlí, níu árum eftir að sveitin spilaði síðast saman í upprunalegri mynd. Þá spilaði sveitin í Royal Festival Hall í London þegar gítarleikarinn Graham Coxon var enn innanborðs. Nú snýr hann aftur. Þá eiga Damon Albarn og félagar í viðræðum um að spila á ýmsum tónlistarhátíðum næsta sumar.

Tónlist

Undirbúa nýja plötu

Rokkararnir í Kings of Leon eru þegar búnir að semja fjögur til fimm lög fyrir næstu plötu sína þrátt fyrir að aðeins nokkrir mánuðir séu liðnir síðan sú síðasta, Only By the Night, kom út.

Tónlist

Amnesty með tónleika

Amnesty International fagnar 60 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna með tónleikum í Listasafni Reykja-víkur, Hafnarhúsinu á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember.

Tónlist

Dylan túrar Evrópu

Meistari Bob Dylan heldur áfram linnulausu tónleikaferðalagi sínu. Næst ætlar hann í umfangsmikið tónleikaferðalag um Evrópu sem hefst í Svíþjóð í mars. Einnig spilar hann í Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og í Bretlandi.

Tónlist

Mitt hlutverk að skemmta

Björgvin Halldórsson býður til sannkallaðrar jólaveislu í Laugardalshöll á morgun. Stórsöngvarinn segir eilítið aðra stemningu svífa yfir fjölum Laugardalshallarinnar heldur en í fyrra.

Tónlist

Leona Lewis slær sölumet

Nýjasta smáskífulag söngkonunnar Leona Lewis hefur selst mest allra í Bretlandi af þeim sem hafa eingöngu komið út í stafrænu formi. Lagið, sem er hennar útgáfa af lagi Snow Patrol, Run, seldist í tæpum sjötíu þúsund eintökum á fyrstu tveimur dögunum, sem er nýtt met.

Tónlist

Tilraunakennt popp

Sin Fang Bous, öðru nafni Sindri Már Sigfússon, úr hljómsveitinni Seabear, gefur í dag út sína fyrstu plötu sem nefnist Clangour. Upptökur stóðu yfir með hléum í um það bil eitt ár.

Tónlist

Sparka í pung melódíunnar

Hljómsveitin Reykjavík! var að senda frá sér aðra breiðskífu sína, The Blood. Bóas söngvari og Kristján trommari segja plötuna ofstopafulla og óþægilega áheyrnar.

Tónlist

Spila stanslaust og æfa aldrei

Rokksveitin Agent Fresco, sem vann Músíktilraunir í vor og undankeppni Battle of the Bands fyrir skömmu, hefur gefið út EP-plötuna Lightbulb Universe. Á henni er lagið Eyes of a Cloud Catcher sem var það vinsælasta á X-inu í tvær vikur samfleytt í sumar.

Tónlist

Girls Aloud hita upp fyrir Coldplay

Chris Martin og félagar hans í bresku hljómsveitinni Coldplay eru nú í óða önn að skipuleggja tónleikaferðalag um Bretland á næsta ári. Stærstu tónleikarnir verða á Wembley-leikvanginum í London í september. Það tók ekki langan tíma að selja alla miðana á tónleikana sem verða á Wembley 19. september og því hefur öðrum tónleikum verið bætt við kvöldið áður.

Tónlist

Þrjár sveitir fagna útgáfu

Þrjár hljómsveitir halda útgáfutónleika á næstunni til að fagna sínum nýjustu plötum. Fyrstu tónleikarnir verða á Glaumbar í kvöld þegar hljómsveitin Steini treður þar upp.

Tónlist

Fyrstu tónleikarnir á Íslandi

Popparinn Ingi heldur útgáfutónleika á Nasa á föstudagskvöld sem verða jafnframt hans fyrstu tónleikar hér á landi. „Ég verð með átta manna hljómsveit, þetta verður rosalega spennandi. Það er ekkert stress, bara tilhlökkun,“ segir Ingi sem var að gefa út sína fyrstu plötu, Human Oddities.

Tónlist

Ætlar að syngja á íslensku

„Þetta er allt frumsamið efni eftir sjálfan mig,“ segir söngvarinn Alan Jones, fyrrum X-factor keppandi. Alan, sem söng sig inn í hug og hjarta landsmanna í fyrra, hefur haft í nógu að snúast eftir keppnina og vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem er væntanleg í vor.

Tónlist

Semur kraftapopp

Billie Joe Armstrong, forsprakki Green Day, segir að „kraftapopp" verði líklega allsráðandi á væntanlegri plötu sveitarinnar. „Mér finnst gaman að leika mér með útsetningar og skoða alltaf möguleikann á að semja „kraftapopp"," sagði Armstrong.

Tónlist

Stóru B-in tvö sameinast

Það verður mikið um dýrðir þegar Baggalútur og Buff leika saman á dansleik á Nasa um næstu helgi. Sveitirnar hafa gert ábreiður af hvort annars lögum.

Tónlist

Íslendingar áberandi

Hljómsveitin Sigur Rós á næstbestu plötu ársins samkvæmt heimasíðu bandaríska tónlistartímaritsins Pastemagazine. Mugison á jafnframt 25. bestu plötu ársins á listanum, Mugiboogie.

Tónlist

Hljómsveit safnar gjaldeyri fyrir Ameríkuferð

Strákarnir í Sprengjuhöllinni hafa fengið boð um að spila á tveimur tónlistarhátíðum í Norður-Ameríku í mars á næsta ári. Annars vegar er það Canadian Music Week í Toronto og hins vegar South By Southwest í Austin í Texas, en forsvarsmenn beggja hátíða hrifust mjög af nýjustu plötu þeirra, Bestu kveðjur.

Tónlist

Elíza með samning

Elíza Geirsdóttir Newman hefur gert höfundarréttarsamning við breska útgáfufyrirtækið Effect­ive Music. Samningurinn nær yfir tvær plötur Elízu, annars vegar Empire Fallm sem kom út í fyrram og hins vegar næstu plötu hennar sem er væntanleg á næsta ári.

Tónlist

Mugison fer í Icesave-tónleikaferð

„Við ætlum að kalla þetta Icesave-túrinn,“ segir Mugison sem er á leið í tónleikaferð um Bretland, Danmörku, Þýskaland og Hollandi, allt lönd sem hafa orðið illa úti vegna Icesave-reikninganna alræmdu.

Tónlist

Tónlistarfólk fundar

Útflutningsráð íslenskrar tónlistar, ÚTÓN, stendur fyrir kynningu á Tónlistarsjóði og Reykjavík Loftbrú í boði félaga tónlistarmanna og útgefenda á Café Rósenberg í kvöld.

Tónlist

Í sömu deild og Stones

Noel Gallagher, gítarleikari Oasis, segir að hljómsveitin sé í sama klassa og goðsagnirnar í The Rolling Stones. „Allir vita hverjir við erum. Við erum pottþétt komnir í sömu deild og Stones núna,“ sagði Gallagher. „Allir hafa heyrt um Stones, allir vita hvernig þeir hljóma og allir vita hvað þeir gera.“

Tónlist

Haukur og Villi í veglegum útgáfu

Tvær veglegar útgáfur með lögum hinna ástsælu söngvara Hauks Morthens og Vilhjálms Vilhjálmssonar eru að koma út. Platan með lögum Hauks, sem nefnist Með blik í auga, er þreföld og spannar allan feril hans. Alls eru 66 lög á þessum veigamikla safngrip, þar á meðal Lóa litla á Brú, Hæ Mambo, Til eru fræ og Simbi sjómaður.

Tónlist