Viðskipti erlent
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 334 ›
Boeing 737 Max fá græna ljósið í Evrópu Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið græna ljósið á að Boeing 737 Max flugvélarnar geti flogið um loftin blá í Evrópu. Þar með er 22 mánaða banni á flugvélunum lokið í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu 346 manns lífið. Viðskipti erlent 27.1.2021 12:30
Pfizer farið að rukka fyrir sjötta skammtinn Eftir að fram kom að hægt er að ná sex bóluefnaskömmtum út úr flöskum Pfizer í stað fimm, er bandaríski lyfjaframleiðandinn nú farinn að rukka fyrir sjötta skammtinn. Hærri reikningar Pfizer eru þó sendir út án samþykkis frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 26.1.2021 11:34
Tólf þúsund missa vinnuna þegar netverslun tekur yfir Debenhams Allt að tólf þúsund starfsmenn munu missa vinnuna þegar öllum verslunum breska vöruhússins Debenhams verður lokað á næstu misserum. Netverslunin Boohoo hefur fest kaup á vörumerki og vefsíðu vöruhússins úr þrotabúi þess en hyggst ekki halda áfram rekstri 118 Debenhams verslana víðs vegar um Bretland. Viðskipti erlent 25.1.2021 10:55
Google hótar að loka á leitarvél sína í Ástralíu Tæknirisinn Google segir að ef stjórnvöld í Ástralíu haldi því til streitu að rukka Google og Facebook sérstaklega fyrir það þegar fréttum er deilt á síðunum, muni Google einfaldlega hætta starfsemi í Ástralíu og loka á síðuna í landinu. Viðskipti erlent 22.1.2021 07:58
Segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent Johan Lundgren, forstjóri EasyJet, segir útlit fyrir mikinn ferðavilja meðal fólks þegar slakað verður á takmörkunum vegna kórónuveirunnar. Hann segir bókunum hafa fjölgað um 250 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 18.1.2021 23:11
Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi Flugvallafélag grænlenskra stjórnvalda, Kalaallit Airports, hefur ákveðið að bjóða út að nýju gerð flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Þetta er endurtekning á útboði í fyrra en tilboðin sem þá bárust voru sögð hafa verið öll hátt yfir fjárhagsramma verkefnisins. Íslenski verktakinn Ístak var í hópi bjóðenda, sem valdir höfðu verið að undangengnu forvali. Viðskipti erlent 17.1.2021 22:00
Amazon sakað um samkeppnislagabrot Amazon og fimm stærstu bókaútgefendur Bandaríkjanna eru sakaðir um samráð um verð á rafbókum í hópmálsókn sem höfðuð var í vikunni. Viðskipti erlent 16.1.2021 22:00
Ný kynslóð síma Samsung lítur dagsins ljós Starfsmenn tæknirisans Samsung kynntu nýja síma og önnur tól á fjarkynningu í dag. Símarnir vöktu þó mesta athygli og það að töluverð breyting hefur verið gerð á myndavélum í símum Samsung. Viðskipti erlent 14.1.2021 21:40
Innkalla dýrafóður eftir dauða yfir 70 hunda Bandaríski framleiðandinn Midwestern Pet Foods hefur hafið innköllun á gæludýrafóðri eftir að yfir 70 hundar drápust og minnst 80 aðrir veiktust í kjölfar þess að hafa étið Sportmix-fóður frá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 14.1.2021 14:53
Norwegian hættir flugi á lengri leiðum Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á áætlunarflug á lengri flugleiðum samkvæmt tilkynningu til norku kauphallarinnar. Er þar verið að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu félagsins sem orðið hefur fyrir búsifjum líkt og önnur flugfélög vegna heimsfaraldursins. Viðskipti erlent 14.1.2021 08:57
Gæti misst af þrjátíu milljörðum Þýski forritarinn Stefan Thomas á ekki nema tvær tilraunir eftir til að finna lykilorðið að harða disknum sínum. Venjulega væri það ekkert stórmál en á þessum diski Thomas er Bitcoin-veski með rafmynt að andvirði 31 milljarðs íslenskra króna. Viðskipti erlent 13.1.2021 16:32
Grænlendingar semja um hærri greiðslur fyrir kvóta Grænlendingar hafa endurnýjað samninga við Evrópusambandið sem tryggja þeim andvirði þriggja milljarða íslenskra króna í árlegar tekjur af fiskveiðiheimildum í lögsögu Grænlands. Fyrirtæki í eigu Íslendinga er meðal þeirra sem nýta kvótana. Viðskipti erlent 13.1.2021 09:09
Breski fjölmiðlamógúllinn David Barclay er látinn Breski auðjöfurinn og fjölmiðlamógúllinn Sir David Barclay er látinn, 86 ára að aldri. Viðskipti erlent 13.1.2021 08:12
Parler ætlar í hart við Amazon Samfélagsmiðillinn Parler ætlar að höfða mál gegn Amazon eftir að fyrirtækið neitaði að hýsa vefsíðu miðilsins áfram. Ákvörðun Amazon kom í kjölfar þess að bæði Google og Apple ákváðu að fjarlægja Parler úr smáforritaverslunum sínum. Viðskipti erlent 11.1.2021 22:04
Samsung kynnti vélmenni sem taka úr vélinni og nöldra í þér Tæknirisinn Samsung kynnti nýjar tegundir vélmenna í dag sem ætlað er að aðstoða við rekstur heimila. Það gerði fyrir tækið á Consumer Electronic Show eða CES sem er með töluvert breyttu sniðið þetta árið. Viðskipti erlent 11.1.2021 19:33
Parler ekki lengur aðgengileg Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum. Viðskipti erlent 11.1.2021 08:39
Amazon neitar að hýsa Parler Amazon hefur tilkynnt samfélagsmiðlinum Parler að fyrirtækið muni ekki hýsa síðuna vegna brota á notendaskilmálum. Því mun Parler ekki lengur vera aðgengileg nema síðan finni sér nýjan stað til þess að hýsa vefinn. Viðskipti erlent 10.1.2021 09:02
Risarnir beina spjótum sínum að „miðli málfrelsisins“ Samfélagsmiðillinn Parler er nú undir smásjá Apple og Google vegna þess efnis sem deilt er þar inni, en það er sagt hvetja til samskonar óeirða og urðu í Washington á miðvikudag. Miðillinn var stofnaður í ágúst árið 2018 en fór að sækja verulega í sig veðrið á síðasta ári eftir að sífellt fleiri stjórnmálamenn á hægri væng stjórnmálanna fóru að nýta hann til þess að ná til stuðningsmanna sinna. Viðskipti erlent 9.1.2021 08:47
Sylvía frá Icelandair til Origo Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur hún sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti erlent 8.1.2021 09:08
Boeing greiðir 2,5 milljarða dala fyrir að leyna upplýsingum um 737 Max slysin Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur ákveðið að greiða 2,5 milljarða Bandaríkjadala, eða um 316 milljarða íslenskra króna, fyrir að hafa leynt upplýsingum um Boeing 737 Max vélarnar í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa. Framleiðandinn gerir það í stað þess að hætta á að málið fari fyrir dómstóla. Viðskipti erlent 7.1.2021 23:00
Musk tekur fram úr Bezos Eignir frumkvöðulsins Elon Musk eru nú metnar á yfir 185 milljarða Bandaríkjadala og er hann því orðinn ríkasti maður heims. Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hafði áður trónað á toppnum frá árinu 2017. Viðskipti erlent 7.1.2021 22:36
Fjöldi yfirmanna hjá Danske Bank sleppur við ákæru Fjöldi yfirmanna hjá Danske Banka getur nú andað léttar eftir að tilkynnt var að þeir hafi sloppið undan ákæru í tengslum við rannsókn á peningaþvættishneykslinu í Eistlandi. DR segir frá því að mál sex fyrrverandi stjórnarmanna bankans hafi verið felld niður. Viðskipti erlent 7.1.2021 14:29
Rannsaka „óábyrga“ auglýsingaherferð Ryanair Auglýsingamálastofnun Bretlands hafa borist kvartanir vegna auglýsinga flugfélagsins Ryanair, þar sem fólk er hvatt til ferðalaga í ljósi bólusetninga þar í landi. Flestir þeir sem kvarta telja auglýsingarnar villandi og „óábyrgar“ og að þær geri lítið úr áhrifum faraldursins. Stofnunin hefur ákveðið að hefja formlega rannsókn. Viðskipti erlent 5.1.2021 21:59
Braut reglurnar viljandi til að leyfa viðskiptavinum að skipta jólagjöfum Fataverslunin Laura Thomsen Luxury í Silkeborg í Danmörku var opnuð í gær svo viðskiptavinir gætu skipt og skilað jólagjöfum. Þetta gerðu eigendur verslunarinnar, þrátt fyrir núgildandi reglur danskra stjórnvalda vegna sóttvarnaaðgerða sem kveða á um að verslanir skuli vera lokaðar til að minnsta kosti 17. janúar. Viðskipti erlent 3.1.2021 10:43
Færri flug, færri flugslys, fleiri dauðsföll Fleiri létust í flugslysum þar sem farþegaflugvélar áttu í hlut á nýliðnu ári en árið 2019, þrátt fyrir að mun færri flugslys hafi orðið á sama tíma og flugferðum fækkaði mikið. Viðskipti erlent 2.1.2021 14:18
Ticketmaster greiðir milljarð til að forðast ákærur Bandaríska miðasölufyrirtækið Ticketmaster hefur samþykkt að greiða jafnvirði 1,2 milljarða íslenskra króna í sekt fyrir að hafa brotist inn í tölvukerfi keppinautar. Viðskipti erlent 30.12.2020 23:20
Telur ólíklegt að bóluefni AstraZeneca fái leyfi í janúar Ólíklegt er að Lyfjastofnun Evrópu geti samþykkt markaðsleyfi fyrir bóluefni AstraZeneca gegn Covid í janúar á næsta ári, ef marka má orð aðstoðarframkvæmdastjóra stofnunarinnar. Viðskipti erlent 29.12.2020 14:47
Kínverskur tölvuleikjamógúll látinn eftir eitrun Lin Qi, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri tölvuleikjaframleiðandans Yoozoo, er látinn eftir að eitrað hafði verið fyrir honum. Viðskipti erlent 28.12.2020 07:31
Kínverska hagkerfið verði það stærsta í heimi 2028 Hagkerfi Kína mun taka fram úr því bandaríska árið 2028 og verður þá það stærsta í heimi, samkvæmt spá CEBR, breskrar rannsóknarmiðstöðvar um hagfræði og viðskipti. Fyrra spálíkan hafði gert ráð fyrir að Kína ætti stærsta hagkerfi heims árið 2033, en faraldur kórónuveiru er sagður munu flýta því. Viðskipti erlent 26.12.2020 17:31
Neverland-búgarður Jackson seldur langt undir ásettu verði Neverland, búgarður poppstjörnunnar Michael Jackson heitins, hefur verið seldur fyrir 22 milljónir dollara, eða sem nemur rúmum 2,8 milljörðum íslenskra króna. Þrátt fyrir að upphæðin kunni að hljóma há er hún engu að síður ekki nema fjórðungur af upphaflegum verðmiða eignarinnar. Það mun hafa verið milljarðamæringurinn Ron Burkle sem keypti eignina en kaupin hafa verið sögð vera algjör „þjófnaður.“ Viðskipti erlent 25.12.2020 12:54