Viðskipti erlent
318 319 320 321 322 323 324 325 326 … 334 ›
Stofnandi Keops vill kaupa eignir af Landic Property Ole Vagner stofnandi Keops fasteignafélagsins vill nú kaupa aftur þær Keops eignir sem seldar voru til Landic Property fyrir um tveimur árum síðan. Um er að ræða eignir í Svíþjóð sem metnar eru á yfir sjö milljarða danskra kr. eða sem nemur um 149 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 3.3.2009 08:49
TrygVesta kaupir tryggingarfélag af Milestone í Svíþjóð Dansk/norska tryggingarfélagið TrygVesta hefur keypt tryggingarfélagið Moderna Försäkringar af Milestone í Svíþjóð. Kaupverðið er tæpir 1,3 milljarður sænskra kr. eða um 16 milljarðar kr.. Viðskipti erlent 3.3.2009 08:42
HSBC-bankinn lækkaði um 18 prósent Hlutabréf á asískum mörkuðum féllu í verði í morgun og varð lækkunin langmest hjá HSBC-bankanum en bréf hans lækkuðu um heil 18 prósent á markaði í Hong Kong eftir að bankinn tilkynnti að hann myndi selja töluvert magn hlutabréfa. Eins lækkuðu japönsk fyrirtæki mörg hver og greindi fréttavefur Bloomberg frá því í morgun að fyrir hver fjögur fyrirtæki, sem hækkuðu í verði í Asíuvísitölu Morgan Stanley, hafi fimm lækkað. Viðskipti erlent 3.3.2009 07:15
Dow Jones-vísitalan undir 7.000 stig Gengi bandarískra hlutabréfa féll við upphaf viðskiptadagsins og fór Dow Jones-hlutabréfavísitalan undir 7.000 stigin í fyrsta sinn frá vordögum 1997. Viðskipti erlent 2.3.2009 14:34
Tapaði 80 milljörðum kr. á dag Bandaríski fjármálarisinn AIG skilaði heimsmeti í taprekstri á fjórða ársfjórðungi síðasta ár. AIG tapaði sem nemur tæpum 80 milljörðum kr. á hverjum degi ársfjórðungsins. Viðskipti erlent 2.3.2009 13:31
Danir geta tekið út séreignasparnað sinn í júní Danskir launþegar geta tekið út séreignasparnað sinn frá 1. júní í ár og fram til áramóta þrátt fyrir að hafa ekki náð 65 ára aldri. Þetta hefur danska stjórnin ákveðið. Viðskipti erlent 2.3.2009 10:43
Landbúnaðarsjóður stærsti lánveitandi í fasteign Magasin Það kemur svolítið á óvart að Lánastofnun landbúnaðarins í Danmörku, DLR, er stærsti lánveitandinn í fasteigninni sem hýsir Magasin du Nord sem aftur er að mestu í eigu Straums. Viðskipti erlent 2.3.2009 09:32
Lækkun á Asíubréfum Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun og lækkuðu bréf Mitsubishi-bankans í Japan um 6,8 prósent. Þá gerði lækkandi olíu- og málmverð það að verkum að bréf námufyrirtækisins Billington lækkuðu um 3,1 prósent í Sydney í Ástralíu. Viðskipti erlent 2.3.2009 07:33
Segja West Ham selt í vikunni Í sunnudagsútgáfu breska blaðsins Daily Mirror segir að knattspyrnuliðið West Ham sé á leið til fjárfesta frá Asíu fyrir 90 milljónir punda. Þar segir að fjárfestarnir séu við það að ná samningum við Björgólf Guðmundsson sem er núverandi eigandi félagsins. Þar er jafnvel talað um að samningar gætu verið í höfn í vikunni. Viðskipti erlent 1.3.2009 13:53
Breskir leigusalar gætu tapað á Mosaic Breskir leigusalar gætu þurft að sætta sig við að veita allverulegan afslátt af leiguverði í yfir 500 verslunum víða um Bretland í kjölfar greiðslustöðvunar Mosaic, sem er í 49% eigu Baugs. Viðskipti erlent 1.3.2009 09:43
Efnahagslífið mun „staulast“ út þetta ár Milljarðamæringurinn Warren Buffet segir að efnahagslífið muni staulast út þetta ár á meðan fjármálafyrirtækin eru að jafna sig á tapinu sem fylgdi kæruleysislegum lánum í tengslum við sprengjuna á húsnæðismarkaði. Viðskipti erlent 28.2.2009 18:00
Kaupþing mun eignast 90% hlut í Mosaic Fashion Tískuvöruverslanakeðjan Mosaic Fashion sem er í 49% eigu Baugs er á leið í greiðslustöðvun. Félagið mun þó að öllum líkindum fara í endurskipulagningu á fjórum aðal vörumerkjum sínum, Oasis, Warehouse, Coast og Karen Millen. Það er breska blaðið Times sem greinir frá þessu í morgun. Viðskipti erlent 28.2.2009 10:38
Hörmungar á mörkuðum í Bandaríkjunum Hlutabréf í Bandaríkjunum lækkuðu í dag og er ástæðan talin vera ótti fjárfesta við að ríkið taki yfir stærri hluta í Citigroup en þegar hefur verið gert. Helstu hlutabréfavísitölurnar hafa ekki verið lægri í 12 ár. Viðskipti erlent 27.2.2009 21:41
Öll Norðurlöndin, nema Noregur, komin í kreppu Öll Norðurlöndin, nema Noregur, eru nú komin í kreppu og það af dýpri gerðinni. Einna verst er ástandið í Svíþjóð, ef Ísland er undanskilið, en landsframleiðslan þar á fjórða ársfjórðungi síðasta árs hefur ekki minnkað jafnmikið síðan skráning hennar hófst. Viðskipti erlent 27.2.2009 14:15
Ekkert lát á útþenslu McDonald´s í kreppunni Ekkert lát er á útþenslu McDonald´s hamborgarakeðjunnar í kreppunni. Nú hefur McDonald´s greint frá því að þeir ætla að opna 40 nýja hamborgarastaði í Rússlandi á þessu ári. Viðskipti erlent 27.2.2009 12:59
Risavaxin fjárhagsaðstoð til ríkja Austur Evrópu Alþjóðabankinn, evrópski fjárfestingabankinn og evrópski þróunarbankinn munu samtals veita 25 milljörðum evra, eða um 3.600 milljörðum kr. til að hjálpa fyrirtækjum og bönkum Austur-Evrópu að reisa sig við. Viðskipti erlent 27.2.2009 12:31
Facebook aftur undir árás frá tölvuþrjótum Í annað sinn á einni viku hafa tölvuþrjótar látið til skarar skríða gegn Facebook notendum. Í þetta sinn er árásin þannig að notandi fær skilaboð um að „vinur“ hans hafi kært hann fyrir að brjóta gegn notendareglum vefsíðunnar. Viðskipti erlent 27.2.2009 11:31
Asíubréf á uppleið Hlutabréf hækkuðu í verði á mörkuðum í Asíu í morgun og reis Nikkei-vísitalan í Japan um 1,5 prósent. Fréttir af líklegu samkomulagi milli bandaríska bankarisans Citigroup og þarlendra stjórnvalda, um enn frekari neyðaraðstoð bankanum til handa, eru taldar líklegasta orsök hækkunarinnar en japanskir útflytjendur á borð við Toyota treysta mjög á Bandaríkjamarkað þar sem stór hluti framleiðslunnar er seldur. Viðskipti erlent 27.2.2009 07:33
Auðir skýjakljúfar í farvatni hrunsins á Wall Street Allar líkur eru á að stærstu bankar og fjármálastofnanir í New York muni yfirgefa skrifstofuhúsnæði í skýjakljúfum borgarinnar svo nemur milljónum fermetra í ár. Borgin býr sig undir verstu dýfu á fasteignamarkaði sínum í yfir áratug. Viðskipti erlent 26.2.2009 15:26
Auknar líkur á gull- og wolframvinnslu á Grænlandi Nýjar rannsóknir á vegum NunaMinerals á Grænlandi gefa auknar líkur og vonir á því að finna þar gull og wolfram í vinnanlegu magni. Viðskipti erlent 26.2.2009 14:35
Hlutabréf í Royal Unibrew féllu um 20% í morgun Hlutabréf í Royal Unibrew féllu um 20% í morgun í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Unibrew sem eru næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur skiluðu slæmu ársuppgjöri í morgun en tapið á síðasta ári nam tæpum 10 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 26.2.2009 13:28
Dýrasta listasafn í einkaeigu selt Uppboð á listaverkum sem voru í eigu tískuhönnuðarins Yves Saint Laurent sem lést á síðasta ári sló öll met. Aldrei hefur listasafn í einkaeigu verið selt fyrir viðlíka upphæð. Viðskipti erlent 26.2.2009 11:00
Tuttugu Danir verða atvinnulausir á hverjum klukkutíma Atvinnuleysi eykst nú svo hratt í Danmörku að um tuttugu Danir missa nú vinnu sína á hverjum klukkutíma sólarhingsins eða að jafnaði einn á þriðju hverju mínútu. Viðskipti erlent 26.2.2009 10:47
Kaupþing óskar eftir gjaldþrotaskiptum á dönsku félagi Kaupþing hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hjá danska fasteigna- og vindmyllufélaginu Eurotrust. Verður beiðnin tekin fyrir hjá skiptaréttinum í Kolding á mánudaginn kemur. Viðskipti erlent 26.2.2009 10:08
Skosk athafnakona kaupir Blooming Marvellous Verslunarkeðjan Blooming Marvellous hefur verið seld til skosku athafnakonunnar Elaine McPherson. Keðjan sem verslar með föt og vörur fyrir sængurkonur og nýbura var í eigu Kcaj fjárfestingarfélagsins sem aftur er að mestu í eigu Milestone. Viðskipti erlent 26.2.2009 09:50
RBS skilar mesta tapi í sögu Bretlandseyja Royal Bank of Scotland (RBS) tapaði 40 milljörðum punda á síðasta ári fyrir skatta og er þetta mesta einstaka tap fyrirtækis á Bretlandseyjum í sögunni. Viðskipti erlent 26.2.2009 09:00
Royal Unibrew tapaði 10 milljörðum kr. Dönsku bruggverksmiðjurnar Royal Unibrew töpuðu 483 milljónum danskra kr. á síðasta ári eða tæpum 10 milljörðum kr.. Stoðir eru einn stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25% hlut. Viðskipti erlent 26.2.2009 08:31
Tækni- og símafyrirtæki lækka í Asíu Asísk hlutabréf lækkuðu í verði í morgun og voru það bréf tækni- og símafyrirtækja sem mest lækkuðu. Einnig hríðféllu bréf japanska lyfjaframleiðandans Daiichi Sankyo eftir að bandaríska lyfjaeftirlitið samþykkti ekki innihaldslýsingar nokkurra lyfja sem fyrirtækið framleiðir og þriðji stærsti járnútflytjandi Ástralíu, Fortescue Metals, lækkaði um 9,5 prósent eftir að hluti bréfa þess var seldur með töluverðum afslætti. Viðskipti erlent 26.2.2009 07:06
Gjaldþrotabeiðnir vegna einstaklinga hafa þrefaldast Fjöldi gjaldþrotabeiðna á hendur einstaklinga hefur þrefaldast milli áranna 2007 og 2008. Beiðnirnar voru 18 talsins árið 2007 en voru 46 talsins í fyrra. Viðskipti erlent 25.2.2009 16:23
Mosaic Fashions tapaði 8,6 milljörðum kr. í fyrra Tap Mosaic Fashions í Bretlandi eftir skatta nam 53,6 milljónum punda eða sem nemur tæplega 8,6 milljörðum kr. í fyrra. Til samanburðar má geta að tapið árið 207 nam 6,6 milljónum punda eða um 1,1 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 25.2.2009 16:06