Innlent

Ók utan í bíla á stolnum bíl

Maður um þrítugt var handtekinn á áttunda tímanum í morgun á Frakkastíg í miðborg Reykjavíkur. Hann sat þversum undir stýri á bíl sem hann hafði stolið og hafði hann ekið utan í fjórar kyrrstæðar bifreiðar í næsta nágrenni á ferðalagi sínu. Hann var ölvaður og sefur nú úr sér í fangaklefa. Ekki er vitað hvar maðurinn stal bílnum en vonir standa til að það skýrist við skýrslutöku síðar í dag þegar maðurinn er kominn til sjálfs sín.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×